169.990 kr.
Fullsjálfvirk dokka
Fullsjálfvirk dokka
Snúningsmoppur sem lyftast
5.500Pa sogkraftur
Snjöll rýmisgreining
Auðveld snjallstýring
Fullsjálfvirk hleðslustöð
Viðhald er leikur einn
Eftir að Q Revo klárar þrifin fer hún aftur í hleðslustöðina. Í stöðinni er kröftug vatnsbuna sem bleytir í skúringarmoppunum og þær snúast yfir hrjúft yfirborð stöðvarinnar til að hreinsa sig. Affallsvatnið af moppunum safnast fyrir í 5L tanki sem tæma þarf reglulega.
Þegar Q Revo fer í stöðina eftir þrif og moppurnar á vélinni eru orðnar hreinar þá fer í gang þurrkun á moppunum. Moppurnar snúast á meðan 45° heitu lofti er blásið á þær til þess að koma í veg fyrir myglu og ólykt.
Eftir að Q Revo hefur lokið þrifum tæmir fullsjálfvirka hleðslustöðin rykhólfið á vélinni ásamt því að þrífa aðalburstann. Stöðin getur geymt ryk og drullu í allt að 7 vikur áður en ryksugupoki fyllist.
Stöðin fyllir á vatnstankinn á ryksuguvélmenninu eftir þörfum og eftir hver þrif. Þannig nær ryksuguvélmennið að skúra yfir stærra svæði eða allt að 400fm án okkar aðkomu.
Auðvelt er að fjarlægja botnplötuna úr hleðslustöðina til að einfalda þrif.
Ryksugar og skúrar
Snúningsmoppur
Fylgstu með óhreinindunum hverfa
Q Revo ryksugu- og skúringarvélmennið er með tveimur hringlaga skúringarmoppum. Á meðan Q Revo er að þrífa þá snúast skúringarmoppurnar og þrýstast niður í gólfið til að skilja gólfið eftir skínandi fínt.
snúningshraði
Lyftir skúringarmoppunum yfir mottur
Ryksugar og skúrar í einum hvelli
Q Revo skynjar sjálfkrafa þegar hún fer yfir teppi og mottur. Til þess að bleyta ekki í þeim þá lyftast skúringarmoppurnar sjálfkrafa um 7mm svo að það sé hægt að ryksuga og skúra allt rýmið í einu.
5.500Pa sogkraftur
Rykið í burt
Q Revo er með 5.500Pa sogkraft sem ryksugar upp ryk, mylsnu, dýrahár og önnur óhreinindi.
Uppfærður gúmmíbursti
Ryksugar án flækja
Burstinn á Q Revo er allur úr gúmmíi sem minnkar líkurnar á að hár flækist í kringum burstann.
Forðar sér frá vandræðum
Reactive 3D myndavélakerfi
Roborock Q Revo er með myndavélakerfi að framanverðu sem sér mögulega aðskotahluti sem gætu orðið í vegi hennar og býr til leið framhjá þeim svo að hún flækist ekki í t.d sokkum, snúrum eða inniskóm.
PreciSense LiDAR leiðsögn
Finnur alltaf skilvirkustu leiðina
PreciSense LiDAR leiðsögukerfið skannar og kortleggur heimilið til að finna skilvirkustu leiðina fyrir ryksuguvélmennið. Ryksuguvélmennið getur búið til allt að 4 kort fyrir heimili á nokkrum hæðum.
Snjalltenging í snjallsíma
Xiaomi home snjallforritið
Kortleggur hraðar, þrífur hraðar
Roborock Q Revo er allt að 6x hraðari að kortleggja rými miðað við eldri kynslóðir og 30% hraðari að þrífa heimilið.
Stingur uppá bannsvæðum
Roborock Q Revo kemur með tillögur að bannsvæðum og sýndarveggjum í litlum rýmum þar sem vélmennið gæti átt í hættu að festast.
Hannaðu þína rútínu
Hægt er að búa til fjölda af mismunandi rútínum sem ryksuguvélmennið fylgir. Hægt er að stilla mismunandi vatnsmagn og sogkraft eftir rýmum og á hvaða tímum vélin fer af stað.
Þrívíddar kortlagning
Roborock Q Revo getur kortlagt heimilið í þrívídd fyrir enn meiri nákvæmni. Þá er líka hægt að bæta húsgögnum inn í snjallforritið til að gera hreingerninguna ennþá skilvirkar og betri.
Ármúli 21
mibudin@mibudin.is
537-1800
Virkir dagar: 11:00 – 18:00
Laugardagar: 12:00 – 16:00
Sunnudagar: Lokað
Fylgdu okkur
Allt efni á vef þessum er í eigu Mii ehf og er verndað af ákvæðum höfundalaga, þ.m.t myndir og texti. Án samþykkis er öll notkun á efni vefsins óheimil. Notkun efnis getur haft bóta- og refsiábyrgð í för með sér.
© 2024, Mi búðin. Viðurkenndur sölu- og dreifingaraðili Xiaomi á Íslandi.