119.990 kr. Original price was: 119.990 kr..59.990 kr.Current price is: 59.990 kr..
Á lager
S7
Ryksuguvélmenni með hljóðbylgjutækni frá Roborock
Roborock S7 notar hárnákvæmt LiDAR leiðsögukerfi til að búa til kort af rýminu sem á að ryksuga og greinir þannig á milli húsgagna, veggja og ólíkra gólfefna. Ryksugan nemur mismunandi tegundir gólfefna með hljóðbylgjum og eykur sogkraftinn sjálfkrafa þegar hún fer yfir teppi eða mjög skítugan flöt. Hægt er að stilla hvort hún ryksugi teppin eða lyfti upp burstanum og sleppi þeim. Ryksugan getur líka blautmoppað gólfin á sama tíma og hún ryksugar þau.
Bursti sem nemur ójöfnur
Ný hönnun á aðalburstanum gerir honum kleift að ná til erfiðu staðanna þar sem hann nemur ójöfnur og aðlagar sig að aðstæðum hverju sinni.
Uppfærður gúmmíbursti
Ný hönnun er á burstanum sem er nú allur úr gúmmíi og er endingarbetri en forverar hans. Hann er betur í stakk búinn til að koma í veg fyrir hárflækjur á meðan hann ryksugar.
S7 er búin HyperForce ™ sogkerfi frá Roborock og notar 2500 Pa sogkraft til að ná fínu ryki af hörðum gólfum, hári úr teppum og öllu þar á milli.
Þrífur og þrífur og þrífur …
Roborock S7 kemur með 470ml rykhólfi og 300ml vatnstanki sem gerir henni kleift að þrífa lengur á milli þess sem hún er tæmd.
Rafhlaðan er 5200mAh Li-ion og dugar í allt að þrjá klukkutíma á einni hleðslu.
Hárnákvæmt LiDAR leiðsögukerfi býr til kort af heimilinu og skiptir því niður eftir herbergjum.
Hægt er að fylgjast með hvaða leið ryksugan fer og hvaða svæði hún er búin að ryksuga. Í Xiaomi home snjallforritinu er hægt að velja hvaða svæði hún á að ryksuga og á hvaða tíma. Ryksugan getur þannig séð um þrif á gólfum á meðan þú ert að heiman!
Bannsvæði
Í Xiaomi home snjallforritinu er hægt að setja inn bannsvæði og ósýnilega veggi og ryksugan lætur þau svæði í friði.
Með Amazon Alexa, Google Home og Siri er hægt að stjórna ryksugunni með röddinni.
Ármúli 21
[email protected]
537-1800
Virkir dagar: 11:00 – 18:00
Laugardagar: 12:00 – 16:00
Sunnudagar: Lokað
Fylgdu okkur
Allt efni á vef þessum er í eigu Mii ehf og er verndað af ákvæðum höfundalaga, þ.m.t myndir og texti. Án samþykkis er öll notkun á efni vefsins óheimil. Notkun efnis getur haft bóta- og refsiábyrgð í för með sér.
© 2025, Mi búðin. Viðurkenndur sölu- og dreifingaraðili Xiaomi á Íslandi.