Skilmálar


Mi búðin
Mii ehf.
Kt. 670417-0850
Ármúli 21
108 Reykjavík
Sími 537-1800
Netfang [email protected]


Mi búðin áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.


Afhending vöru

Allar pantanir sem berast fyrir klukkan 13:00 á virkum degi fara samdægurs í afhendingarferli, pantanir sem berast eftir klukkan 13:00 fara í afhendingarferli næsta virka dag. Viðskiptavinum er einnig velkomið að sækja pantanir í Mi búðina, Ármúla 21. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti eða Dropp gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar viðkomandi flutningsaðila um afhendingu vörunnar. Mi búðin ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í flutningi eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Mi búðinni til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Verð á vöru og sendingarkostnaður
Öll verð í vefverslun Mi búðarinnar eru með inniföldum 24% virðisaukaskatti. Enginn sendingarkostnaður bætist við þegar verslað er fyrir 15.000 kr eða meira, fyrir pantanir undir 15.000 kr bætist sendingarkostnaður við í greiðsluferlinu. Hægt er að sækja pantanir í Mi búðina, Ármúla 21 og bætist þá enginn auka kostnaður við.

Forsala
Mi búðin býður í einhverjum tilvikum uppá forsölu. Vörur í forsölu eru merktar í nafni og í lýsingu vörunnar. Í forsölu er varan ekki til á lager en hægt er að tryggja sér eintak áður en varan er tilbúin til afhendingar. Eftir atvikum er áætlaður afhendingartími gefin upp. Mi búðin reynir eftir bestu getu að uppfylla uppgefinn afhendingartíma en í einhverjum tilvikum getur afhendingartími dregist. Afhendingartími er því birtur án ábyrgðar. Þegar vara í forsölu er tilbúin til afhendingar er haft samband við kaupanda. Í forsölu er greitt fullt kaupverð eins og um venjulega pöntun sé að ræða, nema annað sé skýrt tekið fram. Hægt er að velja að sækja forsöluvöru í Mi búðina eða fá afhent með flutningsaðila. Mögulegt er að versla vörur í forsölu í gegnum vefverslun eða í verslun Mi búðarinnar.

Skil og skipti á vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðir Mi búðin allan sendingarkostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000, laga um neytendakaup og laga um lausafjárkaup.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Eyðing persónuupplýsinga
Viðskiptavinir geta óskað eftir því að persónulegum gögnum (heimilisfang, viðskiptasaga, símanúmer o.sfrv) sé eytt úr gagnagrunnum Mi búðarinnar. Mi búðin ábyrgist ekki upplýsingar sem önnur fyrirtæki og þjónustuaðilar eins og t.d. Íslandspóstur og greiðsluþjónustur safna í tengslum við viðskiptin.

Eignarréttur
Seldar vörur teljast eign seljanda þar til kaupverð hefur verið greitt að fullu.
Reikningsviðskipti eða önnur lánaform afnema ekki eignarétt seljanda fyrr en full greiðsla hefur borist.

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness
Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.