9.990 kr.
Aqara Zigbee 3.0 ofnastillir, mun styðja við Matter. Hægt að stýra hita í ofn á upplýstum skjá eða með Aqara appinu.
Á lager
Snjallari, sparsamari og þægilegri leið til að stýra hitanum á heimilinu
Zigbee 3.0 og Matter stuðningur
Tengist við Aqara stjórnstöð með Zigbee 3.0 staðlinum, með OTA uppfærslum kemur stuðningur við Matter.
Litríkur upplýsingaskjár
Baklýstur upplýsingaskjár sýnir allar helstu upplýsingar á einfaldan hátt.
Geofencing tækni og stuðningur við mörg heimili
Geofencing tæknin sér til þess að upphitun hússins sé hafin áður en þú kemur heim.
Breytilegar tímaáætlanir
Stilltu mismunandi hitastig eftir hvaða dagur er eða hvað klukkan er.
Mælir hitastig frá öðrum skynjurum
Með Aqara hita- og rakaskynjurum er hægt að fá nákvæma mælingu á hitastiginu og setja upp sjálfvirkar aðgerðir útfrá því.
Hópar saman nokkrum ofnastillum
Ef margir ofnastillar eru í húsinu er hægt að tengja þá saman til að fá sem jafnasta hitastýringu frá öllum ofnum.
1. árs rafhlöðuending
Ofnastillirinn tekur 2x AA rafhlöður sem að duga í allt að 1 ár í notkun.
Auðvelt í uppsetningu
Uppsetning tekur einungis nokkrar mínútur og ofnastillirinn kemur með nokkrum mismunandi millistykkjum sem passa á langflesta ofna.
Samhæfanlegt við fjölda forrita
Samhæfanlegt við fjölda snjallumhverfa og hægt að stýra með röddinni. Styður tengingu við Apple HomeKit, Alexa, Google Home, IFTTT og Alice. Matter stuðningur mun koma með uppfærslu
Aqara
Apple HomeKit
Google Home
Alexa
IFTTT
Alice
Ofnstillirinn getur fengið hitamælingar frá Aqara hita- og rakaskynjaranum og Aqara TVOC skynjaranum til að gera hitastýringuna nákvæmari. Virkar líka í HomeKit.
Með Geofencing stuðning getur ofnstillirinn verið byrjaður að hita upp húsið þegar þú ert ennþá á leiðinni heim til þín. Virkar einnig ef þú ert með nokkur mismunandi heimili skráð í appið, þá þarf bara að stilla mismunandi sjálfvirkar aðgerðir fyrir hvert.
Sparar orku og eykur þægindi
Margir ofnstillar samhæfast
Ef fleiri en einn Aqara ofnstillar eru í rýminu samhæfast þeir og hitastýring verður þeim mun skilvirkari.
Skynjar opnar hurðar og glugga
Ofnstillirinn skynjar þegar hurðar og gluggar eru opnir og slekkur á innspýtingu hita til að spara orku. Einnig er hægt að tengja saman ofnstillinn og glugga- og hurðaskynjara til að auka nákvæmni.
Vörn gegn frosti
Hægt er að stilla lágmarkshita á hitainnspýtingu til þess að vernda pípurnar frá því að frosna þegar kaldast er í veðri.
Auðvelt í notkun og hannað til að passa í flest heimili
Einföld uppsetning
Millistykki fylgja í kassanum og gera ofnstillinum kleyft að passa á langflesta ofna. Leiðbeiningar sem einfalt er að fylgja eru í handbók.
Litríkur baklýstur upplýsingaskjár
Upplýsingaskjár sýnir allar helstu upplýsingar á skiljanlegan og litríkan hátt.
1. árs rafhlöðuending
Þökk sé sparsama Zigbee 3.0 staðlinum dugar rafhlaðan á ofnstillinum í allt að 1. ár. Þegar komið er að því er einfalt að skipta um 2x AA rafhlöður.
Athugaðu hvort ofnstillirinn passi hjá þér
E1 ofnstillirinn passar á langflesta ofna en í pakkanum fylgja millistykki. Ofnstillirinn passar á hefðbundna M30*1.5mm ofnlokan auk þess að millistykkin passa á Danfoss RA, RAV og RAVL ofnlokana
Ármúli 21
mibudin@mibudin.is
537-1800
Virkir dagar: 11:00 – 18:00
Laugardagar: 12:00 – 16:00
Sunnudagar: Lokað
Fylgdu okkur
Allt efni á vef þessum er í eigu Mii ehf og er verndað af ákvæðum höfundalaga, þ.m.t myndir og texti. Án samþykkis er öll notkun á efni vefsins óheimil. Notkun efnis getur haft bóta- og refsiábyrgð í för með sér.
© 2024, Mi búðin. Viðurkenndur sölu- og dreifingaraðili Xiaomi á Íslandi.