54.990 kr. Original price was: 54.990 kr..38.493 kr.Current price is: 38.493 kr..
Dreame R10 handryksugan er öflug og þráðlaus ryksuga sem skilar allt að 120 AW sogkrafti og 60 mínútna vinnutíma. Hún er hönnuð til að gera þrifin auðveldari með 5-laga síukerfi og V-laga bursta með LED ljósum. Þessi fjölhæfa handryksuga er fullkomin fyrir dagleg þrif á heimilinu.
1 stk eftir á lager
Upplýsingar
Handryksugan skilar öflugum 120 AW sogkrafti (20.000 Pa), sem þýðir að hún nær auðveldlega upp ryki, sandi, hári og smærri drasli af gólfum, teppum og úr bílnum. Þessi kraftur gerir þrifin fljótlegri og dýpri — jafnvel í hornum og á erfiðum svæðum. Fullkomin fyrir daglegar snöggar umferðir þegar þú vilt gera hreint á stuttum tíma.
Með allt að 60 mínútna vinnutíma í Eco-stillingu er hægt að klára flest heimili á einni hleðslu. Athugið að vinnutími getur verið meiri eða minni eftir því hvaða stillingu og sogkraft er notaður.
Með vörunni fylgir V-laga fjölflata burstahaus með LED ljósum, mótoriseruðum smábursta fyrir gæludýrahár, sprungustútur og breitt samsetningarverkfæri. Einnig fylgir framlengingarstöng, V-laga sílikon gólf rafhaus, mjúkur bursti gólf rafhaus, húsgagna rafhaus, samanbrjótanlegur burstahaus og samanbrjótanlegur stuttur haus.
Ryksugan er með háþróað 5-laga síukerfi sem skilar 99.9% síun skilvirkni. Hægt er að þrífa síuhluti í vatni en mikilvægt er að þurrka síuna fullkomlega áður en ryksugan er notuð aftur.
Með LED ljósum á fjölflata burstahausnum lýsist upp ryk á gólfinu sem ekki bara gerir vinnuna skemmtilegri heldur einnig sérðu betur hvar er búið að ryksuga og hvar á eftir.
Stórt 600ml rykhólf tekur við nóg af ryki en einnig er auðvelt að tæma rykhólfið með einum takka. Enginn poki sem þarf að skipta um.
Dreame R10 er hönnuð til að vera hljóðlát í notkun, með hljóðstigi sem er um 67 dB, sem gerir þrifin þægilegri án mikils hávaða.
V-laga fjölflata burstahönnunin er með greiðulíkum tönnum sem koma í veg fyrir að hár flækist í burstanum, sem tryggir stöðuga og skilvirka hreinsun.
Ryksugan er hlaðin með vegghleðslu og kemur með veggfestingu fyrir geymslu. Rafhlöðupakkinn er útskiptanlegur, sem veitir sveigjanleika.
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar
R10 handryksuga
Handhæg og kröftug handryksuga með LED ljósi að framan
120AW
sogkraftur
Allt að 60 mínútna
rafhlöðuending
Síar 99.9%
rykagna
120.000RPM
burstalaus mótor
Dreame R10 er handhæg og öflug handryksuga sem að dugar í allt að 60 mínútur á einni hleðslu. R10 ryksugar heimilið með jöfnum 120AW sogkrafti og með burstalausum 125.000RPM mótor heyra hár, ryk, óhreinindi og rusl sögunni til.
Aðalburstinn á R10 er með innbyggðu LED ljósi sem að hjálpar mikið til við að sjá óhreinindi á gólfinu sem annars gætu hafa farið framhjá okkur, hvort sem það er á miðju gólfinu eða á dimmari svæðum eins og undir sófa eða bakvið skápinn.
Fjölnota aðalburstinn er V-laga sem skilar sér í skilvirkri hreinsun á óhreinindum. Í innanverðum burstanum er tennur sem að hindra frá því að hár eða aðrir óæskilegir vefjist utan um burstann. Að framanverðum aðalburstanum er hægt að opna og loka hólfi sem að hleypir inn stærri óhreinindum og hentar einstaklega vel á teppi.
Beygjanlegur sprungustútur
2-í-1 bursti
Áklæðabursti
Síar út rykagnir
Allt ryk fer í gegnum 5-laga síukerfi sem síar út allt af 99.9% ryk- og loftagna og kemur í veg fyrir að þær losni aftur í andrúmsloftið. Síukerfið sér til þess að rykið haldist í rykhólfinu sem er tæmanlegt með einum hnappasmell.
Auðveld þrif, auðveldara viðhald
Haltu ryksugunni þinni alltaf í toppstandi með fjarlægjanlegu rykhólfi, rafhlöðu, síum og burstum. Viðhald er leikur einn.
Hægt að taka í sundur og þrífa
Hægt að þrífa rykhólf, síur og rúllubursta.
Einföld veggfesting
Einföld veggfesting heldur ryksugunni uppréttri til að taka sem minnst pláss þegar hún er ekki í notkun.




