Roborock Qrevo Curv 2 Flow ryksuguvélmenni með sjálftæmingarstöð

Roborock Qrevo Curv 2 Flow ryksuguvélmenni með sjálftæmingarstöð

189.990 kr.

Roborock Qrevo Curv 2 Flow er öflugt ryksuguvélmenni sem ryksugar og skúrar gólf með 20.000 Pa sogkrafti og nýstárlegri SpiraFlow™ rúllumoppu. Það er með Reactive AI hindrunargreiningu og PreciSense LiDAR leiðarkerfi til að tryggja ítarlega og snjalla hreinsun. Með sjálftæmingarstöð sem þrífur og þurrkar moppuna, tæmir ryk og fyllir á vatn, býður þetta ryksuguvélmenni upp á hámarks þægindi og hreinna heimili.

– 20.000 Pa sogkraftur
– Allt að 240 mín vinnutími
– Ryksugar og moppar með rúllumoppu
– Kemst yfir allt að 4 cm þröskulda
– 11.9 cm hæð ryksuguvélmennis
– PreciSense LiDAR + Reactive AI + RGB myndavél
– Tvöfalt flækjulaust burstakerfi
– 75°C heitur moppuþvottur
– Gæludýravænn snjallbúnaður
– Sjálftæmingarstöð með 2.5 L rykpoka
– Stærð
– Multifunctional sjálftæmingarstöð

Á lager

Vörunúmer: QC2F02-00
Strikamerki: 6936905904799

Upplýsingar

20.000 Pa sogkraftur
Allt að 240 mín vinnutími

Vélin er með 5.200 mAh rafhlöðu og allt að 240 mínútna vinnutíma. Þegar rafhlaðan er komin niður fyrir 20% fer vélin sjálf í stöðina, hleður sig upp í 100% og heldur svo áfram þaðan sem hún var komin.

Ryksugar og moppar með rúllumoppu

Vélin getur ryksugað, blautmoppað eða ryksugað og blautmoppað á sama tíma. Með SpiraFlow™ rúllumoppu sem snýst á 220 RPM og 2.5x auknum moppuþrýstingi nær vélin að blautmoppa einstaklega vel. Moppan lyftist sjálfkrafa um 15 mm yfir teppi og getur einnig farið útvið veggi og fætur á húsgögnum. Þegar vélin fer yfir teppi kemur niður skjöldur sem fer fyrir burstann svo að teppi ættu ekki að blotna.

Kemst yfir allt að 4 cm þröskulda

Vélin er með AdapitLift dekkjum sem lyftir vélinni yfir allt að 4cm þröskulda. Moppan lyftist svo sjálfkrafa um 15 mm og setur niður skjöld þegar vélin skynjar teppi, sem gerir henni kleift að fara yfir án þess að væta teppið.

11.9 cm hæð ryksuguvélmennis

Ryksuguvélmennið er 11.9 cm á hæð, sem gerir því kleift að komast undir flest húsgögn og þrífa á erfiðum stöðum.

PreciSense LiDAR + Reactive AI + RGB myndavél

Vélin er með PreciSense LiDAR leiðarkerfi sem kortleggur heimilið nákvæmlega. Reactive AI hindrunargreining með RGB myndavél greinir og forðast yfir 200 tegundir af algengum hlutum á gólfinu. Hún er einnig með fallskynjara svo hún detti ekki niður tröppur.

Tvöfalt flækjulaust burstakerfi

Qrevo Curv 2 Flow er með vottað tvöfalt flækjulaust kerfi sem kemur í veg fyrir að hár flækist í aðalburstunum. Þetta tryggir stöðugan sogkraft og minni viðhald, sérstaklega á heimilum með gæludýr.

75°C heitur moppuþvottur

Sjálftæmingarstöðin þrífur moppuna með 75°C heitu vatni til að fjarlægja óhreinindi og drepa 99% af bakteríum, og þurrkar hana síðan með 55°C heitu lofti til að koma í veg fyrir vöxt myglu og vonda lykt.

Gæludýravænn snjallbúnaður

Vélin er með gæludýravæna snjallgreiningu sem þekkir gæludýr, getur tekið myndir af þeim og sent í Roborock appið og getur jafnvel leitað að þeim. Hún getur einnig lækkað sogkraft og burstahraða til að trufla ekki gæludýr.

Sjálftæmingarstöð með 2.5 L rykpoka

Sjálftæmingarstöðin tæmir rykhólfið í rykpoka sem dugar í allt að 65 daga án handvirkrar tæmingar. Hún fyllir sjálfkrafa á hreina vatnstankinn í ryksugunni og þrífur og þurrkar moppuna með heitu vatni og lofti.

Stærð

Ryksuguvélmenni: 35.3 x 35.3 x 11.9 cm (Þvermál x Hæð) Sjálftæmingarstöð: 45 x 45 x 45 cm (Breidd x Dýpt x Hæð)

Multifunctional sjálftæmingarstöð

Sjálftæmingarstöðin er miðstöð hreinsunarinnar, hún tæmir sjálfkrafa rykhólfið í 2.5 L rykpoka, fyllir á hreina vatnstank ryksugunnar, þrífur moppuna með 75°C heitu vatni og þurrkar hana með 55°C heitu lofti til að koma í veg fyrir myglu og vonda lykt.

Í kassanum fylgir:

  • Roborock Qrevo Curv 2 Flow ryksuguvélmenni
  • Sjálftæmingarstöð
  • Rafmagnssnúra
  • Rykpoki
  • Hreinn vatnstankur
  • Óhreinn vatnstankur
  • Rúllumoppa
  • Hliðarbursti
  • Hreinsibursti

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur