Xiaomi 15 Ultra 16+512GB 5G Leica snjallsími

249.990 kr.

Uppselt

Fá tölvupóst þegar vara kemur á lager

  • 6.73″ WQHD+ AMOLED 120Hz micro-curved skjár
    • Xiaomi Shield Glass 2.0 hert skjágler
  • 16GB + 512GB minni
  • IP68 vottun
  • Snapdragon® 8 Elite 3nm 5G örgjörvi
  • 5.410 mAh rafhlaða
    • 90W USB-C hraðhleðsla
    • 80W þráðlaus hleðsla
  • Leica Vario Summilux fjórfalt myndavélakerfi
    • 23mm 50MP aðalmyndavél
    • 100mm 200MP aðdráttarlinsa
    • 70mm 50MP aðdráttarlinsa
    • 14mm 50MP víðlinsa
    • Allt að 120x zoom
    • 8K 30fps, 4K 120fps upptaka
  • 32MP selfie myndavél, 4K 60fps myndbandsupptaka
  • Bluetooth 6.0, WiFi 7, Dual Sim
  • Dolby Atmos hátalarar
  • Xiaomi HyperAI gervigreind
    • Google Gemini
    • Hringla til að leita, þýðandi, nótur, upptakari, textalýsing, myndbandsupptaka, myndbreytir og margt fleira
  • Xiaomi HyperOS stýrikerfi
  • Hulstur og hleðslusnúra fylgir í kassanum (hleðslukubbur seldur sér)

Oft keypt með

Xiaomi 120W HyperCharge Combo hleðslutæki

  • Hleðslukubbur og snúra
  • Styður 120W hraðhleðslu
  • USB-C snúra
  • Snúran er 1m á lengd

Xiaomi 80W Adaptive þráðlaus hleðslustandur

  • Stílhreinn og fallegur hleðslustandur
  • Hleður síma þráðlaust
  • 80W breytileg hraðhleðsla
  • Hljóðlát vifta gegn ofhitnun
  • Skynjar aðra járn hluti (t.d. lykla) og slekkur á hleðslu fyrir aukið öryggi
  • ATH. hleðslukubbur fylgir ekki með (þarf 120W kubb)

Oft keypt með

Xiaomi 120W HyperCharge Combo hleðslutæki

  • Hleðslukubbur og snúra
  • Styður 120W hraðhleðslu
  • USB-C snúra
  • Snúran er 1m á lengd

Xiaomi 80W Adaptive þráðlaus hleðslustandur

  • Stílhreinn og fallegur hleðslustandur
  • Hleður síma þráðlaust
  • 80W breytileg hraðhleðsla
  • Hljóðlát vifta gegn ofhitnun
  • Skynjar aðra járn hluti (t.d. lykla) og slekkur á hleðslu fyrir aukið öryggi
  • ATH. hleðslukubbur fylgir ekki með (þarf 120W kubb)
Vörunúmer: MIIV-0152 Categories , ,

16+512GB | Fjórfalt Leica myndavélakerfi | 200MP Telephoto linsa | Snapdragon® 8 Elite örgjörvi | 6.73″ WQHD+ skjár | Góð rafhlöðuending | Xiaomi HyperOS 2 stýrikerfi

Ljós er kjarni ljósmyndunar, það umbreytir augnablikum í minningar og skapar myndir með dýpt, litadýrð og áþreifanlega sögu

Leica og Xiaomi halda áfram flottu samstarfi í Xiaomi 15 línunni, Leica Summilux sjónlinsan er uppfærð frá fyrri kynslóðum og er að endurskilgreina hvað myndataka í snjallsímum getur gert. 15 línan er með öflugum Snapdragon 8 Elite örgjörva, nýju uppfærðu stýrikerfi og innbyggðri gervigreind.

Klassískt útlit

Fjórfalt myndavélakerfi

Sigraðu nóttina

Mögnuð myndataka við lág birtuskilyrði

ƒ/1.63 Summilux linsa

Háskerpu myndir í ljósi og myrkri

1-tommu Leica aðalmyndavél

1/1.4″ stór myndflaga

Mögnuð dýptarskynjun

Leica 200MP telephoto linsa

200MP telephoto linsan skarar framúr í að skapa dýpt og raunveruleika í bæði myndatöku og mynbandsupptökum. Linsan hleypir einnig einstaklega miklu ljósi inn svo að litir eru skarpir og viðfangsefni myndarinnar eru skýr. Ljósinntakan er 136% meiri en á fyrri kynslóð (Xiaomi 14 Ultra).

Myndbandsupptaka

Meistaraleg bíómyndaupptaka

Fyrir faglega eftirvinnslu

10-bit Log myndbandsupptaka í öllum brennivíddum

Xiaomi 15 Ultra styður 4K 60fps 10-bit Log myndbandsupptöku í öllum brennivíddum. Xiaomi 15 Ultra er ACES Product Partner og býður uppá faglega eftirvinnslu myndbandsupptöku og sérstaklega góða litaleiðréttingu og breytingu.

Nýjir möguleikar

4K 120fps

Xiaomi 15 Ultra styður 4K 120fps slow motion upptöku á 23mm aðalmyndavélinni og 100mm víðlinsunni.

Stöðugleiki í upptöku og myndatöku

Ultra OIS stöðugleiki

Aðalmyndavélin á Xiaomi 15 Ultra er á 4 öxlum sem að veitir góðann stöðugleika í bæði kvikmyndaupptöku og almennri myndatöku. Myndbönd verða skýrari með minni hristing og myndatakan verður skörp þótt að síminn sé á ferð og flugi.

Öflug gervigreind til að auðvelda lífið

Með Google Gemini gervigreindinni og fjölþætt vinnslutækni Xiaomi á texta, hljóð, myndefni og annað getur Xiaomi 15 Ultra afbeislað sköpunargáfunni og auðveldað lífið í vinnu og leik.

AI ritari aðstoðar við textaskrif, hugmyndaflug og margt fleira. Gervigreindin getur tekið saman helstu upplýsingar fréttagreina, skipulagt glósur og jafnvel farið yfir stafsetningu í tölvupóstinum áður en þú sendir hann.

AI tal yfir í texta er skýjabundin gervigreindartækni sem umbreytir í rauntíma tali yfir í skrifaðann texta. Gervigreindin getur greint á milli hver segir hvað, tekið saman fundi og einnig samþýtt allt tal í eitt tungumál.

AI þýðandinn getur í rauntíma þýtt samskipti augliti til auglitis, myndsímtöl, símtöl og netfundi.

Með gervigreindarleit skilur snjallsíminn betur eftir hverju er verið að leita og skilar nákvæmlega þeim niðurstöðum sem vonast var eftir.

Gervigreindin getur umbreytt ljósmyndum af borgum, plöntum, náttúru og mörgu fleira í hreifimyndir sem hægt er að nota sem veggfóður símans.

Gemini Overlay

Gemini gervigreindin er aðgengileg án þess að þurfa að skipta á milli forrita

Gemini Live

Spjallaðu við Google Gemini og fáðu hugmyndir fyrir hvað sem veltur á huganum

Gemini Image Generation

Skapaðu einstakar myndir útfrá textaboðum

Gemini Extensions

Gemini er samþættanlegt með fjölda forrita og þjónustum

Hringla til að leita

Hringlaðu utanum það sem þú vilt finna betri upplýsingar um. Langar þér að vita hvar þú getur fengið þennann sólhatt (ekki að við þurfum svoleiðis á Íslandi)? Teiknaðu hring utanum hlutinn og Google sér um að leita að niðurstöðum tengdum honum.

Xiaomi 14T Pro ódýr Leica snjallsími með góðri myndavél

Raunverulegir litir í háskerpu

Sparneytinn og hraður WQHD+ skjár

Xiaomi 15 Ultra er með Liquid Display, það þýðir að skjárinn er lítillega boginn á öllum hliðum fyrir þægilegt grip og fallega hönnun. 

Always-active skjár

Sparneytin leið til að sjá allar mikilvægustu upplýsingarnar

Hægt er að velja úr fjölda mismunandi útlita á Always-active skjá og handvelja allar mikilvægustu upplýsingarnar sem birtast þó að síminn sé læstur. Skjárinn lækkar þá endurnýjunartíðni niður í allt að einungis 1Hz svo að þessi stilling eyði sem minnst af rafhlöðunni

Lætur þér lýða eins og þú sért á svæðinu

Kröftugir Dolby Atmos hátalarar

Hátalararnir á Xiaomi 15 Ultra eru einstaklega öflugir og gefa frá sér skýrt og raunverulegt hljóð. Þeir eru Dolby Atmos samhæfðir og sérstilltir með Snapdragon sound.

Magnaður kraftur með orkusparandi tækni

Öflugur örgjörvi til að keyra allt áfram

Xiaomi 15 Ultra er með markaðsleiðandi Snapdragon® 8 Elite örgjörvanum. Örgjörvinn skilar hröðum vinnsluhraða með lítið af hnökri og veseni. Örgjörvinn knýr áfram myndvinnsluna ásamt því að keyra áfram innbyggða gervigreind símans, auk þess auðvitað að vera leifturhraður að skipta á milli og opna forrit í símanum.

Löng rafhlöðuending

Allt að 25klst af myndbandsáhorfi

Xiaomi 15 Ultra er með stórri 5.410mAh rafhlöðu svo að gamanið hætti aldrei. Rafhlaðan ætti að duga auðveldlega út daginn. 

Hröð og örugg hleðsla

90W HyperCharge
80W þráðlaus HyperCharge

Xiaomi Surge rafhlöðutæknin er uppfærð og aðlagar nú hleðsluhraða eftir tíðni. Þá var einnig uppfært kubbasett sem skilar sér í lengri líftíma á rafhlöðunni.