Xiaomi Robot Vacuum 5 Pro ryksuguvélmenni m. sjálftæmingarstöð

Xiaomi Robot Vacuum 5 Pro ryksuguvélmenni m. sjálftæmingarstöð

159.990 kr.

Xiaomi Robot Vacuum 5 Pro er fullkomið ryksuguvélmenni sem ryksugar og moppar með allt að 20.000 Pa sogkrafti og 5200 mAh rafhlöðu fyrir allt að 140 mínútna vinnutíma. Með D-ToF lidar leiðsögn, RGB myndavélum og gervigreind til að greina yfir 200 hindranir, tryggir hún nákvæma og skilvirka hreinsun. Sjálfhreinsandi stöðin þvær moppurnar með 80°C heitu vatni, þurrkar þær með heitu lofti og tæmir rykhólfið, sem gerir viðhald áreynslulaust.

– 20.000 Pa sogkraftur
– 140 mín vinnutími á einni hleðslu
– Ryksugar og moppar með tvöföldum moppum
– Kemst yfir allt að 2 cm þröskulda
– 9.5 cm lágmarkshæð
– D-ToF lidar + RGB myndavélar + gervigreind
– Sjálfhreinsandi stöð með 80°C heitu vatni
– Gervigreind fyrir hindrunar- og óhreinindagreiningu
– Burstakerfi gegn flækjum
– 9.5 cm lágmarkshæð
– Stærð
– Stærð

Á lager

Vörunúmer: 65239 Categories , , Brand:

Upplýsingar

20.000 Pa sogkraftur
140 mín vinnutími á einni hleðslu

Vélin er með 5200 mAh rafhlöðu sem veitir allt að 140 mínútna samfelldan vinnutíma. Þegar rafhlaðan er komin niður fer vélin sjálf í sjálftæmingarstöðina til að hlaða sig og heldur svo áfram þaðan sem hún var komin.

Ryksugar og moppar með tvöföldum moppum

Vélin getur ryksugað, blautmoppað eða ryksugað og blautmoppað á sama tíma. Með tvöföldum útdraganlegum moppum sem lyftast sjálfkrafa um 15 mm yfir teppum og þrýstast niður, nær vélin að blautmoppa einstaklega vel og þrífa meðfram köntum.

Kemst yfir allt að 2 cm þröskulda

Ryksuguvélmennið getur klifið yfir hindranir og þröskulda sem eru allt að 2 cm háir.

9.5 cm lágmarkshæð

Með útdraganlegum ratsjá getur ryksuguvélmennið komist undir húsgögn með lágmarkshæð 9.5 cm.

D-ToF lidar + RGB myndavélar + gervigreind

Ryksuguvélmennið notar D-ToF lidar leiðsögn, úthljóðsskynjara, RGB og tvöfaldar IR myndavélar ásamt 3D punktavarpa til að kortleggja heimilið, greina hindranir og óhreinindi. Gervigreindarkerfið getur greint yfir 200 tegundir hindrana og 47 tegundir óhreininda til að beita viðeigandi hreinsunarstefnu.

Sjálfhreinsandi stöð með 80°C heitu vatni

Sjálfhreinsandi stöðin þvær moppupúðana með 80°C heitu vatni til að tryggja hreinleika. Eftir þvott þurrkar hún moppurnar með heitu lofti á um 2 klukkustundum til að koma í veg fyrir myglu og lykt.

Gervigreind fyrir hindrunar- og óhreinindagreiningu

Ryksuguvélmennið er búið gervigreindarkerfi sem getur greint yfir 200 tegundir hindrana og 47 tegundir óhreininda. Það getur greint rusl og beitt viðeigandi hreinsunarstefnu, svo sem að lyfta moppum fyrir fastan úrgang eða stöðva sog fyrir vökva.

Burstakerfi gegn flækjum

Aðalburstinn er með tveimur innbyggðum blöðum sem klippa hár til að koma í veg fyrir flækjur. Stór hliðarbursti tryggir einnig skilvirka hreinsun.

2.5 L rykpoki + 4 L hreinn vatnstankur + 4 L óhreinn vatnstankur

Sjálftæmingarstöðin sér um að tæma 0.29 L rykhólfið í 2.5 L rykpoka sem þarf að skipta um á um 75 daga fresti. Hún fyllir einnig á 80 ml vatnstank ryksugunnar úr 4 L hreinum vatnstanki stöðvarinnar og safnar óhreinu vatni í 4 L óhreinan vatnstank.

Stærð

Ryksuguvélmennið er Φ350 x 88 mm og vegur 3.97 kg. Sjálftæmingarstöðin er 36 cm á breidd, 57.2 cm á hæð og 47 cm á dýpt.

Fjarstýring í gegnum Xiaomi Home appið

Hægt er að stjórna Xiaomi Robot Vacuum 5 Pro í gegnum Xiaomi Home appið, sem styður sérsniðnar aðgerðir eins og tímasetta hreinsun, stillingu á bannsvæðum og lifandi mynd. Einnig er hægt að stjórna henni með raddskipunum í gegnum Amazon Alexa og Google Assistant.

Í kassanum fylgir:

  • Ryksuguvélmenni
  • Sjálftæmingarstöð
  • Rykpoki
  • Hreinn vatnstankur
  • Óhreinn vatnstankur
  • Sía
  • Hliðarbursti
  • Aðalbursti
  • Burstahlíf
  • Rafmagnssnúra
  • 2x moppupúðahaldarar
  • 2x moppupúðar

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur