69.990 kr. Original price was: 69.990 kr..41.994 kr.Current price is: 41.994 kr..
Á lager
Kortleggur heimilið og einfaldar heimilisþrifin á skipulagðan og nákvæman hátt
4.000Pa sogkraftur
Sogar upp óhreinindi svo sem dýrahár, ryk og mylsnu.
Margvíslegir skynjarar
Skannar og þekkir mismunandi umhverfi.
S10 ryksuguvélmennið frá Xiaomi er með LDS 360° laserskanna sem kortleggur heimilið á nákvæman hátt. Þegar heimilið er kortlagt ratar ryksuguvélmennið betur um sem skilar sér í hraðari og betri þrifum. Ryksuguvélmennið getur unnið í allt að 130 mínútur við venjulega stillingu á sogkrafti og blautmoppun.
Ef ryksugan verður batteríslaus í miðjum þrifum fer hún sjálfkrafa aftur í hleðslustöðina, hleður sig og fer síðan aftur af stað frá þeim punkti sem hún hætti á.
Hægt er að blautmoppa samhliða ryksugun.
Fjölbreyttir möguleikar í þrifum
Með því að tengja S10 ryksuguvélmennið við Xiaomi Home appið er hægt að setja inn bannsvæði, stilla sogkraft og vatnsmagn, hreinsa afmarkað svæði, stilla á hvaða tímum hún á að ryksuga o.fl. Hægt er að setja ryksuguna af stað í appinu eða með því að ýta á takka ofan á henni.
Aðskilur rými
Skiptir heimilinu sjálfkrafa upp í mismunandi herbergi
Kortleggur mismunandi hæðir
Vistar kort af mörgum hæðum og skiptir á milli
Svæðishreinsun
Veldu það svæði eða herbergi sem ryksugan á að þrífa
Sýndarveggir/bannsvæði
Afmarkaðu svæði sem ryksugan á ekki að þrífa
Skírðu herbergin
Gefðu hverju rými sitt nafn
Kröftugur 4.000Pa sogkraftur
S10 ryksuguvélmennið er með 4.000Pa sogkraft sem sogar upp óhreinindi svo sem dýrahár, ryk og mylsnu. Hægt er að velja á milli 4 sogkraftsstillinga eftir aðstæðum. Silent Mode hentar vel þegar lítið er um ryk og drullu eða þegar þú vilt hafa næði á meðan vélin þrífur. Turbo Mode hentar svo vel þegar mikið ryk og rusl er á gólfunum.
Rafstýrður vatnstankur stjórnar vatnsnotkun
Vatnstankurinn á S10 er rafstýrður þannig að hægt er að velja á milli 3 mismunandi stillinga sem stýra hversu mikið vatn er notað í blautmoppun. Þannig er t.d hægt að nota minna vatn á parketi en meira á flísum.
Xiaomi Robot Vacuum S10
S10 ryksuguvélmennið fer skipulega yfir heimilið í sikksakk rútínu. Þegar ryksugan blautmoppar er hægt að velja á milli S-ferils sem er fljótlegur og skilvirkur eða Y-ferils sem líkir eftir venjulegri skúringu, þar sem vélin fer til vinstri og hægri til skiptis og getur fjarlægt erfiðari bletti.
Ryksugan kemst auðveldlega undir flest húsgögn svo sem rúm og sófa.
Hliðarbursti
Sérstakur hliðarbursti gerir ryksugunni kleift að ná vel út í öll horn og í kringum borð- og stólfætur
Ármúli 21
mibudin@mibudin.is
537-1800
Virkir dagar: 11:00 – 18:00
Laugardagar: 12:00 – 16:00
Sunnudagar: Lokað
Fylgdu okkur
Allt efni á vef þessum er í eigu Mii ehf og er verndað af ákvæðum höfundalaga, þ.m.t myndir og texti. Án samþykkis er öll notkun á efni vefsins óheimil. Notkun efnis getur haft bóta- og refsiábyrgð í för með sér.
© 2024, Mi búðin. Viðurkenndur sölu- og dreifingaraðili Xiaomi á Íslandi.