49.990 kr.
Xiaomi Watch 2 Pro BT snjall- og heilsuúrið er stílhreint og öflugt úr með Wear OS frá Google, sem býður upp á fjölbreytta snjalleiginleika og yfirgripsmikla heilsuskynjun. Með björtum 1.43″ AMOLED skjá og allt að 65 klst rafhlöðuendingu er þetta úr fullkomið fyrir daglega notkun og æfingar. Það er hannað til að halda þér tengdum og upplýstum um heilsuna þína, allt í einum pakka.
Upplýsingar
Úrið er með bjartan 1.43″ AMOLED skjá með 466 x 466 pixla upplausn (326 PPI) og allt að 600 nits birtu. Skjárinn styður Always-on Display, sem tryggir að mikilvægar upplýsingar séu alltaf sýnilegar.
Með 495 mAh Lithium-Polymer rafhlöðu býður Xiaomi Watch 2 Pro BT upp á allt að 65 klst rafhlöðuendingu við dæmigerða notkun. Hleðslan er segulmagnaðir og tekur um 45 mínútur að fullhlaða úrið.
Úrið styður yfir 150 íþróttastillingar og býður upp á allan daginn íþróttagreiningu. Það er einnig með margvíslega heilsuskynjara, þar á meðal sjónrænan hjartsláttarskynjara, SpO₂ mælingu, svefnmælingu, streitumælingu og líkamssamsetningarmælingu.
Xiaomi Watch 2 Pro BT keyrir á Wear OS frá Google (Android Wear OS 3.5, með uppfærslu í Wear OS 4 í sumum svæðum). Þetta veitir aðgang að Google Assistant, Google Wallet (Google Pay), Google Maps og fjölda annarra snjallforrita og tilkynninga úr símanum þínum.
Knúið af öflugum Qualcomm Snapdragon W5+ Gen 1 (4 nm) örgjörva, tryggir úrið hraðvirka og hnökralausa notkun. Með 2GB vinnsluminni og 32GB innra geymsluplássi hefurðu nægt pláss fyrir forrit og tónlist.
Með 5 ATM vatnsheldni er úrið hentugt til að fara í sturtu, ganga í rigningu og synda. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að taka úrið af þér við daglegar athafnir sem tengjast vatni.
Úrið er með innbyggðum hátalara og hljóðnema, sem gerir þér kleift að taka einföld Bluetooth símtöl beint úr úrinu. Þú getur einnig notað Google Assistant fyrir raddstýringu og geymt tónlist til að hlusta á án síma.
Með tvíbands GNSS (L1 + L5) stuðningi fyrir GPS, GLONASS, Galileo, BeiDou og QZSS, veitir úrið nákvæma staðsetningu fyrir útivist og íþróttir. Þetta er mikilvægt fyrir hlaupara, göngufólk og aðra sem vilja fylgjast nákvæmlega með leiðum sínum.
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar
Einstaklega snjallt heilsuúr með Google WearOS
Fáðu snilldina af Google öppum beint á úlnliðinn
Knúið áfram af Snapdragon® W5+ Gen 1 örgjörva
Ofursnöggur og sparneytinn örgjörvi
Uppfærð mæling á heilsu, útivist og íþróttum
Fjölhæf greining á hjartslætti, blóðsúrefnismettun, svefni og fleira
Tenging við 5 gervihnattarkerfi með dual-band GNSS
Fylgstu nákvæmlega með útihlaupum og göngutúrum
1.43″ AMOLED skjár með Always-on-Display
Hægt að velja úr fjölda mismunandi skífa eftir tilefni
AMOLED skjár
Kristaltær
Bjartur og nákvæmur 1.43″ AMOLED skjár þar sem allt það mikilvægasta sést auðveldlega.
Upplausn
466×466
PPI
326
Klassísk snúningskrúna
Tveir hliðartakkar
Xiaomi Watch 2 Pro heldur í hefðirnir og er með svipaðri snúningskrúnu eins og þekkist á hefðbundnum klassískum úrum. Með snúninskrúnunni er hægt að fletta í gegnum allt það sem úrið hefur uppá að bjóða auk þess að geta notað snertiskjá úrsins. Að auki snúningskrúnunnar eru á úrinu tveir hliðartakkar sem bjóða uppá fjölbreytta virkni og aukin þægindi.
Google Play
Krafturinn úr Google forritum á úlnliðnum
Google WearOS stýrikerfið býður uppá nánast endalausa möguleika en í gegnum Google Play er aðgangur að yfir 200 forritum svo að þú getir lifað þínu snjallasta lífi
Fleiri sniðugar og þægilegar lausnir






Snapdragon® W5+ Gen 1 4nm flaggskips örgjörvi
Örgjörvinn í úrinu er einstaklega kröftugur en á sama tíma sparneytinn. Að skruna í gegnum mörg mismunandi forrit, hefja heilsumælingar, æfingar eða hvað sem er er einstaklega snögggert og saumlaus notendaupplifun. Á úrinu er einnig stór 32GB geymsla þar sem hægt er að geyma tónlist, forrit eða úrskífur
Vinnsluminni
2GB
Geymslupláss
32GB
Kraftur út daginn og miklu meira til
Samvinna sparneytins örgjörva og stórri rafhlöðu skilar sér í lengri endingu rafhlöðunnar sem endist út daginn og miklu meira til.
Allt að
65 klukkustundir
Yfir 150 íþróttastillingar
Xiaomi Watch 2 Pro er með yfir 150 innbyggðar íþróttastillingar svo að þú getir vaktað nákvæmlega heilsuna og frammistöðu þína í gegnum æfingarnar. T.d ef þú ferð í tennis þá telur úrið hversu oft þú gafst upp, hversu oft þú sveiflaðir með bakhendinni o.s.frv. Eftir að æfingu er lokið sérð þú samantekt af æfingunni og hversu langa hvíld er mælt með að taka eftir átökin.
Innbyggt GPS með tengingu við 5 gervihnattarkerfi
Innbyggt dual-band GPS í Xiaomi Watch 2 Pro eykur nákvæmni mælinga á göngum og hlaupum til muna. Mælingar yfir flókin landsvæði verða leikur einn.
Stingdu þér til sunds
Xiaomi Watch 2 Pro er með 5ATM vatnsvörn sem þýðir að þú getir stungið þér til sunds með úrið á úlnliðnum. Hægt er að velja úr nokkrum mismunandi sundæfingar og þá getur úrið talið fyrir þig hversu mörg sundtök voru tekin, hversu margar ferðir voru syntar og hversu mörgum kaloríum var brennt.
Mæling á líkamssamsetningu
Með viðnámsskynjara sem mælir í gegnum rafsvið líkamans getur Xiaomi Watch 2 Pro sýnt alls konar heilsufarsupplýsingar, svo sem fituprósentu líkamans, efnaskiptahraða og saltmagn í beinum. Með þessari mælingu er hægt að fá góða yfirsýn og aukinn skilning á eigin líkama auk þess að geta fylgst vel með framförum.
Fáðu betri yfirsýn og sofðu betur
Svefn er eitt það allra mikilvægasta sem þarf að huga að í heilsunni. Xiaomi Watch 2 Pro getur hjálpað til að greina hvernig svefnin er, hversu lengi er sofið og í hvaða svefnstigum svefninn er. Á sama tíma mælir úrið hjartslátt, blóðsúrefnismettun og gæði öndunar.
Öndunaræfingar
Úrið leiðir þig í gegnum æfingu þar sem þú nærð dýpri öndun og meiri slökun
Hjartsláttur allann sólarhringinn
Úrið mælir hjartsláttinn allann sólarhringinn og getur sent tilkynningar þegar óreglulegur hjartsláttur er numinn
Blóðsúrefnismettun Sp0₂
Mælir hversu mikið súrefni er að flytjast með rauðum blóðkornum, getur sent tilkynningar ef of lágt stig er numið
Fylgist með tíðarhringnum
Fylgist vel með og vaktar tíðarhringinn og spáir fyrir hvenær hann endar og byrjar á ný
Fylgist með stressi
Vaktar stress stig, hjálpar til við núvitund og eykur skilning á líkamsástandi
Veldu þinn stíl
Nánast endalaust úrval af flottum úrskífum sem er hægt að skipta um eftir tilefni og tilfinningu
Xiaomi Watch 2 Pro kemur með yfir 20 innbyggðum flottum úrskífum sem er hægt að velja úr. Hvort sem þú vilt sýna og sjá klassískar úrskífur eða tæknilegri heilsuskífur þá er valið í þínum höndum.












