Yeelight Ultra Slim 400C snjall loftljós

Yeelight Ultra Slim 400C snjall loftljós

19.990 kr.

Yeelight Ultra Slim 400C er snjallt loftljós sem er hannað til að veita fjölbreytta lýsingu með bæði stillanlegu hvítu ljósi og 16 milljón lita baklýsingu. Það er mjög þunnt, aðeins 25mm þykkt, og hentar vel fyrir ýmsar stofur og rými þar sem þarf góða og snjalla lýsingu.

– 2.000 lm, 2.700-6.500 K
– Appstýring, raddstýring, Wi-Fi, BLE
– 25.000 klst endingartími
– 22-24W orkunýting
– IP54 ryk- og vatnsþolið

Á lager

Oft keypt með

Yeelight Remote Control

  • Fjarstýring sem virkar með snjallperum og ljósum frá Yeelight.
  • Einnig er hægt að para fjarstýringuna við flest ljós frá Xiaomi.

Yeelight Smart Wireless Dimmer Ljósrofi

  • Þú getur kveikt og slökkt ljósið, breytt Kelvin stigi ljóssins o.fl.
  • Virkar með Yeelight loftljósaseríunni, Yeelight Crystal Pendant Light og Yeelight Smart Curtain Motor.
  • Tengist við Yeelight appið og Xiaomi Home
  • Þarfnast Mesh kerfi eða BLE gateway
Vörunúmer: 220299
Strikamerki: 6924922220299

Upplýsingar

2.000 lm, 2.700-6.500 K

Ljósið gefur frá sér allt að 2.000 lúmen við 4.000 Kelvin, sem tryggir bjarta og góða lýsingu. Hægt er að stilla litahitastigið frá 2.700 Kelvin (hlýhvítu) upp í 6.500 Kelvin (dagsbirtu), sem gerir þér kleift að velja rétta birtu fyrir hvert tilefni.

Appstýring, raddstýring, Wi-Fi, BLE

Hægt er að stjórna ljósinu á ýmsa vegu, meðal annars í gegnum Yeelight appið og Xiaomi Home appið. Það styður einnig raddstýringu í gegnum Google Home, Apple HomeKit, Amazon Alexa og Samsung SmartThings. Tengingin er þráðlaus í gegnum Wi-Fi (2.4GHz) og Bluetooth (BLE 4.2).

25.000 klst endingartími

Loftljósið er hannað til að endast lengi, með áætlaðan endingartíma upp á um 25.000 klukkustundir. Þetta þýðir að þú getur notið góðrar lýsingar í mörg ár án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því að skipta um perur.

22-24W orkunýting

Loftljósið notar 22-24W afli, sem gerir það orkunýtið og umhverfisvænt. Þetta hjálpar til við að halda rafmagnskostnaði niðri á sama tíma og það veitir framúrskarandi lýsingu.

IP54 ryk- og vatnsþolið

Með IP54 vottun er loftljósið ryk- og skordýraþolið, auk þess að vera vatnsþolið. Þetta gerir það hentugt til notkunar í rýmum eins og baðherbergjum og eldhúsum þar sem raki getur verið til staðar.

Í kassanum fylgir:

  • Yeelight Ultra Slim 400C snjallt loftljós
  • Leiðbeiningabæklingur

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Yeelight ofurþunn og snjöll loftljós

Lífgaðu upp á rýmið með mjúkri og fallegri birtu sem gleður augun. 

CRI Ra95

Snjöll stjórnun

Auðveld uppsetning

Verndar augun

Minimalísk ofurþunn hönnun

Loftljósið einkennist af einstaklega fágaðri minimalískri hönnun. Ljósið fellur vel við rýmið sem það er í og er auðvelt í uppsetningu. Hægt er að stjórna birtu- og hitastigi og þar að auki er baklýsing sem er hægt að stjórna lit til að mynda skemmtilega stemmingu. Loftljósið er þar að auki með IP54 vörn og er því algjörlega óhætt að koma því fyrir inná baðherbergjum og fleiri stöðum þar sem gæti verið raki og ryk til staðar.

Stýrðu því alveg eins og þú vilt

Snjall loftljósin frá Yeelight eru stillanleg með tengingu við app í símanum, raddstýringu Google Assistant eða Amazon Alexu, með Yeelight fjarstýringunni eða Yeelight dimmer (fjarstýring og dimmer selt sér) eða einfaldlega rofanum heima hjá þér. Loftljósið er einnig hægt að stjórna í gegnum Apple HomeKit eða Samsung SmartThings.

Fallegir litir fyrir hvaða tilefni sem er

Á Yeelight loftljósunum er Ambient baklýsing þar sem hægt er að velja úr yfir 16 milljón litum til að mynda skemmtilega ljósastemningu fyrir hvaða tilefni sem er. Hægt er að hafa bæði baklýsinguna og loftljósið í gangi eða hafa slökkt á ljósinu og þá er baklýsingin einungis í gangi. 

Ljúf lýsing á lúin augu

Loftljósið fer einstaklega vel með lúin augu. Hægt er að stilla á tungsljós-ham sem að minnkar birtustigið og er frábært í svefnherbergið. 

Tengdar vörur