229.990 kr.
Xiaomi 15 Ultra er öflugur 5G snjallsími með Qualcomm Snapdragon 8 Elite örgjörva og 6.73″ WQHD+ AMOLED skjá. Hann er með háþróað Leica fjórfalt myndavélakerfi og 5.410 mAh rafhlöðu með hraðhleðslu. Síminn býður upp á 16GB vinnsluminni og 512GB geymslupláss, sem tryggir snögga og skilvirka notkun fyrir allar þínar þarfir.
Upplýsingar
Xiaomi 15 Ultra er með 6.73″ WQHD+ (3200×1440) AMOLED skjá með 1-120Hz LTPO endurnýjunartíðni, sem tryggir mýkri hreyfingar og betri rafhlöðunýtingu. Hámarksbirtustig er allt að 3200 nits, sem gerir skjáinn auðlesanlegan jafnvel í bjartri sól. Skjárinn styður HDR10+ og Dolby Vision, er með 522 ppi þéttleika og 1920Hz PWM/DC dimming til að minnka flökt. Hann er verndaður með Xiaomi Shield Glass 2.0.
Xiaomi 15 Ultra er knúinn af Snapdragon® 8 Elite (3nm) 5G örgjörva sem skilar mjög miklum afköstum í daglegri notkun, leikjum og myndvinnslu, en heldur jafnframt orkunotkun niðri. 3nm framleiðsluferlið hjálpar með betri nýtni og minna hitamyndun undir álagi. Þú færð líka öfluga gervigreindarvinnslu og hraða tengingu með 5G fyrir streymi, niðurhal og netleiki.
Með 16GB vinnsluminni (LPDDR5X, allt að 8533 Mbps) og 512GB geymsluplássi (UFS 4.1) er síminn snöggur að opna og skipta á milli forrita. Hann er sérstaklega góður í þyngri vinnslu, til dæmis þegar unnið er með stór skjöl, forrit eða 4K/8K myndbönd.
Xiaomi 15 Ultra er með háþróað Leica fjórfalt myndavélakerfi sem skilar framúrskarandi myndgæðum í öllum aðstæðum. OIS tækni hjálpar til við að minnka titring og truflun í myndatöku. Síminn getur tekið upp 8K myndbönd á 30fps og 4K á 120fps. Selfie myndavélin er 32MP og tekur upp 4K myndbönd á 60fps.
Xiaomi 15 Ultra er með 5.410 mAh (typ.) Xiaomi Surge Battery og styður 90W HyperCharge hraðhleðslu í gegnum USB-C. Einnig er stuðningur við 80W þráðlausa HyperCharge hleðslu. Hægt er að fullhlaða rafhlöðuna frá 0-100% á u.þ.b. ~59 mínútum.
Wi-Fi 7 + Wi-Fi Direct og Miracast. Bluetooth 6.0 með Dual-Bluetooth og stuðningi við algenga hljóðkódeka (m.a. SBC/AAC/aptX/LDAC/LHDC). Hægt er að hafa tvö SIM-kort í símanum í einu (nano-SIM + nano-SIM eða nano-SIM + eSIM). NFC er til staðar fyrir greiðslur og pörun tækja. Staðsetningartækni er tvíband GPS L1+L5 + Galileo/GLONASS/BeiDou/QZSS/NavIC. Aðrir nytsamlegir hlutir eru IR blaster (fjarstýring) og ultrasonic fingrafaralesari í skjá ásamt andlitsopnun.
IP68 ryk- og vatnsvörn gerir símann betur í stakk búinn fyrir daglega notkun og óvæntar aðstæður. Vottunin þýðir að tækið er rykþétt og hefur verið prófað fyrir vatnsþol samkvæmt IEC 60529 staðli, þannig að þú þarft síður að hafa áhyggjur af regni, skvettum eða ryki á ferðinni. Gott er að kynna sér ábyrgðarskilmála varðandi högg- og vatnstjón. Sjá nánari upplýsingar um IP vottun.
Hátalararnir eru stereo og styðja Dolby Atmos®, sem gefur breiðari og „meira umlykjandi“ hljóðmynd, sérstaklega í myndböndum og leikjum. Einnig er Hi-Res Audio og Hi-Res Audio Wireless stuðningur sem er gott fyrir betri gæði með heyrnartólum eða símatengdum hátölurum. Auk þess er 4-mic hljóðnema-array sem er nytsamlegt fyrir upptökur og símtöl.
Xiaomi HyperAI (í HyperOS 2): Inniheldur m.a. AI Writing (skrif/leiðrétting/samantektir), AI Speech Recognition (tal→texti með raddgreiningu, samantekt og þýðingu) og AI Interpreter (rauntímaþýðing fyrir samtöl, símtöl eða netfundi). Mynd- og myndbandsverkfæri (HyperAI): AI Erase Pro (fjarlægir óæskilega hluti/fólk), Reflection Removal, AI Image Expansion (stækkar bakgrunn) og AI Film (býr til „myndband“ úr bestu skotum með tónlist). Google Gemini: Gemini er innbyggður aðstoðarmaður, með Gemini Overlay og Extensions (getur sótt upplýsingar og framkvæmt aðgerðir yfir mörg öpp/þjónustur í einni beiðni). Hringla til að leita (Circle to Search með Google): Leyfir þér að hringla/merkja það sem er á skjánum til að leita strax, án þess að skipta um app.
Xiaomi HyperOS er stýrikerfið/hugbúnaðarhjúpurinn sem Xiaomi notar á símunum sínum (í stað MIUI) og er hannað til að vera hraðvirkara, sléttara og meira „cross-device“ – þ.e. vinna betur með öðrum Xiaomi tækjum. Helstu atriði í HyperOS 2 (eins og á Xiaomi 15 Ultra) eru oft lýst með þremur „kjarna“ hlutum: HyperCore: kerfis-hagræðing fyrir betri svörun, flæði og orkunýtni (rafhlaða/hiti). HyperConnect: betri tenging milli tækja og vistkerfa (sími–spjaldtölva–úr–o.fl.). HyperAI: innbyggðir AI-eiginleikar (t.d. skrif, þýðingar, raddvinnsla og mynd-/myndbandsverkfæri) sem eru samþættir í kerfið. Xiaomi leggur líka áherslu á öryggi og „smooth“ viðmót/animation í HyperOS 2.
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar
16+512GB | Fjórfalt Leica myndavélakerfi | 200MP Telephoto linsa | Snapdragon® 8 Elite örgjörvi | 6.73″ WQHD+ skjár | Góð rafhlöðuending | Xiaomi HyperOS 2 stýrikerfi
Ljós er kjarni ljósmyndunar, það umbreytir augnablikum í minningar og skapar myndir með dýpt, litadýrð og áþreifanlega sögu
Leica og Xiaomi halda áfram flottu samstarfi í Xiaomi 15 línunni, Leica Summilux sjónlinsan er uppfærð frá fyrri kynslóðum og er að endurskilgreina hvað myndataka í snjallsímum getur gert. 15 línan er með öflugum Snapdragon 8 Elite örgjörva, nýju uppfærðu stýrikerfi og innbyggðri gervigreind.
Klassískt útlit



Fjórfalt myndavélakerfi
Sigraðu nóttina
Mögnuð myndataka við lág birtuskilyrði
ƒ/1.63 Summilux linsa
Háskerpu myndir í ljósi og myrkri
1-tommu Leica aðalmyndavél
1/1.4″ stór myndflaga
Mögnuð dýptarskynjun
Leica 200MP telephoto linsa
200MP telephoto linsan skarar framúr í að skapa dýpt og raunveruleika í bæði myndatöku og mynbandsupptökum. Linsan hleypir einnig einstaklega miklu ljósi inn svo að litir eru skarpir og viðfangsefni myndarinnar eru skýr. Ljósinntakan er 136% meiri en á fyrri kynslóð (Xiaomi 14 Ultra).
Fyrir faglega eftirvinnslu
10-bit Log myndbandsupptaka í öllum brennivíddum
Xiaomi 15 Ultra styður 4K 60fps 10-bit Log myndbandsupptöku í öllum brennivíddum. Xiaomi 15 Ultra er ACES Product Partner og býður uppá faglega eftirvinnslu myndbandsupptöku og sérstaklega góða litaleiðréttingu og breytingu.
Nýjir möguleikar
4K 120fps
Xiaomi 15 Ultra styður 4K 120fps slow motion upptöku á 23mm aðalmyndavélinni og 100mm víðlinsunni.
Stöðugleiki í upptöku og myndatöku
Ultra OIS stöðugleiki
Aðalmyndavélin á Xiaomi 15 Ultra er á 4 öxlum sem að veitir góðann stöðugleika í bæði kvikmyndaupptöku og almennri myndatöku. Myndbönd verða skýrari með minni hristing og myndatakan verður skörp þótt að síminn sé á ferð og flugi.
Öflug gervigreind til að auðvelda lífið
Með Google Gemini gervigreindinni og fjölþætt vinnslutækni Xiaomi á texta, hljóð, myndefni og annað getur Xiaomi 15 Ultra afbeislað sköpunargáfunni og auðveldað lífið í vinnu og leik.
AI ritari aðstoðar við textaskrif, hugmyndaflug og margt fleira. Gervigreindin getur tekið saman helstu upplýsingar fréttagreina, skipulagt glósur og jafnvel farið yfir stafsetningu í tölvupóstinum áður en þú sendir hann.
AI tal yfir í texta er skýjabundin gervigreindartækni sem umbreytir í rauntíma tali yfir í skrifaðann texta. Gervigreindin getur greint á milli hver segir hvað, tekið saman fundi og einnig samþýtt allt tal í eitt tungumál.
AI þýðandinn getur í rauntíma þýtt samskipti augliti til auglitis, myndsímtöl, símtöl og netfundi.
Með gervigreindarleit skilur snjallsíminn betur eftir hverju er verið að leita og skilar nákvæmlega þeim niðurstöðum sem vonast var eftir.
Gervigreindin getur umbreytt ljósmyndum af borgum, plöntum, náttúru og mörgu fleira í hreifimyndir sem hægt er að nota sem veggfóður símans.
Gemini Overlay
Gemini gervigreindin er aðgengileg án þess að þurfa að skipta á milli forrita
Gemini Live
Spjallaðu við Google Gemini og fáðu hugmyndir fyrir hvað sem veltur á huganum
Gemini Image Generation
Skapaðu einstakar myndir útfrá textaboðum
Gemini Extensions
Gemini er samþættanlegt með fjölda forrita og þjónustum
Hringla til að leita
Hringlaðu utanum það sem þú vilt finna betri upplýsingar um. Langar þér að vita hvar þú getur fengið þennann sólhatt (ekki að við þurfum svoleiðis á Íslandi)? Teiknaðu hring utanum hlutinn og Google sér um að leita að niðurstöðum tengdum honum.
Raunverulegir litir í háskerpu
Sparneytinn og hraður WQHD+ skjár
Xiaomi 15 Ultra er með Liquid Display, það þýðir að skjárinn er lítillega boginn á öllum hliðum fyrir þægilegt grip og fallega hönnun.
Always-active skjár
Sparneytin leið til að sjá allar mikilvægustu upplýsingarnar
Hægt er að velja úr fjölda mismunandi útlita á Always-active skjá og handvelja allar mikilvægustu upplýsingarnar sem birtast þó að síminn sé læstur. Skjárinn lækkar þá endurnýjunartíðni niður í allt að einungis 1Hz svo að þessi stilling eyði sem minnst af rafhlöðunni
Lætur þér lýða eins og þú sért á svæðinu
Kröftugir Dolby Atmos hátalarar
Hátalararnir á Xiaomi 15 Ultra eru einstaklega öflugir og gefa frá sér skýrt og raunverulegt hljóð. Þeir eru Dolby Atmos samhæfðir og sérstilltir með Snapdragon sound.
Magnaður kraftur með orkusparandi tækni
Öflugur örgjörvi til að keyra allt áfram
Xiaomi 15 Ultra er með markaðsleiðandi Snapdragon® 8 Elite örgjörvanum. Örgjörvinn skilar hröðum vinnsluhraða með lítið af hnökri og veseni. Örgjörvinn knýr áfram myndvinnsluna ásamt því að keyra áfram innbyggða gervigreind símans, auk þess auðvitað að vera leifturhraður að skipta á milli og opna forrit í símanum.
Löng rafhlöðuending
Allt að 25klst af myndbandsáhorfi
Xiaomi 15 Ultra er með stórri 5.410mAh rafhlöðu svo að gamanið hætti aldrei. Rafhlaðan ætti að duga auðveldlega út daginn.
Hröð og örugg hleðsla
90W HyperCharge
80W þráðlaus HyperCharge
Xiaomi Surge rafhlöðutæknin er uppfærð og aðlagar nú hleðsluhraða eftir tíðni. Þá var einnig uppfært kubbasett sem skilar sér í lengri líftíma á rafhlöðunni.




