IP (e. ingress protection code) vottun eða IP staðall er alþjóðlegur mælikvarði ákvarðaður af IEC. Staðallinn mælir vörn raftækja gegn ryki og vatni.
IP stendur fyrir heiti vottuninnar, Ingress Protection.
Fyrri tölustafur stendur fyrir rykvörn.
Seinni tölustafur stendur fyrir vatnsvörn.
Vatnsvörn:
IPX0 Engin vörn
IPX1 Vörn gegn dropum
IPX2 Vörn gegn dropum
IPX3 Vörn gegn svita og skvettu
IPX4 Vörn gegn svita og skvettu
IPX5 Takmörkuð vatnsvörn
IPX6 Takmörkuð vatnsvörn
IPX7 Vatnsvörn, niður í 1m vatnsdýpi í 30 mín
IPX8 Vatnsvörn, allt að 3m vatnsdýpi
Vatnsvörn er mæld miðað við ferksvatn, saltvatn eða aðrir vökvar gætu haft skaðleg áhrif. Vatnsvörn getur dvínað með tímanum eða við tæringu á raftækjum. Þrátt fyrir vatnsvörn taka framleiðendur almennt ekki ábyrgð á vatnsskemmdum.
Rykvörn:
IPXX Engin gögn úr prófunum
IP0X Engin vörn
IP1X Vörn gegn hlutum þykkari en 50mm, eins og handabaki
IP2X Vörn gegn hlutum þykkari en 12.5mm, eins og fingrum
IP3X Vörn gegn hlutum þykkari en 2.5mm, eins og verkfærum eða vírum
IP4X Vörn gegn hlutum þykkari en 1mm, eins og flestum vírum, mjóum skrúfum
IP5X Takmörkuð rykvörn
IP6X Rykvörn
Ármúli 21
mibudin@mibudin.is
537-1800
Virkir dagar: 11:00 – 18:00
Laugardagar: 12:00 – 16:00
Sunnudagar: Lokað
Fylgdu okkur
Allt efni á vef þessum er í eigu Mii ehf og er verndað af ákvæðum höfundalaga, þ.m.t myndir og texti. Án samþykkis er öll notkun á efni vefsins óheimil. Notkun efnis getur haft bóta- og refsiábyrgð í för með sér.
© 2024, Mi búðin. Viðurkenndur sölu- og dreifingaraðili Xiaomi á Íslandi.