HOTO AutoCare loftdæla og handryksuga

HOTO AutoCare loftdæla og handryksuga

19.990 kr.

HOTO AutoCare Air Duster & Vacuum er lipur loftdæla og handryksuga í einu, hönnuð fyrir bílinn, heimilið og skrifborðið. Með allt að 20.000 Pa sogkrafti og 50 m/s lofthraða annaðhvort blæs hún ryki frá eða sýgur það upp – fljótt og snyrtilega. Fimm aukahlutir og 3 stillingar gera þrifin markviss, hvort sem um er að ræða lyklaborð, loftræstigrindur eða sprungur í sætum.

- 20.000 Pa sogkraftur
- Allt að 30 mín vinnutími
- 5 aukahlutir fylgja með
- 4‑í‑1 virkni
- 50 m/s lofthraði
- 3 stillingar
- HEPA síun
- 352 g þyngd
- Hlaðið með USB‑C
- 55 × 55 × 169 mm

Á lager

Upplýsingar

20.000 Pa sogkraftur

Tækið skilar allt að 20.000 Pa sogkrafti og 50 m/s lofthraða, þannig að það nær sandi, hárum og fíngerðu ryki bæði af sléttu yfirborði og úr þröngum hornum. Veldu milli Boost, Standard og Eco eftir því hvort þú vilt hámarksafköst eða lengri vinnutíma.

Allt að 30 mín vinnutími

Innbyggð 2.500 mAh rafhlaða tryggir allt að 30 mínútna vinnutíma á einni hleðslu, þannig að auðvelt er að klára bílinn eða vinnustaðinn í einni lotu. Athugið að vinnutími fer eftir stillingu og sogkrafti.

5 aukahlutir fylgja með

Með vörunni fylgir 5 aukahlutir: 2‑í‑1 aðalbursti, rykstútur, sprungustútur, mjór stútur til að pumpa í dýnur og sundlaugarleikföng og mjór blástursstútur. Að auki er rykhólf, lítill hreinsibursti, burðarpoki og hleðslusnúra – allt sem þarf til að hefja þrifin strax.

4‑í‑1 virkni

Eitt tæki leysir fjóra verkþætti: ryksugun, loftdælingu til að blása ryk í burtu, pumpa í dýnur, bolta o.s.frv. og lofttæmingu. Fjölhæfur hjálpari fyrir bílinn, skrifstofuna og heimilið.

50 m/s lofthraði

Öflug loftdæling blæs ryk úr lyklaborðum, loftræstigrindum og saumum í sætum. Fullkomið til að losa óhreinindi áður en þau eru sogin upp.

3 stillingar

Veldu Eco fyrir lengri notkun, Standard fyrir jafnvægi og Boost þegar þú þarft hámarkskraft. Einfaldur takki gerir skiptin skjót og þægileg.

HEPA síun

Háþéttni HEPA sía í rykhólfinu fangar fínt ryk og hjálpar til við hreinna andrúmsloft á meðan þú þrýfur. Auðvelt er að taka síuna úr til reglulegrar umhirðu.

352 g þyngd

Létt hönnun minnkar þreytu í höndunum og gerir tækið þægilegt í notkun í lengri tíma, heima eða á ferðinni.

Hlaðið með USB‑C

Hleðst með USB‑C, þannig að þú getur notað sömu snúru og í önnur tæki. Hleðslan tekur um 2.5klst og fylgir snúran með. Þægilegt hvort sem þú ert heima, í vinnu eða á ferðinni.

55 × 55 × 169 mm

Nett, sívalningshönnun sem fer auðveldlega í tösku, skúffu eða hanskahólf og er því alltaf við höndina þegar þörf er á skjótum þrifum.

Í kassanum fylgir:

* HOTO AutoCare Air Duster & Vacuum
* Sprungustútur
* 2‑í‑1 aðalbursti
* Mjór blástursstútur
* Mjór stútur til að pumpa í dýnur og sundlaugarleikföng
* Rykstútur
* Rykhólf
* Lítill hreinsibursti
* Burðarpoki
* Hleðslusnúra

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur