Tækjatrygging er valkvæð trygging sem þú getur bætt við þegar þú kaupir vöru í Mi búðinni. Tryggingin er veitt í samstarfi við tryggingafélagið Vörð og nær yfir atriði sem hefðbundin framleiðandaábyrgð gerir ekki — til dæmis skyndileg óhöpp, innri bilanir og þjófnað. Tryggingin er keypt samhliða kaupum á vörunni og gildistíminn fer eftir vöruflokki.
Hér eru helstu upplýsingar um Tækjatrygginguna frá Verði tryggingum (skilmáli E-50). Þetta eru ekki tæmandi upplýsingar og þú getur kynnt þér trygginguna nánar með því að smella hér.
Tækjatrygging er í boði samhliða kaupum á nýju tæki hjá Mi búðinni. Tryggingin tekur til þess tækis sem tilgreint er á vörureikningi, ásamt þeim fylgihlutum sem fylgdu tækinu í umbúðunum sem það var afhent í.
Tryggingin gildir hvar sem er í heiminum.
Iðgjaldið er greitt í einu lagi við kaup á tækinu hjá Mi búðinni.
Tryggingin gildir frá kaupdegi í það tímabil sem tilgreint er á vörureikningi. Hún fellur niður án endurgreiðslu iðgjalds ef:
| Atriði | Tækjatrygging | Heimilistrygging | Neytendalög |
|---|---|---|---|
| Óhapp | |||
| Bilun og framleiðslugalli | |||
| Eldsvoði | |||
| Vatn og vökvi | |||
| Þjófnaður | |||
| Eigin áhætta | |||
| Engar afskriftir |
Tryggingin bætir tjón vegna skyndilegs og ófyrirsjáanlegs utanaðkomandi atviks sem veldur beinu tjóni á hinu tryggða tæki og hefur áhrif á notkun þess.
Tryggingin getur bætt tjón vegna skyndilegrar innri bilunar, að því marki sem hún er ekki á ábyrgð framleiðanda eða vegna slits.
Tryggingin bætir tjón vegna eldsvoða sem flokkast undir skyndilegt og ófyrirséð utanaðkomandi atvik sem veldur beinu tjóni og hefur áhrif á notkun þess.
Tryggingin tekur til skyndilegs tjóns vegna vökva, en ekki tjóna sem rekja má til hægfara raka, umhverfisbreytinga eða slits.
Bótaréttur vegna þjófnaðar er háður því að varúðarreglum hafi verið fylgt, m.a. að tækið hafi ekki verið skilið eftir eftirlitslaust og að tilkynning liggi fyrir.
Tryggingin ber enga eigin áhættu. Tæki eru ekki afskrifuð og kaupverðið er bætt að fullu.
Verð miðast við fullt verð tækisins og er greitt í eitt skipti fyrir allt tryggingartímabilið.
| Kaupverð | Iðgjald |
|---|---|
| 0 – 69.999 | 14.990 |
| 70.000 – 99.999 | 24.990 |
| 100.000 – 149.999 | 34.990 |
| 150.000 – 199.999 | 44.990 |
| 200.000 – 299.999 | 54.990 |
| 300.000 og yfir | 69.990 |
| Kaupverð | Iðgjald |
|---|---|
| 0 – 19.999 | 6.990 |
| 20.000 – 34.999 | 9.990 |
| 35.000 – 69.999 | 20.490 |
| 70.000 – 99.999 | 28.990 |
| 100.000 – 169.999 | 36.990 |
| 170.000 – 259.990 | 46.990 |
| Kaupverð | Iðgjald |
|---|---|
| 0 – 19.999 | 4.290 |
| 20.000 – 34.999 | 5.990 |
| 35.000 – 69.999 | 12.490 |
| 70.000 – 99.999 | 17.390 |
| 100.000 – 169.999 | 22.790 |
| 170.000 – 259.990 | 28.590 |
| Kaupverð | Iðgjald |
|---|---|
| 0 – 169.999 kr | 19.990 |
| 170.000 – 349.999 | 24.990 |
| 350.000 – 499.999 | 29.990 |
| 500.000 – 799.999 | 39.990 |
| Kaupverð | Iðgjald |
|---|---|
| 0 – 59.999 | 9.990 |
| 60.000 – 99.999 | 11.990 |
| 100.000 – 149.999 | 17.990 |
| 150.000 – 199.999 | 20.990 |
| 200.000 – 299.990 | 23.990 |
| Kaupverð | 3 ár | 4 ár |
|---|---|---|
| 0 – 159.999 | 12.490 | 16.990 |
| 160.000 – 299.999 | 21.490 | 28.990 |
| 300.000 – 499.999 | 29.990 | 39.990 |
Þegar þú kaupir síma eða spjaldtölvu getur þú valið á milli tveggja tegunda af tækjatryggingu.
Tækjatrygging (skilmáli E-50) nær yfir tækið í heild sinni — skjá, myndavélar, rafhlöðu og aðra íhluti. Tryggingin bætir tjón vegna skyndilegra óhappa, innri bilana og þjófnaðar eða ráns úr læstri hirslu, óháð því hvaða hluti tækisins verður fyrir tjóni. Bætur miðast við fullt kaupverð tækisins.
Skjátrygging (skilmáli E-56) nær eingöngu yfir skjáinn. Hún bætir tjón á skjá vegna skyndilegs og óvænts atviks, til dæmis ef skjárinn brotnar eða springur. Skjátrygging bætir hins vegar ekki þjófnað, tap á tækinu eða tjón á öðrum hlutum þess, og hámarksbætur nema 50% af upphaflegu kaupverði tækisins. Hún er því ódýrari kostur fyrir þá sem vilja fyrst og fremst verja sig gegn skemmdum skjá.
Tækjatrygging inniheldur sjálfkrafa skjátryggingu.
Tækjatrygging er keypt samhliða kaupum á tækinu í Mi búðinni.
Komi eitthvað fyrir tækið kemur það á verkstæðið okkar til skoðunar.
Tjónið er metið í samstarfi við Vörð tryggingarfélag.
Gert er við tækið eða það bætt að fullu, allt eftir niðurstöðu matsins.
Tækjatryggingin er valin og keypt samhliða kaupum á tækinu, hvort sem er í verslun eða vefverslun Mi búðarinnar.
Nei, tækjatryggingin ber enga eigin áhættu. Þú greiðir ekkert aukalega ef þú þarft að nýta trygginguna.
Kaupverðið er þá bætt að fullu, samkvæmt kvittun — engin afskrift er reiknuð. Tryggingin fellur síðan niður og þarf að kaupa nýja tryggingu fyrir nýtt tæki.
Tryggingin gildir hvar sem er í heiminum.
Tryggingin bætir ekki þjófnað án innbrotsummerkja, eðlilegt slit og notkun, tjón vegna hita- eða rakabreytinga eða myglu, né galla sem framleiðandi ber ábyrgð á.
Læsa þarf heimili og bíl, ekki skilja tækið eftir eftirlitslaust á almannafæri og fara eftir leiðbeiningum framleiðanda. Rafmagnshlaupahjól og reiðhjól þarf alltaf að læsa við fastan hlut.
Tryggingin gildir fyrir upphaflegan eiganda tækisins og lögmæta eftirmenn hans, til dæmis ef tækið er gefið eða erft.