79.990 kr. Original price was: 79.990 kr..63.992 kr.Current price is: 63.992 kr..
Xiaomi Mini LED Gaming Monitor G Pro 27Qi leikjatölvuskjár er 27″ 2K leikjaskjár með Mini LED baklýsingu í 1.152 svæðum, 180 Hz og birtu upp í 2.000 nit. Svörunartíminn er 1 ms og standurinn er stillanlegur á alla vegu.
Upplýsingar
Upplausnin er 2.560 × 1.440 dílar á Fast IPS-spjaldi, sem sameinar skarpa mynd, góða liti og hraða svörun.
Myndin uppfærist 180 sinnum á sekúndu og svörunartíminn er 1 ms (GTG). Hreyfingar í hröðum leikjum verða skýrar og án slóða, svo auðveldara er að fylgja skotmarki.
Baklýsingunni er stýrt í 1.152 svæðum, svo dökkir hlutar myndarinnar verða dökkir á meðan bjartir hlutar lýsa af fullum krafti. Fjórar stillingar ráða því hve ákveðið ljósinu er stýrt.
Skjárinn nær 2.000 nit í hámarksbirtu og er með HDR 1000. Sprengingar, sól og ljós í leikjum og kvikmyndum fá raunverulegan ljóma án þess að skuggar gráni.
Skammtadeplar (QD) gefa vítt litróf: 100% af sRGB og 99% af bæði DCI-P3 og Adobe RGB með 1,07 milljörðum lita. Skjárinn nýtist því líka í vinnslu mynda og myndbanda og skýrsla um kvörðun fylgir.
Skjárinn styður breytilega endurnýjunartíðni (FreeSync), sem samstillir skjáinn við skjákortið svo myndin rifnar ekki þegar rammahraðinn sveiflast.
Á skjánum eru tvö HDMI 2.0, tvö DisplayPort 1.4 og úttak fyrir hljóð, svo tölva og leikjatölva geta verið tengdar samtímis. DisplayPort-snúra fylgir.
Skjánum má lyfta um 12 cm, halla 5° fram og 21° aftur, snúa 35° til hvorrar hliðar og velta upp á rönd. Hann er með VESA 75 × 75 festingu.
Skjárinn er 61,3 cm á breidd, 52,1 cm á hæð og 22,7 cm á dýpt með standi og vegur 6 kg. Án stands vegur hann 3,9 kg.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar