XGIMI Vibe One skjávarpi

XGIMI Vibe One skjávarpi

59.990 kr.

Frí heimsending um allt land

XGIMI Vibe One skjávarpi er léttur og færanlegur Full HD skjávarpi með Google TV, innbyggðri rafhlöðu og 250 ISO lúmen. Hann stillir fókus sjálfur, er með tvo 3 W hátalara frá JBL og stand sem er um leið handfang.

– 250 ISO lúmen frá LED-ljósgjafa
– Full HD mynd upp í 381 cm á ská
– Rafhlaða fyrir 1,2 klst. af myndefni
– Stillir fókus og réttir myndina sjálfur
– Tveir 3 W hátalarar frá JBL
– Google TV og Netflix innbyggt
– HDMI og USB
– Standur og handfang í einu
– 30,7 cm á hæð og 1,4 kg
Tækjatrygging er í boði fyrir þessa vöru
Nánar um tækjatrygginguna

Á lager

Vörunúmer: WM03H
Strikamerki: 6935670510051

Upplýsingar

250 ISO lúmen frá LED-ljósgjafa

Ljósgjafinn er LED og birtan er 250 ISO lúmen með birtuskilum 1.500:1. Skjávarpinn nýtur sín í myrkvuðu herbergi, til dæmis í svefnherbergi eða barnaherbergi á kvöldin.

Full HD mynd upp í 381 cm á ská

Upplausnin er 1.920 × 1.080 dílar. Myndin getur verið frá 45″ upp í 150″ á ská. Í 2 m fjarlægð frá vegg verður hún um 1,5 m á breidd.

Rafhlaða fyrir 1,2 klst. af myndefni

Innbyggð rafhlaða dugar í allt að 1,2 klst. af myndefni á sparnaðarstillingu eða 4 klst. af tónlist. Skjávarpann má því taka með út á pall, í bústaðinn eða í útileguna og horfa þar sem engin innstunga er.

Stillir fókus og réttir myndina sjálfur

Skjávarpinn stillir fókus og réttir myndina af sjálfur, líka þegar hann er færður til. Það er nóg að leggja hann frá sér og kveikja.

Tveir 3 W hátalarar frá JBL

Í skjávarpanum eru tveir 3 W hátalarar frá JBL. Hann má líka nota sem hátalara fyrir tónlist og ljósið á honum, í átta litum, skapar stemningu í herberginu.

Google TV og Netflix innbyggt

Skjávarpinn er með Google TV og Netflix, svo hægt er að streyma beint án þess að tengja annað tæki. Efni úr síma eða tölvu má senda þráðlaust í skjávarpann.

HDMI og USB

Á skjávarpanum eru HDMI-tengi og USB-tengi, til dæmis fyrir leikjatölvu, fartölvu eða minnislykil. Hann tengist neti með Wi-Fi 5 og hátölurum eða heyrnartólum með Bluetooth 5.1.

Standur og handfang í einu

Standurinn hallar skjávarpanum um allt að 160°, svo myndinni má varpa á vegg eða upp í loft yfir rúminu. Sami standur er handfang þegar skjávarpinn er borinn á milli herbergja.

30,7 cm á hæð og 1,4 kg

Skjávarpinn er 11,5 × 13,5 cm að grunnfleti, 30,7 cm á hæð og vegur 1,4 kg. Límmiðar fylgja til að skreyta hann.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Skjávarpi
  • Bluetooth-fjarstýring og tvær AAA rafhlöður
  • Straumbreytir
  • Límmiðar
  • Leiðbeiningar
  • Skjávarpi
  • Bluetooth-fjarstýring og tvær AAA rafhlöður
  • Straumbreytir
  • Límmiðar
  • Leiðbeiningar

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur