bremsum, pumpað í dekk og ráðgjöf veitt ef þörf er á frekari viðhaldi
Frí ástandsskoðun á rafmagnshlaupahjólinu þínu
Mi Búðin býður upp á fría ástandsskoðun á öllum rafmagnshlaupahjólum. Sérfræðingar okkar skoða tækið þitt, pumpa upp í dekk, herða bremsur og lausar skrúfur — þér að kostnaðarlausu.
Hvað felst í ástandsskoðun?
Frítt
🛴
Almenn yfirferð
Við förum yfir tækið þitt og athugum hvort það sé eitthvað fleira sem þarf að gera fyrir það.
Frítt
🛞
Dekk
Réttur loftþrýstingur bætir akstur og en enn mikilvægara er að það lengir líftíma þeirra. Við athugum og stillum þrýstinginn meðan þú bíður.
Frítt
🔩
Skrúfur
Lausar skrúfur geta aukið líkurnar á leiðinlegum slysum. Láttu okkur fara yfir allar skrúfur og herða það sem þarf.
Frítt
🛑
Bremsur
Við prófum bremsurnar og stillum þær ef þörf krefur.
Þitt öryggi í umferðinni?
Mörg rafmagnshlaupahjól og reiðhjól eru aldrei tekin í skoðun eftir kaup — þangað til eitthvað fer úrskeiðis. Bremsa sem er aðeins of laus, dekk sem vantar loft eða laus skrúfa á stýri getur orðið vandamál á óhentugum tíma.
Við bjóðum þessa þjónustu frítt vegna þess að okkur er ant um öryggi í umferðinni sérstaklega þegar við erum hluti af daglegum ferðum ykkar. Þetta er tækifæri til að fá faglega skoðun á tækinu þínu, fá góð ráð og vita nákvæmlega í hvaða ástandi það er.
Afgreiðslutímar yfir tímabilið
Hlökkum til að sjá þig
Mánudagur20. apríl
11:00–18:00
Þriðjudagur21. apríl
11:00–18:00
Miðvikudagur22. apríl
11:00–18:00
Fimmtudagur23. apríl
Lokað— Sumardagurinn fyrsti
Föstudagur24. apríl
11:00 – 18:00
Ef meiri vinna þarf að fara fram
Ókeypis verðmat á staðnum
Ef sérfræðingarnir okkar finna eitthvað sem þarfnast frekari vinnu, færð þú nákvæmt verðmat án þess að þurfa að skuldbinda þig til neins. Við gerum aldrei vinnu án samþykkis þíns. Sjá verðskrá hér og varahluti hér.
Hjólið skráð inn og skilið eftir
Ef tækið þitt þarf dekkjaskipti, skipta þarf um íhluti eða aðra verkstæðisvinnu, þarf að skrá tækið inn í viðgerð og skilja það eftir hjá okkur. Við reynum eftir fremsta megni að hafa viðgerðartíman stuttan en viðgerðartími fer eftir álagi hverju sinni. Við gefum þér áætlaðan viðgerðartíma þegar tækið er skilið eftir.