Xiaomi Magnetic Power Bank 10.000mAh þráðlaus hleðslubanki m. innbyggðum stand og snúru

Xiaomi Magnetic Power Bank 10.000mAh þráðlaus hleðslubanki m. innbyggðum stand og snúru

7.990 kr.

Frí heimsending ef keypt er fyrir 15.000 kr. eða meira Karfan þín er yfir 15.000 kr. og þú færð fría heimsendingu

Xiaomi Magnetic Power Bank 10.000mAh þráðlaus hleðslubanki m. innbyggðum stand og snúru festist með segli aftan á símann og hleður hann þráðlaust eða með innbyggðu USB-C snúrunni á 33 W. Standur sem fellur út úr bakinu heldur símanum uppi á meðan og lítill skjár sýnir hve mikil hleðsla er eftir.

– Hleður flesta síma um tvisvar sinnum
– 33 W hraðhleðsla með snúru
– Segull heldur símanum, 15 W þráðlaust
– Standurinn opnast í 80°
– Innbyggð USB-C snúra með tengi í vinkil
– Hleður þrjú tæki samtímis
– Hleður símann á meðan hann hleðst
– Skjár sýnir hleðsluna í prósentum
– 37 Wh og má fara í handfarangur
– Tveir skynjarar vakta hitann
– 10,9 × 6,9 × 2 cm og 229 g

Upplýsingar

Hleður flesta síma um tvisvar sinnum

Í bankanum eru tvær 5.000 mAh rafhlöður, samtals 37 Wh. Það fyllir iPhone 16 Pro um tvisvar sinnum, Xiaomi 14 Ultra um 1,5 sinnum og Xiaomi 15 um 1,3 sinnum.

Hleður flesta síma um tvisvar sinnum
33 W hraðhleðsla með snúru

Með snúru hleður bankinn símann á 33 W og tekur sjálfur við 30 W, þannig að bæði síminn og bankinn fyllast fljótt. Hann styður hraðhleðslu flestra nýlegra síma og spjaldtölva, þar á meðal frá Xiaomi, Apple, Samsung og Google.

33 W hraðhleðsla með snúru
Segull heldur símanum, 15 W þráðlaust

Segullinn heldur með 13 N krafti og smellur beint á iPhone 12 og nýrri. Þráðlausa hleðslan er 15 W á símum sem styðja það, 10 W á Xiaomi 13 og nýrri og 7,5 W á iPhone.

Segull heldur símanum, 15 W þráðlaust
Standurinn opnast í 80°

Standurinn fellur út úr bakinu og opnast í um 80°, þannig að síminn stendur uppréttur eða á hlið á borðinu. Það hentar vel í símtöl með mynd og þætti á meðan síminn hleðst.

Standurinn opnast í 80°
Innbyggð USB-C snúra með tengi í vinkil

Snúran er föst við bankann og því alltaf með í för. Tengið er í vinkil, svo snúran er ekki fyrir hendinni þegar haldið er á símanum á hlið í hleðslu.

Innbyggð USB-C snúra með tengi í vinkil
Hleður þrjú tæki samtímis

Tvö tæki hlaðast með snúru, annað í innbyggðu snúrunni og hitt í USB-C tenginu. Þriðja tækið hleðst þráðlaust um leið. Samanlagt afl er þá 15 W.

Hleður þrjú tæki samtímis
Hleður símann á meðan hann hleðst

Bankinn getur sjálfur verið í hleðslu og hlaðið símann um leið. Á náttborðinu þarf því eitt hleðslutæki fyrir bæði tækin.

Hleður símann á meðan hann hleðst
Skjár sýnir hleðsluna í prósentum

Lítill skjár á hliðinni sýnir hve mörg prósent eru eftir og hvort verið er að hlaða bankann eða hlaða þráðlaust.

Skjár sýnir hleðsluna í prósentum
37 Wh og má fara í handfarangur

Bankinn er 37 Wh og því langt undir 100 Wh mörkunum sem gilda um hleðslubanka í flugi.

37 Wh og má fara í handfarangur
Tveir skynjarar vakta hitann

Tveir skynjarar mæla hitann í rafhlöðunum og rafrásinni og níu varnir slá út við ofhitnun, skammhlaup, of mikla hleðslu og of háa spennu eða straum.

Tveir skynjarar vakta hitann
10,9 × 6,9 × 2 cm og 229 g

Hleðslubankinn er 10,9 cm á hæð, 6,9 cm á breidd og 2 cm á þykkt og vegur 229 g. Hann fer vel í lófa og kemst í jakkavasa.

10,9 × 6,9 × 2 cm og 229 g

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Hleðslubanki með innbyggðri USB-C snúru
  • Leiðbeiningar
  • Hleðslubanki með innbyggðri USB-C snúru
  • Leiðbeiningar

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur