Xiaomi 67W Power Bank 20.000mAh hleðslubanki m. snúru

Xiaomi 67W Power Bank 20.000mAh hleðslubanki m. snúru

Upprunalegt verð var: 8.990 kr.
Núverandi verð er: 8.091 kr.
Þú sparar 899 kr.

Original price was: 8.990 kr..Current price is: 8.091 kr..

Xiaomi 67W Power Bank 20.000mAh hleðslubanki er með innbyggða USB-C snúru og hefur tök á að hlaða allt að þrjú tæki í einu. Bankinn býður upp á 67W hraðhleðslu og getur hlaðið síma, spjaldtölvur, fartölvur og einnig smærri tæki, allt á ferðinni.

– 67 W hraðhleðsla og 20.000 mAh
– Innbyggð USB-C snúra
– Hleður 3 tæki samtímis
– Stafrænn skjár sem sýnir stöðuna
– Hleður smærri tæki á öruggan hátt
– Níu laga öryggi
– Ferðavæn, 74.37 Wh
– Lítill og léttur
– Hleðst á 2.5 klst (með 65 W hleðslukubbi)

Upplýsingar

67 W hraðhleðsla og 20.000 mAh

Með 20.000 mAh rafhlöðu og allt að 67 W hraðhleðslu getur þessi hleðslubanki hlaðið síma, spjaldtölvur og jafnvel fartölvur. Hann styður hlestu hraðhleðslustaðla sem og QC2.0, QC3.0, QC3.5, PD2.0, PD3.0 (PPS), BC1.2 og Apple 2.4A, sem tryggir að tækin þín hlaðist hratt og örugglega.

Innbyggð USB-C snúra

Innbyggð, sveigjanleg USB-C snúra fylgir með í hleðslubankanum þannig að þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að gleyma heðslusnúrunni. Einnig er hægt að nota innbyggðu snúruna sem lykkju til þess að halda á hleðslubankanum.

Hleður 3 tæki samtímis

Í hleðslubankanum eru 3 tengi; USB-C, USB-A og innbyggða USB-C snúran. Með því er hægt að hlaða allt að 3 tæki á sama tíma sem er tilvalið fyrir þá sem ferðast mikið eða þurfa að hlaða mörg tæki í einu.

Stafrænn skjár sem sýnir stöðuna

Stafrænn skjár sýnir nákvæmlega hversu mikið rafmagn er eftir í hleðslubankanum. Það gerir það auðveldara að fylgjast með hleðslunni og hvort að þú þurfir að hlaða bankann.

Hleður smærri tæki á öruggan hátt

Hleðslubankinn fæst við lágspennuhleðslu til þess að hlaða heyrnatól, snjallúr oþfl. á öruggan máta. Það verndar tækin frá ofhleðslu.

Níu laga öryggi

Í hleðslubankanum eru innifalin níu lög af öryggi sem verndar tækin þin gegn ofhitnun, skammhlaupi, ofspennu o.fl. Innbyggðir NTC skynjarar fylgjast stöðugt með hitastigi bankans til að tryggja öryggi.

Ferðavæn, 74.37 Wh

Með 74.37 Wh orku er þessi hleðslubanki almennt leyfður í handfarangri í flugvélum. Þetta gerir hann að frábærum ferðafélaga fyrir þá sem vilja vera vissir um geta hlaðið tækin sín hvar sem er.

Lítill og léttur

Hleðslubankinn er 14 × 7,2 × 3,12 cm og vegur 415 g. Hann er því þægilegur í handtösku eða bakpoka og tekur lítið pláss, sem gerir hann tilvalinn til að taka með sér hvert sem er.

Hleðst á 2.5 klst (með 65 W hleðslukubbi)

Það tekur um 2,5 klukkustundir að fullhlaða hleðslubankann sjálfan með 65 W eða öflugri hleðslukubb. Þannig að þú ert ekki lengi að hlaða bankann til þess að hafa hann tilbúinn fyrir önnur tæki.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Xiaomi 67W Power Bank 20.000mAh
  • Leiðbeiningabæklingur
  • Xiaomi 67W Power Bank 20.000mAh
  • Leiðbeiningabæklingur

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur