Tækjatryggingar

Tækjatrygging er valkvæð trygging sem þú getur bætt við þegar þú kaupir vöru í Mi búðinni. Tryggingin er veitt í samstarfi við tryggingafélagið Vörð og nær yfir atriði sem hefðbundin framleiðandaábyrgð gerir ekki — til dæmis skyndileg óhöpp, innri bilanir og þjófnað. Tryggingin er keypt samhliða kaupum á vörunni og gildistíminn fer eftir vöruflokki.

Hér eru helstu upplýsingar um Tækjatrygginguna frá Verði tryggingum (skilmáli E-50). Þetta eru ekki tæmandi upplýsingar og þú getur kynnt þér trygginguna nánar með því að smella hér.

Hvernig trygging er þetta?

Tækjatrygging er í boði samhliða kaupum á nýju tæki hjá Mi búðinni. Tryggingin tekur til þess tækis sem tilgreint er á vörureikningi, ásamt þeim fylgihlutum sem fylgdu tækinu í umbúðunum sem það var afhent í.

Hvað bætir tryggingin?

  • ✓Skyndileg og óvænt óhöpp í flutningi, notkun eða geymslu
  • ✓Rán eða innbrotsþjófnað úr læstri hirslu, bifreið eða húsnæði, enda séu ótvíræð ummerki um innbrot
  • ✓Innri vélrænar bilanir í tækinu

Hvað bætir tryggingin ekki?

  • ✕Þjófnað sem ekki fylgja innbrotsummerki
  • ✕Skemmdir af hita- eða rakabreytingum
  • ✕Myglu eða sveppagróður
  • ✕Eðlilegt slit, ófullnægjandi viðhald eða hreina útlitsgalla
  • ✕Galla eða ranga samsetningu
  • ✕Tap eða skemmdir á gögnum og hugbúnaði
  • ✕Tjón vegna vinnslu, uppsetningar, viðgerðar eða viðhalds
  • ✕Að tæki sé mislagt, gleymist, týnist eða skilið eftir á almannafæri

Hvar gildir tryggingin?

Tryggingin gildir hvar sem er í heiminum.

Hverjar eru mínar skyldur?

  • •Læsa tryggilega heimili, bílum og öðrum geymslustöðum þegar þeir eru mannlausir
  • •Hafa tækið meðferðis eða undir eftirliti þegar staðir eru yfirgefnir
  • •Fylgja fyrirmælum framleiðanda um meðhöndlun, uppsetningu, notkun og viðhald
  • •Sýna eðlilega aðgát við vörslu tækisins
  • •Rafhlaupahjól skulu ávallt læst tryggilega við fastan hlut

Hvernig greiði ég fyrir trygginguna?

Iðgjaldið er greitt í einu lagi við kaup á tækinu hjá Mi búðinni.

Hvenær tekur tryggingin gildi og hvenær lýkur henni?

Tryggingin gildir frá kaupdegi í það tímabil sem tilgreint er á vörureikningi. Hún fellur niður án endurgreiðslu iðgjalds ef:

  • •Bætur hafa verið greiddar vegna altjóns á tækinu
  • •Uppsafnaður viðgerðarkostnaður er orðinn hærri en kaupverð tækisins

Hvað bætir tryggingin?

Atriði Tækjatrygging Heimilistrygging Neytendalög
Óhapp
Bilun og framleiðslugalli
Eldsvoði
Vatn og vökvi
Þjófnaður
Eigin áhætta
Engar afskriftir
Fullur bótaréttur Takmarkaður bótaréttur Enginn bótaréttur

Óhapp

Tryggingin bætir tjón vegna skyndilegs og ófyrirsjáanlegs utanaðkomandi atviks sem veldur beinu tjóni á hinu tryggða tæki og hefur áhrif á notkun þess.

Bilun og framleiðslugalli

Tryggingin getur bætt tjón vegna skyndilegrar innri bilunar, að því marki sem hún er ekki á ábyrgð framleiðanda eða vegna slits.

Eldsvoði

Tryggingin bætir tjón vegna eldsvoða sem flokkast undir skyndilegt og ófyrirséð utanaðkomandi atvik sem veldur beinu tjóni og hefur áhrif á notkun þess.

Vatn og vökvi

Tryggingin tekur til skyndilegs tjóns vegna vökva, en ekki tjóna sem rekja má til hægfara raka, umhverfisbreytinga eða slits.

Þjófnaður

Bótaréttur vegna þjófnaðar er háður því að varúðarreglum hafi verið fylgt, m.a. að tækið hafi ekki verið skilið eftir eftirlitslaust og að tilkynning liggi fyrir.

Eigin áhætta og afskriftir

Tryggingin ber enga eigin áhættu. Tæki eru ekki afskrifuð og kaupverðið er bætt að fullu.

Verðskrá

Verð miðast við fullt verð tækisins og er greitt í eitt skipti fyrir allt tryggingartímabilið.

Rafmagnsfarartæki

1 ár
KaupverðIðgjald
0 – 69.99914.990
70.000 – 99.99924.990
100.000 – 149.99934.990
150.000 – 199.99944.990
200.000 – 299.99954.990
300.000 og yfir69.990

Símar & spjaldtölvur

1 ár
KaupverðIðgjald
0 – 19.9996.990
20.000 – 34.9999.990
35.000 – 69.99920.490
70.000 – 99.99928.990
100.000 – 169.99936.990
170.000 og yfir46.990

Skjátrygging fyrir síma

1 ár
KaupverðIðgjald
0 – 19.9994.290
20.000 – 34.9995.990
35.000 – 69.99912.490
70.000 – 99.99917.390
100.000 – 169.99922.790
170.000 og yfir28.590

Skjávarpar

3 ár
KaupverðIðgjald
0 – 169.999 kr19.990
170.000 – 349.99924.990
350.000 – 499.99929.990
500.000 og yfir39.990

Ryksugur og skúringarvélar

5 ár
KaupverðIðgjald
0 – 59.9999.990
60.000 – 99.99911.990
100.000 – 149.99917.990
150.000 – 199.99920.990
200.000 og yfir23.990

Sjónvörp

3 eða 4 ár
Kaupverð 3 ár 4 ár
0 – 159.99912.49016.990
160.000 – 299.99921.49028.990
300.000 og yfir29.99039.990

Skjátrygging vs. tækjatrygging á farsíma

Þegar þú kaupir síma eða spjaldtölvu getur þú valið á milli tveggja tegunda af tækjatryggingu.

Tækjatrygging (skilmáli E-50) nær yfir tækið í heild sinni — skjá, myndavélar, rafhlöðu og aðra íhluti. Tryggingin bætir tjón vegna skyndilegra óhappa, innri bilana og þjófnaðar eða ráns úr læstri hirslu, óháð því hvaða hluti tækisins verður fyrir tjóni. Bætur miðast við fullt kaupverð tækisins.

Skjátrygging (skilmáli E-56) nær eingöngu yfir skjáinn. Hún bætir tjón á skjá vegna skyndilegs og óvænts atviks, til dæmis ef skjárinn brotnar eða springur. Skjátrygging bætir hins vegar ekki þjófnað, tap á tækinu eða tjón á öðrum hlutum þess, og hámarksbætur nema 50% af upphaflegu kaupverði tækisins. Hún er því ódýrari kostur fyrir þá sem vilja fyrst og fremst verja sig gegn skemmdum skjá.

Tækjatrygging inniheldur sjálfkrafa skjátryggingu.

Hvernig virkar þetta?

1

Kaup á tryggingu

Tækjatrygging er keypt samhliða kaupum á tækinu í Mi búðinni.

2

Tæki kemur til okkar

Komi eitthvað fyrir tækið kemur það á verkstæðið okkar til skoðunar.

3

Mat á tjóni

Tjónið er metið í samstarfi við Vörð tryggingarfélag.

4

Viðgerð eða bætur

Gert er við tækið eða það bætt að fullu, allt eftir niðurstöðu matsins.

Algengar spurningar

Hvenær þarf ég að kaupa tækjatrygginguna?

Tækjatryggingin er valin og keypt samhliða kaupum á tækinu, hvort sem er í verslun eða vefverslun Mi búðarinnar.

Nei, tækjatryggingin ber enga eigin áhættu. Þú greiðir ekkert aukalega ef þú þarft að nýta trygginguna.

Kaupverðið er þá bætt að fullu, samkvæmt kvittun — engin afskrift er reiknuð. Tryggingin fellur síðan niður og þarf að kaupa nýja tryggingu fyrir nýtt tæki.

Ef tæki verður fyrir minniháttar tjóni þar sem viðgerðarkostnaður er undir kaupverði tækis greiða tryggingar fyrir viðgerðina. Tryggingin heldur sínu gildi en hámarksbótaupphæð minnkar um kostnað fyrri viðgerða.

Vatnstjón eru bætt svo lengi sem tjónið sé skyndilegt og ófyrirsjáanlegt. Notkun rafmagnsfarartækja í mikilli rigningu og bleytu gæti því talist fyrirsjáanlegt ef tjón verður af, og þarf því að gæta sérstakra varúðar í þeim aðstæðum.

Rafhlöður eru tryggðar svo lengi sem tjón sem þær kunna að lenda í sé skyndilegt og ófyrirsjáanlegt. Eðlilegt slit rafhlaðna, t.d dvínandi endingartími myndi því ekki falla undir trygginguna.

Ef skjár á farsíma sem ber skjátryggingu brotnar greiðir tryggingarfélagið allt að 50% af upphaflegu kaupverði tækisins. Sé viðgerð dýrari en 50% af kaupverði tækisins greiðir viðskiptavinur það sem uppá vantar. Skemmist annar hlutur en skjár fellur sá kostnaður alfarið á viðskiptavin, t.d ef rammi símans skemmist og krefst viðgerðar svo að skjár geti verið lagaður, fellur sá kostnaður alfarið á viðskiptavin.

Tryggingin gildir hvar sem er í heiminum.

Tryggingin bætir ekki þjófnað án innbrotsummerkja, eðlilegt slit og notkun, tjón vegna hita- eða rakabreytinga eða myglu, né galla sem framleiðandi ber ábyrgð á.

Læsa þarf heimili og bíl, ekki skilja tækið eftir eftirlitslaust á almannafæri og fara eftir leiðbeiningum framleiðanda. Rafmagnshlaupahjól og reiðhjól þarf alltaf að læsa við fastan hlut.

Tryggingin gildir fyrir upphaflegan eiganda tækisins og lögmæta eftirmenn hans, til dæmis ef tækið er gefið eða erft.