Mijia er heimilislína Xiaomi. „Mi“ stendur fyrir Xiaomi og „jia“ fyrir heimili. Mijia þýðir því í raun „Xiaomi-heimilið“. Undir þessu merki hannar Xiaomi sniðug og stílhrein heimilistæki sem einfalda daglegt líf.
16.990 kr.
Mijia Brushless Cordless Drill 2 skrúf- og borvél er þráðlaus skrúf- og borvél með kolalausum mótor, 50 N·m hámarkstogi og allt að 1.700 snúningum á mínútu. Hún er með 32 togstillingum, sjálfvirkri stillingu fyrir skrúfur, USB-C hleðslu og kemur í tösku með borum og bitum.
Upplýsingar
Mótorinn er kolalaus og gírarnir úr stáli, svo vélin ræður við þyngri og tíðari verk. Hámarkstogið er 50 N·m og hraðinn án álags allt að 1.700 snúningar á mínútu á hraðari gírnum og 400 á þeim hægari.
Stig 1 til 20 eru fyrir skrúfur og 21 til 32 fyrir borun. Í sjálfvirkri stillingu stýrir vélin toginu sjálf og stoppar áður en skrúfan er hert of fast eða hausinn skemmist, sem hentar þeim sem eru óvanir. Sjálfvirka stillingin er fyrir skrúfur í hart efni, ekki borun.
Rafhlaðan er 1.900 mAh og dugar í allt að 600 skrúfur (0,4 × 2,5 cm skrúfur í furu) eða 200 göt í við (4 cm djúp göt í furu með 0,8 cm trébor) á einni hleðslu. Hún er hlaðin með USB-C á um 2 klst.
Með fylgja þrír trébor, einn fjölnota bor fyrir við, plast, þunnan málm og létta steypu og einn bor fyrir flísar, múrstein og plast. Þegar borað er í flísar á að bleyta borinn til að kæla hann. Bitarnir eru tíu, meðal annars fyrir beina, kross-, Torx- og sexkanthausa og með fylgir segulmögnuð framlenging.
Patrónan er hert með höndunum, læsir sjálf og heldur bor og bita föstum án þess að þeir renni eða skjálfi. Hún tekur allt að 1 cm svera leggi.
LED ljós lýsir á vinnusvæðið, rofi skiptir á milli áfram, aftur á bak og læsingar og handfangið er klætt stömu gúmmíi. Allt geymist í EVA tösku með hólfi fyrir hvern hlut.
Vélin er um 16,6 × 5,5 × 20,5 cm og vegur um 990 g með bor í. Hún vinnur við -10 til 45 °C.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar