7.490 kr.
Xiaomi Smart Band 11 Active er létt og nett snjall- og heilsuúr sem heldur utan um daglega hreyfingu og heilsu. Úrið er með 1,47″ TFT skjá með 60 Hz endurnýjunartíðni, 50 íþróttastillingum og 5ATM vatnsvörn. Rafhlaðan endist í allt að 21 dag við létta notkun. Úrið tengist bæði Android og iOS snjallsímum í gegnum Mi Fitness appið.
Upplýsingar
Skjárinn er með 172 × 320 punkta upplausn (247 PPI) og 60 Hz endurnýjunartíðni sem gerir hreyfingar á skjánum mjúkar. Yfirborðið er varið með styrktu 2,5D bogadregnu gleri.
Í úrinu er 300 mAh rafhlaða sem endist í allt að 8 daga við hefðbundna notkun og allt að 21 dag við létta notkun. Úrið er hlaðið með segulhleðslusnúru og tekur full hleðsla innan við 120 mínútur.
Úrið styður 50 mismunandi æfinga- og íþróttastillingar. Það er með 5ATM vatnsvörn (ISO 22810:2010), en er ekki ætlað fyrir heitar sturtur, gufuböð eða köfun.
Tengist snjallsímum þráðlaust með Bluetooth 5.3 BLE og vinnur með Mi Fitness appinu þar sem hægt er að skoða gögn um hreyfingu og heilsu. Styður síma með Android 8.0 eða nýrra og iOS 14.0 eða nýrra.
Innbyggður PPG-skynjari og hröðunarmælir fylgjast með hjartslætti, súrefnismettun í blóði (SpO₂), svefni og streitu. Einnig er stuðningur við skráningu og eftirlit með tíðahring.
Úrshúsið vegur aðeins 18 grömm án ólar og mælist 43,5 × 25,8 × 10,2 mm. Umgjörðin er úr glertrefjastyrktu plasti með málmáferð og í úrinu er innbyggður ERM-mótor.
Svört ól úr TPU-efni fylgir úrinu og hægt er að stilla lengd hennar frá 135 til 215 mm.
Hægt er að velja á milli yfir 100 mismunandi úrskífna til að breyta útliti skjásins.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar