17.990 kr.
Aqara Curtain Driver E1 gardínumótor er hengdur á gardínustöngina sem fyrir er og dregur gardínurnar frá og fyrir sjálfur, eftir tímaáætlun, birtu eða úr símanum. Hann er með 6.000 mAh rafhlöðu sem endist í allt að ár og tengist með Zigbee við Aqara stjórnstöð.
Upplýsingar
Mótorinn er hengdur á stöngina á bak við gardínuna og dregur hana frá og fyrir. Ekki þarf að skipta um gardínur eða stöng og hann sést varla.
Þessi útgáfa er fyrir gardínustangir sem eru jafn þykkar alla leið. Hún passar ekki á stangir sem eru dregnar sundur og eru því ekki jafn þykkar alla leið. Klemmur og renningur úr gúmmíi fylgja.
Í Aqara Home appinu má láta gardínurnar opnast og lokast eftir klukku, birtu, veðri eða boðum frá öðrum Aqara tækjum. Þannig má vakna við dagsbirtu á morgnana og láta dragast fyrir þegar dimmir.
Innbyggð 6.000 mAh rafhlaða endist í allt að ár á hleðslu, miðað við að gardínur á um 1,5 m braut með tveimur mótorum séu opnaðar og lokaðar einu sinni á dag; þyngd gardínunnar og viðnám hafa áhrif. Hún er hlaðin með USB-C snúru sem fylgir, úr hleðslubanka eða hleðslutæki.
Mótorinn tengist með Zigbee 3.0 og þarf Aqara Zigbee 3.0 stjórnstöð. Í gegnum hana er hann samhæfður Aqara Home, Apple Home, Alexa, Google Home og IFTTT.
Mótorinn er 14,05 × 9,6 × 4,4 cm og vegur 461 g. Hann dregur gardínur sem vega allt að 12 kg á 12 cm á sekúndu, er ætlaður til notkunar innandyra (IP20) og vinnur við 0 til 45 °C.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar