Mijia Vacuum Cleaner 4C handryksuga

Mijia er heimilislína Xiaomi. „Mi“ stendur fyrir Xiaomi og „jia“ fyrir heimili. Mijia þýðir því í raun „Xiaomi-heimilið“. Undir þessu merki hannar Xiaomi sniðug og stílhrein heimilistæki sem einfalda daglegt líf.

Mijia Vacuum Cleaner 4C handryksuga

34.990 kr.

Frí heimsending um allt land

Mijia Vacuum Cleaner 4C handryksuga er þráðlaus skaftryksuga með 170 AW sogkraft og vinnutíma allt að 75 mín. á einni hleðslu. Gólfhausinn er með hvítu LED ljósi sem sýnir rykið, síunin er í fimm þrepum og veggfesting fylgir.

– Sogkrafturinn er 170 AW
– Vinnutími allt að 75 mín.
– Gólfhaus með hvítu LED ljósi og kambi gegn hárflækjum
– 2-í-1 stútur fyrir rifur og yfirborð
– Síun í fimm þrepum, 99,97%
– Rykhólf sem tæmist með einum hnappi
– Ljós sem sýna stöðu rafhlöðu
– Veggfesting fylgir
– Hæð 117,5 cm
Tækjatrygging er í boði fyrir þessa vöru
Nánar um tækjatrygginguna

Á lager

Vörunúmer: 78151
Strikamerki: 6932554461614

Upplýsingar

Sogkrafturinn er 170 AW

Mótorinn er kolalaus og snýst 110.000 snúninga á mínútu. Sogkrafturinn er 170 AW og undirþrýstingurinn 20.000 Pa á hæstu stillingu. Það ræður vel við hár, mylsnu og grófari óhreinindi á gólfum og teppum.

Vinnutími allt að 75 mín.

Í rafhlöðunni eru sjö sellur og stillingarnar eru þrjár. Með gólfhausnum endist hleðslan um 45 mín. á Eco, um 25 mín. á venjulegri stillingu og um 10 mín. á Turbo. Með 2-í-1 stútnum nær hún um 75 mín. á Eco.

Gólfhaus með hvítu LED ljósi og kambi gegn hárflækjum

Rafknúni gólfhausinn hentar á parket, flísar og teppi með stuttum hárum. Ljósið framan á honum lýsir upp ryk undir rúmum, sófum og í dimmum hornum. Innbyggður kambur dregur úr því að hár vefjist utan um burstann.

2-í-1 stútur fyrir rifur og yfirborð

Stútnum er breytt með einu handtaki úr mjóum stút fyrir rifur í sófa í bursta fyrir lyklaborð, gardínur og húsgögn. Með framlengingarrörinu nær hann upp á skápa og aðra háa staði.

Síun í fimm þrepum, 99,97%

Ryk og loft eru skilin að í fimm þrepum og ryksugan heldur eftir allt að 99,97% agna niður í 0,3 μm. Fínasta rykið blæs því ekki aftur út í herbergið. Síurnar má þvo og nota aftur, en þær þurfa að þorna í minnst 24 klst. áður en þær eru settar í aftur.

Rykhólf sem tæmist með einum hnappi

Þegar ýtt er á hnappinn opnast botninn á rykhólfinu og rykið fellur beint í ruslið, svo ekki þarf að snerta óhreinindin.

Ljós sem sýna stöðu rafhlöðu

Á ryksugunni eru ljós sem sýna hve mikil hleðsla er eftir, svo auðvelt er að sjá hvenær kominn er tími til að hlaða.

Veggfesting fylgir

Ryksugan er geymd á veggfestingu og tekur því ekkert gólfpláss. Skrúfur og tappar fylgja með.

Hæð 117,5 cm

Samsett með röri og gólfhaus er ryksugan 117,5 cm á hæð og gólfhausinn er 25,5 cm á breidd. Málaflið er 400 W.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Ryksuga
  • Framlengingarrör
  • Rafknúinn gólfhaus
  • 2-í-1 stútur
  • Veggfesting með 2 skrúfum og 2 töppum
  • Hleðslutæki
  • Handbók
  • Ryksuga
  • Framlengingarrör
  • Rafknúinn gólfhaus
  • 2-í-1 stútur
  • Veggfesting með 2 skrúfum og 2 töppum
  • Hleðslutæki
  • Handbók

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur