Roborock Qrevo Edge 5V1 ryksuguvélmenni m. sjálftæmingarstöð

Roborock Qrevo Edge 5V1 ryksuguvélmenni m. sjálftæmingarstöð

149.990 kr.

Roborock Qrevo Edge 5V1 ryksuguvélmennið býður upp á ótrúlegan 18.500 Pa sogkraft og nýstárlegt tvöfalt flækjuhindrunarkerfi sem kemur í veg fyrir að hár flækist í burstunum. Með FlexiArm™ Arc tækninni nær hún að hreinsa vel inn í horn og meðfram köntum, auk þess að moppa með 75°C heitu vatni. Þessi snjalla ryksuga tryggir skínandi hreint heimili með lágmarks fyrirhöfn.

– 17.000 Pa sogkraftur
– Allt að 240 mín vinnutími
– Ryksugar og moppar með snúningsmoppum
– Kemst yfir allt að 2 cm þröskulda
– 9.79 cm hæð
– PreciSense LiDAR og Reactive AI
– Tvöfalt flækjuhindrunarkerfi
– FlexiArm™ Arc hliðarbursti
– Sjálftæmingarstöð 3.0
– Stærð
– 2.7 L rykpoki í stöð

2 stk eftir á lager

Vörunúmer: QRES52

Upplýsingar

17.000 Pa sogkraftur

Roborock Qrevo Edge 5V1 er búin HyperForce® sogkrafti sem nær 17.000 Pa, sem tryggir að engin óhreinindi séu skilin eftir. Þessi öflugi sogkraftur gerir vélmennið hæft til að hreinsa djúpt og skilvirkt á öllum gerðum gólfa.

Allt að 240 mín vinnutími

Vélmennið er með 5.200 mAh Lithium-Ion rafhlöðu sem býður upp á allt að 240 mínútna vinnutíma á einni hleðslu. Þegar rafhlaðan fer niður fyrir ákveðið hlutfall fer vélin sjálfkrafa aftur í hleðslustöðina, hleður sig og heldur svo áfram þar sem frá var horfið.

Ryksugar og moppar með snúningsmoppum

Roborock Qrevo Edge 5V1 getur ryksugað, moppað eða framkvæmt bæði verkefnin samtímis. Hún er búin snúningsmoppum sem þrýstast niður og snúast til að ná fram framúrskarandi blautmoppun. Hægt er að stilla hversu oft vélin fer í sjálftæmingarstöðina til að þrífa moppurnar í hverri lotu. Skúringarmoppurnar eru á hreyfanlegum armi sem gerir vélinni kleyft að moppa uppvið gólflista, húsgögn og fleira. Þegar vélin fer yfir teppi eða er stillt að skúra ekki þá lyftast moppurnar upp 10mm til að bleyta ekki í yfirborðinu sem hún er á.

Kemst yfir allt að 2 cm þröskulda

Ryksuguvélmennið getur farið yfir þröskulda og teppaenda sem eru allt að 2 cm háir, sem tryggir samfellda og skilvirka hreinsun á milli herbergja.

9.79 cm hæð

Með aðeins 9.79 cm hæð getur Roborock Qrevo Edge 5V1 hreinsað undir flestum húsgögnum eins og sófum, skápum og rúmum, þar sem erfitt er að ná til með hefðbundnum hætti.

PreciSense LiDAR og Reactive AI

Vélmennið notar háþróað PreciSense LiDAR leiðarkerfi til að kortleggja heimilið nákvæmlega og Reactive AI Obstacle Recognition til að greina og forðast allt að 108 tegundir af hindrunum. Þetta tryggir snjallt og skilvirkt leiðarval án árekstra.

Tvöfalt flækjuhindrunarkerfi

Roborock Qrevo Edge 5V1 er með DuoDivide® aðalbursta og FlexiArm™ Arc hliðarbursta sem eru hannaðir til að koma í veg fyrir að hár flækist. Þetta kerfi hefur verið vottað af SGS og TUV fyrir 0% hárflækju, sem gerir það tilvalið fyrir heimili með gæludýr.

FlexiArm™ Arc hliðarbursti

Með FlexiArm™ Arc tækninni nær hliðarburstinn að teygja sig út og hreinsa alveg inn í horn og meðfram veggjum, sem tryggir stærra hreinsunarsvæði og skilur ekki eftir óhreinindi á erfiðum stöðum.

Sjálftæmingarstöð 3.0

Sjálftæmingarstöðin tæmir sjálfkrafa rykhólfið í vélmenninu í 2.7 L rykpoka, sem dugar í allt að 7 vikur (eða 65 daga). Hún fyllir einnig á vatnstank vélmennisins, þvær moppurnar með 75°C heitu vatni og þurrkar þær með 45°C heitu lofti til að koma í veg fyrir myglu og lykt. Stöðin er einnig með sjálfhreinsun með heitu vatni og er með færanlegan botn til að auðvelda þrif.

Stærð

Ryksuguvélmenni: 35.2 x 35.2 x 9.79 cm (Breidd x Dýpt x Hæð) Sjálftæmingarstöð: 34.0 x 48.7 x 52.1 cm (Breidd x Dýpt x Hæð)

2.7 L rykpoki í stöð

Sjálftæmingarstöðin er með 2.7 L rykpoka sem getur haldið ryki í allt að 7 vikur án þess að þurfa að tæma hann handvirkt. Þetta dregur verulega úr tíðni viðhalds og eykur þægindi fyrir notandann.

Í kassanum fylgir:

  • Roborock Qrevo Edge 5V1 ryksuguvélmenni
  • Sjálftæmingarstöð
  • Rafmagnssnúra
  • Aðalbursti
  • Hliðarbursti
  • Moppur
  • Rykhólf
  • Vatnstankur
  • Rykhólf í stöð
  • Hreinn vatnstankur í stöð
  • Óhreinn vatnstankur í stöð

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur