Roborock Saros 20 ryksuguvélmenni með sjálftæmingarstöð

Roborock Saros 20 ryksuguvélmenni með sjálftæmingarstöð

229.990 kr.

Roborock Saros 20 er háþróað ryksuguvélmenni sem ryksugar og moppar heimilið af mikilli nákvæmni. Með AdaptiLift™ Chassis 3.0 kerfinu fer hún auðveldlega yfir háa þröskulda og StarSight™ Autonomous System 2.0 tryggir nákvæma kortlagningu og hindrunarvörn. Þessi öfluga ryksuga er hönnuð til að skila skínandi hreinum gólfum og býður upp á snjallar lausnir fyrir nútíma heimili.

– 36.000 Pa sogkraftur
– 180 mín vinnutími á einni hleðslu
– Ryksugar og moppar með snúningsmoppu
– Kemst yfir allt að 4.5+4.3cm þröskulda
– 7.95 cm hæð ryksuguvélmennis
– StarSight™ 2.0 leiðarkerfi, 300+ hindranir
– FlexiArm tækni og DuoDivide burstar
– DirTect tækni og Stain-Target AI
– Matter samhæfni og raddstýring
– Sjálftæmingarstöð með 100°C moppuþvotti
– Stærð
– Fleiri sniðugur eiginleikar

Á lager

Vörunúmer: S2052-00
Strikamerki: 6936905905291

Upplýsingar

36.000 Pa sogkraftur

Roborock Saros 20 er með að hámarki 36.000Pa HyperForce® sogkraft sem ræður við djúp óhreinindi og ryk á öllum gólfflötum, hvort sem er á hörðum gólfum eða teppum.

180 mín vinnutími á einni hleðslu

Vélin er með 6.400 mAh rafhlöðu og allt að 180 mínútna vinnutíma. Þegar rafhlaðan er komin niður fyrir 20% fer vélin sjálf í stöðina, hleður sig upp í 100% og heldur svo áfram þaðan sem hún var komin.

Ryksugar og moppar með snúningsmoppu

Vélin getur ryksugað, blautmoppað eða ryksugað og blautmoppað á sama tíma. Með snúningsmoppum sem snúast og þrýstast niður nær vélin að blautmoppa einstaklega vel. Hægt er að stilla hversu oft vélin fer í sjálftæmingarstöðina til að þrífa moppurnar í hverri lotu. Hægri moppan er á armi sem teygir sig alveg uppvið veggi og undir húsgögn. Þegar farið er yfir teppi með háu flosi er hægt að láta vélina skilja moppurnar eftir í sjálftæmingarstöðinni svo hún bleyti ekki í teppum. Sjálftæmingarstöðin skammtar sápu sjálfkrafa í vélina.

Kemst yfir allt að 4.5+4.3cm þröskulda

Með AdaptiLift™ Chassis 3.0 kerfinu getur Roborock Saros 20 klifrað yfir þröskulda allt að 8.8 cm á hæð (tvískipta), sem gerir henni kleift að þrífa án vandræða á milli herbergja með mismunandi gólfhæðum. Hún getur einnig aðlagað hæð sína fyrir teppi allt að 3 cm há.

7.95 cm hæð ryksuguvélmennis

Ryksuguvélmennið er 7.98 cm á hæð en getur þjappast aðeins saman til að komast undir húsgögn allt að 7.95 cm á hæð. Þetta gerir henni kleift að hreinsa á erfiðum stöðum eins og undir sófum og rúmum.

StarSight™ 2.0 leiðarkerfi, 300+ hindranir

Vélin er búin StarSight™ Autonomous System 2.0 leiðarkerfi sem notar LiDAR, 3D Time-of-Flight skynjara og gervigreindarmyndavél. Þetta kerfi kortleggur heimilið nákvæmlega, staðsetur sig af mikilli nákvæmni og þekkir yfir 300 mismunandi hindranir til að forðast að festast.

FlexiArm tækni og DuoDivide burstar

Með FlexiArm tækninni nær hliðarburstinn að teygja sig út til að hreinsa vel meðfram köntum og í hornum. DuoDivide & FlexiArm bursta kerfið er hannað til að koma í veg fyrir að hár flækist í burstunum, sem tryggir árangursríka hreinsun.

DirTect tækni og Stain-Target AI

DirTect tæknin notar RGB myndavél til að greina óhreinindi og bletti á gólfum. Í samvinnu við Stain-Target AI hreinsunina getur vélin sérsniðið hreinsunina eftir tegund og magni óhreininda, sem tryggir djúphreinsun á markvissum svæðum.

Matter samhæfni og raddstýring

Roborock Saros 20 er samhæfð Matter staðlinum og styður raddstýringu í gegnum Amazon Alexa, Google Home og Apple Home. Hún er einnig með innbyggðan raddaðstoðarmann sem gerir henni kleift að hlusta og svara skipunum, jafnvel án Wi-Fi tengingar.

Sjálftæmingarstöð með 100°C moppuþvotti

Sjálftæmingarstöðin tæmir rykhólfið sjálfkrafa, fyllir á heitt vatn í vatnstank ryksugunnar, hreinsar moppurnar með 100°C heitu vatni og þurrkar þær með 55°C heitu lofti. Hún er einnig með sjálfhreinsandi botn og er auðvelt að taka botninn út fyrir viðhald. Rykpoki endist í allt að 65 daga.

Stærð

Ryksuguvélmenni: 350 x 353 x 79.8 mm og 5.05 kg.
Sjálftæmingarstöð: 381 x 475 x 488 og 10.54 kg.

Fleiri sniðugur eiginleikar
  • Þrífur bakvið gluggatjöld (þarf að merkja í appinu)
  • Snýr aftur á staði sem hún missti af t.d vegna gæludýra eða fólk sem var fyrir
  • Stöðvar ryksugun þegar hún greinir dýr til að hræða þau ekki
  • Hægt að láta vélmennið taka myndir af gæludýrum þegar hreinsun er í gangi
  • Getur fundið gæludýr og jafnvel tekið myndsímtöl við þau
  • Roborock SmartPlan 3.0 leggur til þrifaplön

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Roborock Saros 20 ryksuguvélmenni
  • Sjálftæmingarstöð
  • Hleðslusnúra
  • Roborock Saros 20 ryksuguvélmenni
  • Sjálftæmingarstöð
  • Hleðslusnúra

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur