Roborock Saros 20 Sonic ryksuguvélmenni með sjálftæmingarstöð

Roborock Saros 20 Sonic ryksuguvélmenni með sjálftæmingarstöð

239.990 kr.

Roborock Saros 20 Sonic er háþróað ryksuguvélmenni sem ryksugar og moppar heimilið af mikilli nákvæmni. Með 36.000 Pa sogkrafti og víbringsmoppu sem lyftist sjálfkrafa yfir mottur og teygir sig út við veggi, tekst það á við erfiðustu óhreinindi á öllum gólfefnum. Háþróað leiðarkerfi og gervigreind tryggja skilvirk þrif og forðast hindranir, á meðan sjálftæmingarstöðin sér um að tæma, þvo og þurrka moppurnar. Þetta ryksuguvélmenni býður upp á áreynslulaus og sjálfvirk þrif fyrir hreinna heimili.

– 36.000 Pa sogkraftur
– Allt að 190 mín vinnutími
– Ryksugar og moppar með VibraRise 5.0
– Kemst yfir 4.5+4.3cm þröskulda
– 7,95 cm lágmarks hæð
– ReTractSense™ + ReactiveAI 3.0 leiðarkerfi
– DuoDivide aðalbursti og FlexiArm Arc hliðarbursti
– DirTect tækni fyrir blettagreiningu
– Hreinsar teppi vel
– Frábær gæludýravinur
– Roborock SmartPlan 3.0

Upplýsingar

36.000 Pa sogkraftur

Roborock Saros 20 Sonic er með öflugan 36.000 Pa HyperForce® sogkraft sem tryggir djúphreinsun á öllum gólfefnum. Sogkrafturinn er nægilega mikill til að ná upp jafnvel erfiðustu óhreinindum og ryki úr teppum og sprungum.

Allt að 190 mín vinnutími

Ryksuguvélmennið er með 6.400 mAh rafhlöðu sem býður upp á allt að 190 mínútna vinnutíma í ryksugustillingu og allt að 290 m² þrifsvæði. Í moppunarstillingu getur hún hreinsað allt að 340 m². Full hleðsla tekur um 2,5 klukkustundir.

Ryksugar og moppar með VibraRise 5.0

Vélin getur ryksugað, moppað eða gert hvort tveggja samtímis. VibraRise® 5.0 víbringsmoppukerfið þrýstist niður með 14N þrýstingi og víbrar 4.000 sinnum á mínútu til að skúra gólf. Moppurnar lyftast sjálfkrafa þegar vélin fer á teppi til að bleyta ekki í þeim og teygir moppuna alveg upp að vegg til að ná að hreinsa betur.

Kemst yfir 4.5+4.3cm þröskulda

AdaptiLift™ Chassis 3.0 kerfið gerir ryksuguvélmenninu kleift að lyfta sér yfir tvöfalda þröskulda, allt að 8,8 cm háa, sem tryggir óaðfinnanlega hreyfingu á milli herbergja. Vélin fer yfir allt að 4.5cm háa einfalda þröskulda.

7,95 cm lágmarks hæð

Ryksuguvélmennið er hannað til að komast auðveldlega undir húsgögn og á lága staði. Með 7,95 cm lágmarks hæð (robot body height) getur hún þrifið á svæðum sem erfitt er að ná til.

ReTractSense™ + ReactiveAI 3.0 leiðarkerfi

Vélin notar RetractSense og ReactiveAI 3.0 leiðarkerfi sem sameinar háþróaða sjónskynjara og LiDAR kortlagningu. Reactive AI 3.0 hindrunargreiningarkerfið þekkir yfir 300 tegundir af hlutum og forðast þá á skilvirkan hátt.

DuoDivide aðalbursti og FlexiArm Arc hliðarbursti

Roborock Saros 20 Sonic er með DuoDivide aðalbursta og FlexiArm Arc hliðarbursta. Þetta tvöfalda flækjuhindrandi kerfi er hannað til að koma í veg fyrir að hár, allt að 40 cm löng, flækist í burstunum, sem er sérstaklega hentugt fyrir heimili með gæludýr.

DirTect tækni fyrir blettagreiningu

DirTect tæknin notar RGB myndavél til að greina mikil óhreinindi og bletti, sem kallar sjálfkrafa fram dýpri hreinsun. Stain-Target AI hreinsun greinir tegund bletta og aðlagar hreinsunarstefnur, til dæmis með því að auka sogkraft fyrir kaffiduft eða skipta yfir í moppun fyrir vökva.

Hreinsar teppi vel

Carpet Intelligence System skynjar breytingar á gólfefnum og aðlagar hreinsunarhegðun vélarinnar sjálfkrafa. Þetta tryggir ákjósanlegan sogkraft á teppum allt að 3 cm þykkum og sjálfvirka lyftingu á moppum til að koma í veg fyrir að teppi blotni.

Frábær gæludýravinur

Vélin skynjar þegar hún er nálægt gæludýrum og fer varlega í kringum þau til að hræða ekki. Í appinu er hægt að kveikja á því að vélin taki myndir af gæludýrum þegar hún verður var við þau í hreinsun og sendir þau inní appið. En einnig er hægt að láta vélmennið leita að gæludýrum og jafnvel hefja myndsamtöl við þau.

Roborock SmartPlan 3.0

SmartPlan 3.0 kerfið er gervigreindarknúið snjallkerfi sem lærir inná heimilið, gólfefnin og herbergin til að aðlaga hreinsun að aðstæðum og hreinsa á sem skilvirkastan hátt.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Roborock Saros 20 Sonic ryksuguvélmenni
  • Sjálftæmingar- og hleðslustöð
  • Leiðbeiningabæklingur
  • Roborock Saros 20 Sonic ryksuguvélmenni
  • Sjálftæmingar- og hleðslustöð
  • Leiðbeiningabæklingur

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur