39.990 kr.
XGIMI Portable Outdoor Screen er færanlegt tjald á standi fyrir skjávarpa með 155 × 87 cm myndfleti. Það er sett upp á um einni mínútu, vegur 1,5 kg og fer samanbrotið í 45 cm langan poka.
Upplýsingar
Myndflöturinn er 155 cm á breidd og 87 cm á hæð í hlutföllunum 16:9. Tjaldið gefur sléttan og hvítan flöt í útilegunni, við bústaðinn eða á pallinum, þar sem enginn hentugur veggur er til að varpa á.
Tjaldið er ætlað skjávörpum sem varpa úr fjarlægð, til dæmis XGIMI MoGo 4, Halo+ og Horizon. Stilltu því upp á pallinum eða grasinu og kvöldið verður að bíói undir berum himni.
Stangirnar í standinum eru þræddar saman á teygju og renna saman í einu handtaki. Dúkurinn er svo hengdur á krókana að ofan og neðan og strekktur þar til hann er sléttur.
Dúkurinn er úr teygjanlegu efni sem sléttist þegar hann er strekktur, svo myndin verður jöfn þótt tjaldið hafi legið samanbrotið í pokanum. Hann má þvo í höndunum í volgu vatni og strauja við lægri hita en 130 °C.
Fjórir sterkir hælar fylgja og eru reknir niður í gegnum fæturna á standinum, svo tjaldið stendur stöðugt úti.
Grindin er úr áli sem þolir vatn og ryðgar ekki, svo tjaldið þolir að standa úti í röku grasi kvöld eftir kvöld.
Tjaldið vegur 1,5 kg og samanbrotið er það 45 cm á lengd. Standur og dúkur fara í poka sem fylgja og komast í bakpoka eða skottið á bílnum.
Uppsett er tjaldið 176 cm á breidd, 137 cm á hæð og 43 cm á dýpt. Það stendur sjálft á fjórum fótum og þarf hvorki vegg né festingu.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar