12.990 kr. Original price was: 12.990 kr..9.743 kr.Current price is: 9.743 kr..
Xiaomi Dust Mite Vacuum Cleaner rykmaurasuga er létt ryksuga fyrir dýnur, rúmföt og sófa með 12.000 Pa sogkraft. Hún bankar 12.000 sinnum á mínútu, lýsir með útfjólubláu ljósi, blæs 50 °C heitu lofti og vegur 1,63 kg.
Upplýsingar
Sogkrafturinn er 12.000 Pa og nær rykmaurum, hárum, mylsnu og ryki upp úr dýnum og áklæði, ekki bara af yfirborðinu.
Þrjár plötur undir ryksugunni banka samtals 12.000 sinnum á mínútu og hrista rykmaura lausa úr efninu svo sogið nái þeim. Bankið fer í gang þegar ryksugunni er þrýst létt niður á efnið og stöðvast þegar henni er lyft. Hár vefjast síður um plötur en bursta.
Útfjólublátt ljós með 254 nm bylgjulengd lýsir á efnið og vinnur á bakteríum og rykmaurum. Ljósið kviknar þegar ryksugan er lögð á efnið og slokknar þegar henni er lyft. Í prófunum fjarlægir hún allt að 90% rykmaura og 99% baktería.
Ryksugan blæs um 50 °C heitu lofti sem dregur raka úr rúmfötum og dýnu. Þurrt umhverfi hentar rykmaurum og bakteríum illa. Hún kemur þó ekki í stað þurrkara.
Hvirfill skilur rykið frá loftinu, stálnet tekur stærri agnir, felld sía þær smáu og bómullarsía hreinsar útblásturinn. Ryksugan í heild heldur eftir 99% agna frá 0,3 μm.
Í gegnum gegnsætt rykhólfið sést hvað kemur úr rúminu. Hólfið losnar af með einum hnappi og er tæmt beint í ruslið.
Síurnar eru teknar úr og þvegnar og notaðar aftur. Þær þurfa að þorna vel áður en þær eru settar í. Gott er að skipta um síu á 2–3 mánaða fresti.
Ryksugunni er stjórnað með einum hnappi. Hjól undir henni láta hana renna létt yfir dýnuna og handfangið er opið svo hægt er að ýta og draga með annarri hendi.
Auk dýnunnar má nota hana á rúmföt, sófa, púða og tuskudýr barna.
Ryksugan er 23,9 × 23 × 14,4 cm og vegur 1,63 kg. Hún er með snúru, svo aldrei þarf að hlaða hana. Aflið er 350 W og hljóðið er mest 78 dB.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar