15.990 kr.
Xiaomi Karaoke hljóðneminn er fullkominn fyrir þá sem vilja syngja með uppáhalds lögunum sínum hvar og hvenær sem er. Hann tengist auðveldlega við snjallsíma eða Xiaomi sjónvörp með Bluetooth.
Upplýsingar
Hljóðneminn er með tvo 5W hátalara sem snúa í sitthvora átt og gefa frá sér KTV-gæða hljóð með góðum bassa. Hann er með 2.500 mAh rafhlöðu sem dugar í allt að 7 klukkustundir af samfelldum söng, og er hlaðinn með Type-C tengi.
Hægt er að velja úr 9 mismunandi raddbreytum, eins og „Monster“, „Cartoon“ eða „Super reverb“, til að gera sönginn enn skemmtilegri. Innbyggð DSP flaga sér um að bæta hljóðgæði, draga úr hávaða og koma í veg fyrir óæskileg hljóð.
Hljóðneminn tengist þráðlaust við tæki með Bluetooth 5.1 og hefur allt að 10 metra drægni. Hann er samhæfur við farsíma og ýmis Xiaomi sjónvörp, sem gerir hann fjölhæfan í notkun.
Með 16mm hljóðnema kjarna fangar hljóðneminn röddina skýrt og án bjögunar. Hljóðneminn er einnig með hljóðnema froðu sem dregur úr „popping“ hljóðum við söng.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar




