5.990 kr.
Xiaomi LCD 13.5″ teiknitafla með lit er teiknitafla með 13,5″ skjá (34,3 cm) þar sem strikin birtast í mörgum litum. Skjárinn er hreinsaður með einni snertingu, penninn festist með segli og ein hnapparafhlaða endist í allt að ár.
Upplýsingar
Skjárinn er með LCD filmu sem skiptist í litasvæði, svo strikin verða í ólíkum litum eftir því hvar teiknað er. Ramminn er mjór, svo teikniflöturinn nýtist vel.
Skjárinn nemur þrýsting: létt strik verða mjó og fast strik breið, líkt og með blýanti eða tússi.
Skjárinn hreinsast þegar toppnum á pennanum er tyllt á svæðið efst á töflunni, eða með hnappi. Láshnappur kemur í veg fyrir að teikningu sé eytt óvart.
Penninn smellur í rauf á töflunni og segull heldur honum, svo hann týnist síður.
Skjárinn notar eingöngu rafmagn þegar hann er hreinsaður. Ein CR2025 hnapparafhlaða endist í allt að 365 daga miðað við að hreinsað sé 100 sinnum á dag. Skjárinn er án baklýsingar, ekkert ryk eða blek fylgir honum og hann sparar pappír.
Taflan er 21,4 × 30 × 0,72 cm, úr ABS plasti.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar
Teiknaðu eða taktu nótur á ferð og flugi
Umhverfisvænni leið í að teikna og skrifa | Einn hnappur strokar út allann skjá | Penni seglast á hlið | Létt og meðfærileg | Ryk- og bleklaust | Löng rafhlöðuending
Ótrúlega létt teiknitafla sem er ómissandi á öll heimili. Teiknitaflan er tilvalin til þess að nóta niður á fundum, skrifa niður innkaupalista eða fyrir krakka heimilisins til þess að teikna það sem þeim dettur í hug.
Strokast út með pennanum
Með því að smella toppnum af pennanum við toppinn á teiknitöflunni er hægt að stroka allt út og byrja aftur frá grunni. Hægt er að læsa töflunni svo að það strokist ekki óvart út.
Stylus penni seglast á hlið
Á hlið teiknitöflunnar er segulvagga fyrir pennann svo að hann gleymist aldrei þegar hlupið er á milli staða.
Hárnákvæmar litastrokur
LCD teiknitaflan er einstaklega nákvæm, breiddin á strokunum fara eftir því hversu fast pennanum er þrýst niður á filmuna. Því fastar, því breiðari er strokan. Filman á LCD töflunni glampar lítið frá sólarljósi og verndar augun.
Endist og endist
CR2025 hnapparafhlaðan er eingöngu notuð þegar verið er að stroka út af teiknitöflunni, miðað við að stroka út 100 sinnum á dag endist rafhlaðan í rúmlega ár.
á dag
á dag
Stroka út
Takki á topp töflunnar strokar allt út
Læsing
Hægt er að læsa töflunni svo það strokist ekki út óvart
Endingargott efni
Teiknitaflan er þægileg í hendi og úr endingargóðu ABS efni