Xiaomi Mijia Brushless Cordless Drill 2 skrúf- og borvél

Xiaomi Mijia Brushless Cordless Drill 2 skrúf- og borvél

16.990 kr.

Xiaomi Mijia Brushless Cordless Drill 2 er öflug þráðlaus borvél með burstalausum mótor. Hún er hönnuð fyrir allskonar verkefni heima fyrir eða í vinnunni, allt frá því að bora í við og málm yfir í að herða skrúfur af nákvæmni.

– 50 N·m togkraftur, 1.700 sn/mín
– 1.900 mAh rafhlaða, USB-C hleðsla
– 2 hraðastillingar 32 togkraftsstillingar
– Innbyggður skjár
– Snjöll sjálfvirk togstilling
– Gott grip á handfangi
– Innbyggt LED ljós
– 16 mismunandi hausar
– Borar fyrir mörg mismunandi efni

Á lager

Vörunúmer: 72648
Strikamerki: 6932554480059

Upplýsingar

50 N·m togkraftur, 1.700 sn/mín

Í borvélinni er öflugur burstalaus mótor sem skilar allt að 50 N·m í togkrafti og 1.700 snúningum á mínútu. Þetta auðveldar henni að vinna skilvirkt og nákvæmt, hvort sem að þú sért að bora eða skrúfa.

1.900 mAh rafhlaða, USB-C hleðsla

Með 1.900 mAh Lithium-ion rafhlöðu er hægt að bora allt að 200 göt eða skrúfað um 600 skrúfur á einni hleðslu. Borvélin notast við USB-C hleðslu og hægt er að fullhlaða hana á um 2 klukkustundum.

2 hraðastillingar 32 togkraftsstillingar

Hægt er að velja á milli tveggja hraðastillinga (hámarkshraða 0-1.700 sn/mín og lágmarkshraða 0-400 sn/mín) og 32 togkraftsstillinga. Það gefur þér fulla stjórn á borvélinni og tryggir að þú getir valið rétta stillingu fyrir hvert verkefni, hvort sem það sé fínar hreyfingar í nákvæmnis vinnu eða mikinn kraft til þess að bora í harða veggi.

Innbyggður skjár

Innbyggður skjár sýnir þér allar helstu upplýsingar sem að þú þarft að vita, eins og t.d. rafhlöðustöðu, stillingu o.fl.

Snjöll sjálfvirk togstilling

Til þess að sporna við skemmdum skrúfum eða óþarfa togkrafti þá er snjallflaga í borvélinni sem að getur stillt togkraftinn sjálfkrafa. Þetta getur auðveldað vinnuna og gerir borvélina öruggari bæði fyrir byrjendur og lengra komna.

Gott grip á handfangi

Handfangið er gúmmíhúðað til að veita þægilegt og öruggt grip sem rennur ekki til. Þetta er mikilvægt fyrir nákvæmni og öryggi við vinnu, sérstaklega þegar unnið er í lengri tíma.

Innbyggt LED ljós

Innbyggt vinnuljós lýsir upp vinnusvæðið og gerir það sýnilegra. Það er mjög gagnlegt þegar að unnið er í myrkri eða þar sem að er léleg birta.

16 mismunandi hausar

Með borvélinni fylgja 16 mismunandi skrúfjárnshausar fyrir allskonar skrúfur. 

Borar fyrir mörg mismunandi efni

Borvélin er hönnuð með það í huga að geta borað í flest efni. 8 mismunandi borar fylgja með sem að geta borað í t.d. viðarefni, málm, múrstein, flísar o.fl. Borvélin er þar af leiðandi tilvalin í flest verk á heimilinu eða í vinnu.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Xiaomi Mijia Brushless Cordless Drill 2
  • Hleðslusnúra (USB-C)
  • Hleðslukubbur
  • Borar fyrir tré (3x)
  • Borar fyrir málm (3x)
  • Borar fyrir keramik (2x)
  • Skrúfjárnshöfuð (16x)
  • Framlenging með segli
  • Geymslutaska
  • Xiaomi Mijia Brushless Cordless Drill 2
  • Hleðslusnúra (USB-C)
  • Hleðslukubbur
  • Borar fyrir tré (3x)
  • Borar fyrir málm (3x)
  • Borar fyrir keramik (2x)
  • Skrúfjárnshöfuð (16x)
  • Framlenging með segli
  • Geymslutaska

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur