Mijia er heimilislína Xiaomi. „Mi“ stendur fyrir Xiaomi og „jia“ fyrir heimili. Mijia þýðir því í raun „Xiaomi-heimilið“. Undir þessu merki hannar Xiaomi sniðug og stílhrein heimilistæki sem einfalda daglegt líf.
24.990 kr.
Mijia Capsule Coffee Machine hylkjakaffivél hellir upp á með 19 bara dælu og er tilbúin eftir 25 sekúndna upphitun. Hún er 9 cm á breidd, með tvær stærðir af bolla og stand með segli fyrir allt að 20 kaffihylki.
Upplýsingar
Dælan skilar 19 bara þrýstingi og heldur honum stöðugum á meðan hellt er upp á. Það nær bragðinu vel úr hylkinu og gefur þétta og mjúka froðu ofan á kaffið.
Hitakerfið er 1.360 W og vélin er 25 sekúndur að hitna. Það þarf því ekki að bíða eftir fyrsta bollanum á morgnana.
Hitanemi fylgist með vatninu og stýring heldur hitanum jöfnum. Rétt hitastig dregur fram bragðið og kemur í veg fyrir að kaffið verði beiskt, svo hver bolli verður eins.
Valið er á milli lítils bolla, um 40 ml, og stórs, um 110 ml. Magninu er breytt með því að halda hnappinum inni og vélin man þá stillingu næst.
Kaffið er lagað með einni snertingu: kveikt er á vélinni, hylki sett í og ýtt á hnapp fyrir þá stærð sem óskað er.
Vélin passar fyrir flest kaffihylki á markaðnum. Áður en hylki eru keypt borgar sig að bera stærð þeirra saman við málin sem fylgja vélinni.
Með vélinni fylgir standur með segli sem tekur allt að 20 kaffihylki. Hann festist á vélina sjálfa, á ísskápinn eða á annan flöt úr málmi, svo hylkin eru alltaf við höndina og taka ekki pláss á borðinu.
Hljóðið er 55 dB(A) á meðan vélin hellir upp á, svo hægt er að laga kaffi á morgnana án þess að vekja aðra á heimilinu.
Bakkinn undir bollanum er stilltur á tvær hæðir, fyrir bolla allt að 8,8 cm eða 10,8 cm á hæð, svo bæði litlir bollar fyrir espressó og háar krúsir komast undir stútinn.
Vatnstankurinn tekur um 650 ml og er tekinn af til að fylla á hann og þrífa. Vélin slekkur á sér eftir 10 mínútur án notkunar og sparar þannig rafmagn.
Vélin er 33,2 × 9 × 21,2 cm, álíka og A4-blað séð frá hlið, og vegur um 2,4 kg. Aflið er 1.400 W.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar