Mijia er heimilislína Xiaomi. „Mi“ stendur fyrir Xiaomi og „jia“ fyrir heimili. Mijia þýðir því í raun „Xiaomi-heimilið“. Undir þessu merki hannar Xiaomi sniðug og stílhrein heimilistæki sem einfalda daglegt líf.
24.990 kr.
Mijia hylkjakaffivélin er nett og stílhrein kaffivél sem gerir þér kleift að njóta ljúffengs kaffis fljótt og auðveldlega. Hún er hönnuð til að vera einföld í notkun og passar vel inn í hvaða eldhús sem er. Vélin er einungis um 25 sekúndur að hitna svo að kaffið getur verið klárt á augabragði. Með vélinni fylgir hylkjageymsla sem hægt er að segla annaðhvort á vélina eða önnur yfirborð eins og t.d ísskáp, geymslan heldur allt að 20 hylkjum.

Upplýsingar
Kaffivélin er búin öflugri 19 Bar ULKA® dælu sem stöðugan þrýsting fyrir fullkominn kaffiútdrátt. Það skilar bragðmiklu kaffi með þykkri froðu, svipað og á kaffihúsi.
Tækið hitar sig upp á aðeins 25 sekúndum, sem þýðir að þú þarft ekki að bíða lengi eftir kaffinu þínu á morgnana. Þú getur einfaldlega kveikt á vélinni, sett hylki í og kaffið verður tilbúið á skammri stundu.
650 ml vatnstankur sem auðveldar þér að fylla á vatnið. Einnig er auðvelt að þrífa tankinn.
Vélin býður upp á 40ml og 110ml bollastærðir en þú getur vistað þína eigin stærð.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar