Mijia er heimilislína Xiaomi. „Mi“ stendur fyrir Xiaomi og „jia“ fyrir heimili. Mijia þýðir því í raun „Xiaomi-heimilið“. Undir þessu merki hannar Xiaomi sniðug og stílhrein heimilistæki sem einfalda daglegt líf.
49.990 kr.
Mijia Smart Air Purifier 6 lofthreinsitæki hreinsar allt að 443 rúmmetra af lofti á klukkustund og hentar 29 til 50 fermetra rýmum. Það er með fimm skynjara, fimm þrepa hreinsun með útfjólubláu ljósi og LCD-litaskjá sem sýnir loftgæðin.
Upplýsingar
Tækið skilar allt að 443 rúmmetrum af hreinu lofti á klukkustund og hentar 29 til 50 fermetra rýmum. Loftið í 10 fermetra herbergi með 2,4 m lofthæð fer einu sinni í gegnum tækið á um 3,5 mínútum, svo herbergið fyllist fljótt af hreinu lofti.
Loftið fer í gegnum forsíu sem tekur ryk, frjókorn og flösu, fína síu, virk kol, útfjólublátt ljós og að lokum neikvæðar jónir. Fína sían fangar í prófunum allt að 99,98% af ögnum sem eru 0,3 míkrómetrar að stærð, til dæmis svifryk og tóbaksreyk.
Virku kolin draga í sig formaldehýð og aðrar rokgjarnar lofttegundir, sem geta komið frá nýjum húsgögnum, málningu, dýnum og teppum, og taka líka lykt frá gæludýrum og heimilinu. Það kemur sér vel í nýuppgerðu húsnæði.
Innbyggt UVC-ljós lýsir á síuna og loftið og heldur síunni hreinni. Í prófunum eyddi tækið allt að 99,99% af inflúensuveirunni H1N1 og allt að 99,9% af bakteríum eins og E. coli á einni klukkustund.
Sían fangar frjókorn, flösu frá gæludýrum og aðra ofnæmisvalda. Í prófunum fjarlægði tækið allt að 98 til 99% af ofnæmisvöldum frá frjókornum, köttum og rykmaurum á einni klukkustund.
Tækið mælir mjög fínt svifryk (PM1), fínt svifryk (PM2,5), gróft ryk eins og frjókorn, hita og raka. PM1 eru agnir undir einum míkrómetra, þær allra fínustu sem tækið mælir.
Litaskjár á tækinu sýnir loftgæðin, svo árangurinn sést strax. Í Xiaomi Home appinu er hægt að fylgjast með loftinu, stýra tækinu að heiman, stilla hvenær það kveikir og slekkur á sér og sjá hvað er eftir af síunni.
Í svefnstillingu er hljóðið 32 dB(A). Tækið má því ganga á meðan sofið er eða lesið án þess að trufla.
Sían endist í 6 til 12 mánuði eftir notkun, svo ekki þarf að skipta oft.
Hurðin að síunni er með segli og opnast auðveldlega, svo það tekur stutta stund að skipta um síu.
Lokið efst á tækinu er tekið af til að komast að viftunni og þurrka ryk af spöðunum og innan úr tækinu.
Tækið er 25 × 25 × 55,5 cm og vegur um 5,2 kg. Aflið er 40 W.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar