Xiaomi Pad 6 11″ 128GB spjaldtölva

79.990 kr.

  • 11″ 144Hz LCD Dolby Vision skjár
  • Snapdragon 870 7nm örgjörvi
  • 6GB/128GB minni
  • WiFi 6, Bluetooth 5.2
  • Fjórfaldir Dolby Atmos hátalarar
  • 8.840mAh rafhlaða, 33W hraðhleðsla
  • 13MP aðalmyndavél, 8MP fram myndavél
Vörunúmer: MIIV-0088 Categories , ,

Pad 6 spjaldtölva

Frábær félagi í vinnu, skóla og skemmtun

WQHD+ skjár
144Hz 7-þrepa breytileg endurnýjunartíðni

11″ tommu skjárinn á Xiaomi Pad 6 er með 2880×1800 upplausn með 309ppi þannig að hvert smáatriði lifnar við á skjánum. Endurnýjunartíðnin er breytileg eftir því hvað er í gangi á spjaldtölvunni, að hámarki er tíðnin 144Hz en til að spara rafhlöðu lækkar endurnýjunartíðnin á tölvunni þegar það er ekki þörf á 144Hz.

11″ skjár

309

ppi

Dolby Vision®

HDR10

DCI-P3 litasvið

Dýnamískar úrbætur

Bláljósasía verndar augun

Xiaomi Pad 6 styður lestrarham með lágum bláljósum vottuðu af TÜV Rheinland.
Alhliða birtudimming verndar augun til lengri tíma.

Skynjar umhverfið og aðlagar birtustig skjásins

TÜV Rheinland lág blaljósa vottun

Fjórfaldir hátalarar með Dolby Atmos® stuðning mynda magnað stereo hljóð

Snapdragon® 870 örgjörvi
Hröð vinnsla í kröfuhörðum aðstæðum

Flaggskipsörgjörvinn Snapdragon® 870 tryggir það að Xiaomi Pad 6 spjaldtölvan er tilbúin í alla vinnslu. Spjaldtölvan er vel í stakk búin til að takast á við krefjandi forrit, skipta á milli margra forrita, spila tölvuleiki og jafnvel vinna í 4K myndböndum.

Löng rafhlöðuending með hraðhleðslu
Tilbúin í hvað sem er, hvar sem er

8.840mAh rafhlaðan á Xiaomi Pad 6 sér til þess að spjaldtalvan er alltaf tilbúin í verkefnin sem þú setur fyrir hana, hvort sem það er að horfa á myndbönd, spila leiki, fara á vinnufundi eða þegar þú ert að ferðast. Þegar kemur svo að því að hlaða spjaldtölvuna þá er 33W hraðhleðsla örsnögg að hlaða hana aftur upp

33W

99 mínútur frá 0-100%

Biðtími

Allt að 26 dagar

Tónlist

Allt að 65 klukkustundir

Myndbönd

Allt að 16 klukkustundir

Lestur

Allt að 23 klukkustundir

Draga með 3 fingrum
Skipta upp skjánum

Hægt er að skipta upp skjánum fljótlega með því að draga 3 fingur yfir skjáinn. Þannig er hægt að t.d hafa glósur til hliðar við myndband

Allt að fjögur forrit opin samtímis

Hámarkaðu fjölverkavinnsluna með því að hafa allt að 4 glugga opna á sama tíma

Draga og sleppa
Auðveld afritun á milli forrita

Textar, myndir og skjöl er auðvelt að deila á milli forrita með því einfaldlega að draga og sleppa.

*Ekki öll forrit styðja afritun á milli

8MP selfie myndavél með
FocusFrame

Frammyndavélin á Xiaomi Pad 6 er einstaklega góð fyrir fjarfundi, sjálfkrafa fyllir hún myndina af ljósi ef lítil birtuskilyrði eru til staðar svo að þú gjörsamlega skínir. FocusFrame passar að þú sért alltaf aðalatriðið og virkar þótt að fleiri en einn séu í rammanum.

Fjöldi míkrófóna taka inn hljóð fyrir mismunandi aðstæður

Xiaomi Pad 6 er með míkrófóna sem geta tekið upp hljóð eftir því hvað hentar best hverju sinni. Hægt er að taka upp hljóð 60° fyrir framan tölvuna sem hentar þegar fáir eru á fundi og síðan er hægt að taka upp hljóð í 360° sem er frábært þegar margir eru á fundinum. Hægt er að kveikja á sérstakri stillingu sem minnkar hljóð frá umhverfinu.

Allt sem þú þarft til að gera fjarfundina betri bíður eftir þér í “Conference Tools”

Sérstakar stillingar eru aðgengilegar til að gera fjarfundina sem skilvirkasta.

Hámarkaðu afköstin
með góðum vinnufélögum

Pad 6 lyklaborðshulstur

Stórt 64 takka lyklaborð
Bakhlið seglast við spjaldtölvuna