16.990 kr. Original price was: 16.990 kr..15.291 kr.Current price is: 15.291 kr..
Xiaomi Portable Photo Printer 1S ferðaprentari er ljósmyndaprentari sem kemst í vasa og prentar myndir beint úr símanum með Bluetooth, án bleks. Hann vegur um 180 g, prentar um 20 myndir á hleðslunni og pappírinn er með lími á bakinu.
Upplýsingar
Prentarinn er þunnur og léttur, um 180 g og kemst í vasa eða litla tösku. Þá er hægt að prenta myndir á staðnum, í veislunni, á ferðalaginu eða í lautarferðinni.
Prentarinn notar ZINK tækni þar sem liturinn er í pappírnum sjálfum og hitinn frá prenthausnum kallar hann fram. Það þarf því hvorki blekhylki né borða, eingöngu pappír. Hver mynd er 5 × 7,6 cm og prentast á um 45 sekúndum.
Prentarinn tengist símanum með Bluetooth og þarf ekki Wi-Fi. Allt að þrír geta verið tengdir í einu og myndirnar prentast hver á eftir annarri, svo allir í hópnum fá sínar myndir.
Bakið er tekið af pappírnum og myndin límd þar sem hún á að vera, til dæmis í dagbók, á ísskáp eða á gjafakort. Myndirnar má líka klippa til.
Í Xiaomi Home appinu er hægt að velja ramma, bæta við eigin merki, raða mörgum myndum saman á eina, skipta mynd á fleiri blöð og velja á milli átta sía áður en prentað er.
Innbyggð 500 mAh rafhlaða dugar í um 20 myndir og er hlaðin með USB-C snúru sem fylgir.
Prentarinn er 12,4 × 8,2 × 2,2 cm og vegur um 180 g. Hann virkar með símum og spjaldtölvum með Android 8 eða iOS 12 og nýrra.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar