Xiaomi Self-Install Smart Lock snjalllás með talnaborði

Xiaomi Self-Install Smart Lock snjalllás með talnaborði

29.990 kr.

Xiaomi snjalllásinn er auðveldur í uppsetningu og veitir öruggar aðgangslausnir fyrir heimilið. Hægt er að opna hann með fingrafari, lykilorði eða í gegnum app. Snjalllásinn tengist beint við WiFi og þarf því ekki stjórnstöð til að fjarstýra honum. Í Xiaomi Home appinu er hægt að breyta stillingum, bæta við notendum eða búa til lykilorð sem virka á ákveðnum tímum. Einnig er hægt að læsa og aflæsa lásnum í gegnum appið. Rafhlaðan dugar í allt að 6 mánuði en mælt er með að vera með aðgang að aðallyklinum ef ske kynni að lásinn yrði batteríslaus og hurðin læst. Talnaborðið er með IP65 skvettuvörn.

– Margir opnunarmöguleikar
– Matter og snjallheimilis stuðningur
– Wi-Fi (2.4 GHz) og Bluetooth 5.0
– Virkar á flestar lásaskrár
– IP65 vatns- og rykþolið talnaborð
– Samstarf við Lásaþjónustuna ehf. um uppsetningu

Á lager

Vörunúmer: 65471
Strikamerki: 6932554432393

Upplýsingar

Margir opnunarmöguleikar

Lásinn býður upp á ýmsa opnunarmöguleika til að tryggja aðgengi og öryggi. Þú getur notað fingrafar, langtímalykilorð, tímabundin lykilorð, einnota lykilorð, opnað með Bluetooth, fjaropnað með Xiaomi Home appinu, notað raddstýringu eða hefðbundinn lykil. Fingrafaragreiningin er 99.3% nákvæm.

Matter og snjallheimilis stuðningur

Snjalllásinn styður Xiaomi Home appið og Matter vistkerfið, sem gerir hann samhæfan við helstu snjallheimaaðstoðarmenn eins og Alexa, Google Assistant og Apple Home. Þetta gerir þér kleift að stýra lásnum og fylgjast með stöðu hans úr fjarlægð.

Wi-Fi (2.4 GHz) og Bluetooth 5.0
Virkar á flestar lásaskrár
IP65 vatns- og rykþolið talnaborð
Samstarf við Lásaþjónustuna ehf. um uppsetningu

Við erum í samstarfi við Lásaþjónustuna ehf. sem tekur að sér faglega uppsetningu á öllum snjalllásum. Athugið að þjónustan nær eingöngu yfir ásetningu á hurðina; þau koma ekki að tengingu við app eða öðrum hugbúnaðarstillingum.

  • Sími: 894-5858

  • Viðbragðstími: Yfirleitt samdægurs eða næsta dag (fer eftir verkefnaálagi).

  • Kostnaður: Sirka 25.000 kr. með öllu, en endanlegt verð fer eftir gerð núverandi láss og umbúnaði.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Xiaomi Self-Install Smart Lock
  • Fingrafaralyklaborð
  • Hurðarskynjari
  • Lithium-ion rafhlaða (2450mAh)
  • 2x AA rafhlöður
  • Leiðbeiningabæklingur
  • Xiaomi Self-Install Smart Lock
  • Fingrafaralyklaborð
  • Hurðarskynjari
  • Lithium-ion rafhlaða (2450mAh)
  • 2x AA rafhlöður
  • Leiðbeiningabæklingur

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur