14.990 kr.
360° öryggismyndavél fyrir heimili, skrifstofur og bústaði
2.5K upplausn | 5MP | 360° hreyfigeta | Infrarauð nætursjón | Eltir hreyfingu | Gervigreind skynjar manneskjur | 2.4GHz / 5GHz WiFi | Tvíhliða samtöl
C500 nær að vakta stórt svæði en vélinni er hægt að snúa í appinu 360° til hliðanna og 114° upp og niður. Myndavélin getur einnig elt hreyfingar með notkun gervigreindar og sent tilkynningar í síma þegar hreyfing er á sjónsviði myndavélarinnar.
Xiaomi C500 öryggismyndavélin er með 5MP linsu sem skilar upplausn 2960×1666 eða 3K. Það tryggir að fleiri smáatriði sjáist og allt verður þeim mun skarpara. Linsan minnkar einnig truflun frá ljósi og upptakan verður þar af leiðandi líflíkari.
Sofðu rótt með öryggið á oddinum
C500 er með 940nm infrarauðri nætursjón. Vélin sér einstaklega vel í lágum birtuskilyrðum og gefur ekki frá sér ljós sem gæti truflað værann svefn.
Skynjar hreyfingu og sendir tilkynningar
C500 er með uppfærðu gervigreindar reikniriti. Gervigreindin er betur í stakk búin að greina hreyfingar og mannaferðir og senda tilkynningar í síma. Gervigreindin sér einnig til þess að sía út óþarfa tilkynningar. Hægt er að stilla myndavélina þannig að hún elti hreyfingar.
Tvíhliða samtöl í rauntíma
Með Xiaomi Home appinu er hægt að hefja tvíhliða samtal í rauntíma þökk sé innbyggðum míkrófón og hátalara í myndavélinni. Myndavélin nær að taka upp hljóð frá allt að 5 metrum og síar út óþarfa læti fyrir skýrari samtöl.
Staðbundin geymsla + skýjageymsla = meira öryggi
Hægt er að setja SD kort í myndavélina sem vistar upptökur þegar hreyfing er skynjuð. Myndavélin tekur allt að 256GB stórt SD kort. Eftir að myndavélin hefur verið tengd við Xiaomi Home appið vistast allt að 9 sekúndna myndbönd í allt að 3 mánuði í skýjageymslu. Ef þörf krefur er hægt að kaupa aðgang að stærri hýsingu með lengri upptökum í hvert sinn.
microSD kort
Allt að 256GB
Skýjageymsla
Ótakmörkuð geymsla
Upp eða niður, þitt er valið!
Einföld uppsetning í þremur skrefum
Náðu í Xiaomi Home appið og stofnaðu aðgang/skráðu þig inn
Tengdu myndavélina í rafmagn og bíddu eftir að það komi appelsínugult ljós hjá linsunni
Ýttu á plúsinn (+) í efra hægra horninu og leitaðu að C500, fylgdu leiðbeiningum í appinu og vélin verður tilbúin til notkunar
BLE gateway er Bluetooth brú til þess að nýta vélina með öðrum Xiaomi snjall tækjum. Það er einfalt að tengja önnur tæki með C500 Pro myndavélinni, einfaldlega kveikja á Bluetooth mesh gateway og þú getur byrjað að tengja hin tækin þín við myndavélina.
Ármúli 21
mibudin@mibudin.is
537-1800
Virkir dagar: 11:00 – 18:00
Laugardagar: 12:00 – 16:00
Sunnudagar: Lokað
Fylgdu okkur
Allt efni á vef þessum er í eigu Mii ehf og er verndað af ákvæðum höfundalaga, þ.m.t myndir og texti. Án samþykkis er öll notkun á efni vefsins óheimil. Notkun efnis getur haft bóta- og refsiábyrgð í för með sér.
© 2024, Mi búðin. Viðurkenndur sölu- og dreifingaraðili Xiaomi á Íslandi.