3.990 kr.
Xiaomi Smart Plug 2 snjöll Wi-Fi innstunga gerir venjuleg raftæki snjöll: kveikt og slökkt er úr símanum eða eftir tímaáætlun. Innstungan mælir rafmagnsnotkun, þolir allt að 3.680 W og tengist beint við Wi-Fi án stjórnstöðvar.
Upplýsingar
Í Xiaomi Home appinu er kveikt og slökkt á því sem er tengt við innstunguna, hvaðan sem er. Þannig má kveikja á lampa áður en komið er heim eða slökkva á tæki sem gleymdist.
Hægt er að láta innstunguna kveikja og slökkva á ákveðnum tímum, til dæmis á hraðsuðukatli eða rakatæki. Með því að ýta tvisvar á hnappinn fer niðurtalning í gang og tímaáætlanir virka þótt netið detti út. Niðurtalningin stöðvast þó ef rafmagnið fer.
Appið sýnir hve mikið rafmagn tækið notar hverju sinni og yfir lengri tíma, svo auðvelt er að fylgjast með notkuninni.
Innstungan þolir allt að 3.680 W. Skelin er úr eldtefjandi efni og skynjarar fylgjast með hita og straumi: hún slekkur á sér ef hún ofhitnar. Ef straumurinn fer yfir mörk (15–19 A) lætur appið vita og innstungan rýfur strauminn ef ástandið varir lengur en 15 sekúndur, eða strax við 19 A. Eftir rafmagnsleysi fer hún aftur í sömu stöðu og áður.
Innstungan tengist 2,4 GHz Wi-Fi og Bluetooth 5.0 og þarf enga stjórnstöð. Raddstýring með Google Assistant er studd með samhæfum tækjum.
Innstungan er 7,4 × 5,2 × 7,66 cm og vegur um 110 g. Hún er nett og tekur lítið pláss, hvort sem er í vegginnstungu eða fjöltengi.
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar
Stýrt úr appi | Hægt að tímastilla hvenær kviknar/slökknar | Yfirlit yfir rafmagnsnotkun | Öruggt í notkun | Hægt að stýra með röddinni
Með því að tengja snjallinnstunguna við Xiaomi Home appið er hægt að kveikja og slökkva á rafmagnsinngjöf í gegnum síma. Þannig er hægt að t.d kveikja á kaffivélinni úr rúminu eða slökkva á lampanum sem er kveiktur fram í stofu.

Með því að setja upp tímaplan er hægt að sjá til þess að þegar þú ferð út úr húsi á morgnana þá ert þú fullviss um að slökkt hafi verið á raftækjunum.
Í Xiaomi Home appinu er hægt að fá ítarlega greiningu á rafmagnsnotkun snjallinnstungunnar yfir daginn. Það er líka hægt að skoða greiningu frá síðustu vikum eða mánuði.

Öruggt í notkun
Snjall innstungan hefur staðist hitaprófanir að 750° og er því einstaklega öruggt í notkun og eldvarið.
Tilkynningar við óeðlilegar aðstæður
Þegar snjallinnstungan nemur óeðlilegar aðstæður eins og mikinn hita frá rafmagnsinntakinu sendir hún tilkynningar í Xiaomi Home appinu svo að þú getir brugðist við hratt og örugglega.

Stílhreint, fallegt, lítið og nett
Hvort sem snjallinnstungunni er komið fyrir í vegginstungum eða fjöltengi tekur hún einstaklega lítið pláss og litlar líkur á að það passi ekki með öðrum tækjum á sama stað.
Snögg og einföld uppsetning í þremur skrefum
Stjórnað auðveldlega úr Xiaomi Home appinu
Komdu snjallinnstungunni fyrir í rafmagnsinnstungu, hinkraðu eftir því að sjá blikkandi appelsínugult ljós. Í Xiaomi Home appinu ýtir þú svo á plús (+) merkið í hægra efra horninu og bætir við Xiaomi Smart Plug 2 (Wi-Fi).
![]()
Veldu Wi-Fi tenginguna þína og sláðu inn lykilorðið
![]()
Snjallinnstungan er tilbúin til notkunar þegar bláa ljósið blikkar