139.990 kr.
Upplýsingar
Skjárinn er 55 tommu QD-Mini LED með 4K upplausn (3840 x 2160) og 308 dimmusvæðum. Þetta tryggir skýra og bjarta mynd með allt að 1.200 nits hámarksbirtu og 12.000.000:1 kraftmikilli birtuskilaupplausn. Litrófið nær yfir 94% af DCI-P3, sem þýðir yfir 1.07 milljarða lita fyrir mjög nákvæma mynd. Það býður upp skýra og litríka mynd með djúpum dimmum tónum og björtum og fallegum litum sem að bætir upplifunina af efninu.
Sjónvarpið notast við Google TV stýrikerfið sem að er byggt á Android TV OS. Það leyfir þér að nálgast allar helstu streymisveitur, fjölda forrita og fleira til. Forrit eins og Netflix, YouTube og Prime Video eru foruppsett en einnig er hægt að hala niður ótal forritum eins og RÚV, Plex og fleirum.
Sjónvarpið er með 60Hz endurnýjunartíðni, en styður 120Hz Game Boost ham fyrir HDMI merki við allt að 2560×1440 upplausn. Þetta er tilvalið fyrir leikjaspilun þar sem hraðar hreyfingar verða mjúkar og skýrar, sem gefur betri upplifun.
Sjónvarpið er með tvo 15W hátalara sem skila góðu hljóði. Það styður Dolby Audio™ og DTS:X, sem bætir við hljóðupplifunina með ríkulegri og dýpri tónum. Hljóðkerfið er fínstillt af Xiaomi til að skila sem bestum gæðum.
Sjónvarpið styður ýmsa HDR staðla eins og Dolby Vision, HDR10+ og HLG, auk Filmmaker Mode og IMAX Enhanced. Þetta tryggir framúrskarandi birtuskil, dýpt og litanákvæmni, svo þú sérð smáatriði í bæði björtum og dimmum senum.
Sjónvarpið býður upp á fjölbreytta tengimöguleika. Það er með eitt HDMI 2.1 tengi (með eARC og ALLM) og tvö HDMI 2.0 tengi. Eitt USB 2.0 tengi er til staðar. Þráðlaus tenging er með Wi-Fi 5 (2.4GHz/5GHz) og Bluetooth 5.0. Einnig er Ethernet og Optical Digital Audio Out.
Sjónvarpið er knúið af Quad-core A55 örgjörva ásamt Mali-G52 (2EE) MC1 GPU. Með 2GB vinnsluminni og 32GB geymsluplássi er kerfið lipurt og þú getur keyrt forrit og streymt efni án vandræða.
Sjónvarpið er með rammalausa hönnun sem hámarkar skjáflötinn. Það er smíðað með blöndu af málmi og plasti, sem veitir styrk og stílhreint útlit sem passar vel inn á flest heimili. Sjónvarpið er aðeins 11.7 kg svo auðvelt er að ferja það ef þarf.
Sjónvarpið styður VESA 300 x 300 mmfestingar, sem gerir það auðvelt að festa það á vegg. VESA stuðullinn tryggir að þú finnir auðveldlega veggfestingu sem hentar til að hengja sjónvarpið upp og spara pláss.
Með Google TV fylgja ýmsir snjalleiginleikar eins og t.d. Google Cast sem að er innbyggt í sjónvarpið. Innbyggður Google Assistant gerir þér kleift að stjórna sjónvarpinu með raddskipunum. Einnig styður það Miracast og Apple Airplay sem gerir þér kleift að spegla efni af öðrum tækjum.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar