329.990 kr.
Upplýsingar
Skjárinn á sjónvarpinu er 85 tommu QD-Mini LED skjár sem er með 4K upplausn (3840 x 2160) og 640 dimmusvæði. Einnig býður sjónvarpið upp á 1.200 nit í hámarksbirtu og 0,0001 nit í lágmarksbirtu sem 12.000.000:1 birtuskali. Litrófið nær yfir 94% af DCI-P3, sem þýðir yfir 1.07 milljarða lita. Það býður upp skýra og litríka mynd með djúpum dimmum tónum og björtum og fallegum litum sem að bætir upplifunina af efninu.
Sjónvarpið notast við Google TV stýrikerfið sem að er byggt á Android TV OS. Það leyfir þér að nálgast allar helstu streymisveitur, fjölda forrita og fleira til. Forrit eins og Netflix, YouTube og Prime Video eru foruppsett en einnig er hægt að hala niður ótal forritum eins og RÚV, Plex og fleirum.
Með 144Hz endurnýjunartíðni er allar hreyfingar á skjánum einstaklega mjúkar og skýrar, sem er tilvalið fyrir tölvuleiki og íþróttir. Sjónvarpið styður einnig allt að 288Hz í leikjastillingu á lægri upplausn, ásamt VRR fyrir enn betri leikjaupplifun. Stuðningur er fyrir AMD FreeSync Premium fyrir leikjaspilun.
Tækið er búið tveimur 15W hátölurum sem styðja Dolby Atmos og DTS:X afkóðun. Þetta skapar stórtækt og ríkt rýmishljóð sem dregur þig inn í efnið, hvort sem það er kvikmynd eða tónlist. Hljóðkerfið er fínstillt af Xiaomi til að skila sem bestum gæðum.
Sjónvarpið styður alla helstu HDR staðla, þar á meðal Dolby Vision IQ og HDR10+. Dolby Vision IQ notar ljósnema til að fínstilla birtu og birtuskil myndarinnar eftir umhverfisljósi í herberginu, sem tryggir alltaf bestu mögulegu myndgæði með djúpum svörtum tónum og björtum hápunktum.
Tækið er vel búið tengimöguleikum. Það hefur þrjú HDMI 2.1 tengi (þar af eitt með eARC) sem styðja 4K 144Hz, VRR og ALLM, sem er fullkomið fyrir leikjatölvur. Einnig eru tvö USB tengi (2.0 og 3.0), Ethernet, optical digital hljóðútgangur og 3.5mm heyrnartólstengi. Þráðlaus tenging er með Wi-Fi 6 og Bluetooth 5.2.
Með öflugan Quad Cortex A73 örgjörva, Mali-G52 (2EE) MC1 skjákorti og 3GB vinsluminni vinnur sjónvarpið hratt og forrit halast niður hratt. Einnig er stýrikerfið fljótt í vinnslu og 4K efni streymir án nokkurra vandræða.
Sjónvarpið er með rammalausa hönnun sem hámarkar skjáflötinn og gefur því nútímalegt útlit. Það er smíðað með blöndu af málmi og plasti, sem veitir styrk og stílhreint útlit sem passar vel inn á flest heimili.
Sjónvarpið styður VESA 600 x 400 mm festingar, sem gerir auðvelt að festa það á vegg. Þrátt fyrir stærðina er tækið hannað til að vera þunnt, sem lágmarkar fjarlægðina frá veggnum þegar það er fest upp.
Með Google TV fylgja ýmsir snjalleiginleikar eins og t.d. Google Cast sem að er innbyggt í sjónvarpið. Innbyggður Google Assistant gerir þér kleift að stjórna sjónvarpinu með raddskipunum. Einnig styður það Miracast og Apple Airplay sem gerir þér kleift að spegla efni af öðrum tækjum.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar