Verkstæði og Viðgerðir

Almennir skilmálar

  • Viðgerðartími er á bilinu 10-20 virkir dagar. Í mörgum tilfellum er viðgerðartími styttri en í undantekningartilfellum getur hann verið lengri
  • Mi búðin tekur ekki ábyrgð á gögnum tækja, s.s myndum, skilaboðum eða öðru sambærilegu
  • Við viðgerð geta ýmsar aðstæður komið upp, t.d gæti þurft að panta inn varahluti eða þá að viðgerð reynist umfangsmeiri en áætlað var. Mi búðin biður viðskiptavini sína að sýna biðlund ef slíkar aðstæður koma upp.
  • Þegar viðgerð er lokið fær viðskiptavinur smáskilaboð eða tölvupóst, slíkir tölvupóstar geta lent í ruslpóst þannig við hvetjum viðtakanda að athuga þar áður en haft er samband.
  • Framvísa þarf beiðnanúmeri við afhendingu tækis.
  • Allar fyrirspurnir um stöðu á viðgerð skulu berast með beiðnanúmeri á netfangið [email protected]

Skoðunargjald

  • Ef skoðun á raftæki heyrir ekki undir ábyrgðarskilmála er greitt skoðunargjald.
  • Skoðunargjald fer eftir verðskrá verkstæðis hverju sinni.

Sé hlutur ekki sóttur

  • Þegar viðgerð er lokið er sendur tölvupóstur eða smáskilaboð samkvæmt uppgefnum upplýsingum. Hafi hlutur ekki verið sóttur 10 virkum dögum eftir að viðgerð er lokið leggst á geymslugjald skv. gildandi verðskrá Mi búðarinnar. Hafi ekki verið gengið frá greiðslu innan 90 daga frá lokum viðgerðar áskilur Mi búðin sér rétt til þess að selja hlutinn fyrir viðgerða- og geymslukostnaði skv. lögum nr. 42/2000 um þjónustukaup.