9.990 kr. Original price was: 9.990 kr..7.992 kr.Current price is: 7.992 kr..
Xiaomi Sound Outdoor 30W ferðahátalari er vatnsheldur Bluetooth-hátalari með 30 W afl og rafhlöðu sem endist í allt að 12 klst. Hann er með IP67 vörn, lykkju úr gúmmíi og tveir slíkir geta spilað saman í stereó.
Upplýsingar
Í hátalaranum eru 20 W hátalari fyrir bassa og 10 W hátalari fyrir hærri tóna, auk tveggja óvirkra himna á endunum sem gefa fyllri bassa. Hljóðið er jafnað sjálfkrafa svo smáatriði heyrast líka á lágum styrk.
Tvo Sound Outdoor hátalara má para saman svo annar spili vinstri rás og hinn hægri. Allt að 100 hátalara má tengja saman svo allir spili það sama.
Hátalarinn tengist með Bluetooth 5.4 og innbyggður hljóðnemi gerir kleift að svara símtölum með einum hnappi.
Rafhlaðan er 2.600 mAh og endist í um 12 klst. á hálfum hljóðstyrk. Hún er hlaðin um USB-C með 15 W og full hleðsla tekur um 2,5 klst.
Lykkja úr gúmmíi er á hátalaranum til að hengja hann upp eða bera og púði úr gúmmíi undir honum heldur honum kyrrum. Lögunin er ávöl og fer vel í annarri hendi.
Hátalarinn er 19,7 × 6,8 × 6,6 cm og vegur um 597 g.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar
Xiaomi 30w öflugur ferðahátalari
Xiaomi Sound Outdoor 30w ferðahátalarinn er lítill en öflugur hátalari með allt að 12 tíma rafhlöðuendingu. Hægt er að para 2 hátalara saman fyrir stereo hljóð.
15W Type-C hleðsla | 2.5klst hleðslutími | 597gr | IP67
Allt að 100 samtengdir hátalarar
Hefur þú ekki oft velt fyrir þér þessari setningu: „Vá þetta er frábær hátalari, en mikið væri nú gott að vera með 99 svona í viðbót samtengda þannig að ég geti heyrt magnaðan hljómburð í öllum krókum og kimum“. Ekki þá leita lengra, hægt er að tengja allt að 100 hátalara saman með því einungis að halda inni „pairing“ takkanum í um.þ.b. 3 sekúndur. Hver og einn hátalari spilar þá sama hljóð samtímis. Ef að 100stk hljóma of mikið þá er líka hægt að tengja bara tvo saman til þess að mynda stereo hljóð.
Kröftugur bassi
Á sitthvorum enda hátalarans eru bassakeilur sem að skila djúpum, kröftugum og ríkulegum bassa.
Léttur, nettur og handhægur
Þrátt fyrir að vera einstaklega kröftugur og endingargóður hátalari þá er hönnunin þægileg og ferðalagið haft í huga svo að tónlistin geti fylgt þér hvert sem er. Hátalarinn er með innbyggt hald og vegur einungis um 600gr.
Fær í flestann sjó
Hátalarinn er með IP67 vottun þannig hann þolir ágætlega rigningu og léttvægar vatnsskvettur, tilvalinn á bakkann eða í útileguna.