Xiaomi Truclean W20 ryksugu- og skúringarvél

Xiaomi Truclean W20 ryksugu- og skúringarvél

49.990 kr.

Frí heimsending um allt land

Xiaomi Truclean W20 ryksugu- og skúringarvél ryksugar og blautmoppar gólfið í sömu umferð með 15.000 Pa sogkraft. Hún er þráðlaus, gengur í um 30 mín. á hleðslu og þvær rúlluna sjálf í hleðslustöðinni.

– Sogkrafturinn er 15.000 Pa
– Þrjár stillingar
– Vinnutími um 30 mín.
– 780 ml tankur fyrir hreint vatn og 550 ml fyrir óhreint
– Rúlla sem snýst 500 snúninga á mínútu
– Þrífur meðfram veggjum hægra megin
– Skafa með þéttum tönnum gegn hárum
– Þvær rúlluna sjálf í hleðslustöðinni
– Létt í stýri og togar sig áfram
– Stærð 27,1 × 23 × 109,3 cm og 4,2 kg
Tækjatrygging er í boði fyrir þessa vöru
Nánar um tækjatrygginguna

Á lager

Vörunúmer: 57810
Strikamerki: 6941812791929

Upplýsingar

Sogkrafturinn er 15.000 Pa

Vélin ryksugar, blautmoppar og þvær rúlluna jafnóðum, svo þurr og blaut óhreinindi fara í einni umferð. Kolalaus mótor skilar 15.000 Pa sogkrafti. Sumir blettir, einkum eftir vökva, geta þurft fleiri en eina umferð.

Þrjár stillingar

Venjuleg stilling er fyrir dagleg þrif og önnur stilling sýgur upp vökva sem hefur hellst niður. Þegar hnappinum er haldið inni í 1,5 sek. fer vélin á aukið sog fyrir föst óhreinindi.

Vinnutími um 30 mín.

Rafhlaðan er 2.500 mAh og endist í um 30 mín. á venjulegri stillingu.

780 ml tankur fyrir hreint vatn og 550 ml fyrir óhreint

Hreint vatn og óhreint er í aðskildum tönkum, svo gólfið er alltaf þvegið með hreinu vatni. Tankarnir eru 780 ml og 550 ml og sjaldan þarf að fylla á eða tæma í miðjum þrifum.

Rúlla sem snýst 500 snúninga á mínútu

Rúllan er stöðugt skoluð með rennandi vatni á meðan hún blautmoppar gólfið. Óhreina vatnið er skafið af henni og sogað upp í tankinn, svo óhreinindin dreifast ekki aftur um gólfið.

Þrífur meðfram veggjum hægra megin

Rúllan nær út að brún hægra megin á hausnum, svo vélin þrífur meðfram veggjum, út í horn og í þröngum rýmum.

Skafa með þéttum tönnum gegn hárum

Skafa með þéttum tönnum skefur óhreinindi og hár af rúllunni svo þau vefjist síður utan um hana. Hún kemur þó ekki alveg í veg fyrir hárflækjur.

Þvær rúlluna sjálf í hleðslustöðinni

Með einum hnappi skolar vélin rúlluna og rörin með rennandi vatni og þeytir svo vatnið úr rúllunni. Best er að gera þetta eftir hver þrif, svo vélin sé tilbúin fyrir næstu notkun.

Létt í stýri og togar sig áfram

Rúllan dregur vélina áfram og hausinn snýst lipurlega, svo hægt er að stýra henni með annarri hendi í kringum stólfætur og húsgögn.

Stærð 27,1 × 23 × 109,3 cm og 4,2 kg

Vélin er 27,1 × 23 × 109,3 cm og vegur 4,2 kg. Hleðslustöðin vegur 0,55 kg. Málaflið er 200 W.

Í kassanum fylgir:

Í kassanum fylgir:

  • Ryksugu- og skúringarvél með rúllu, síu og báðum vatnstönkum
  • Handfang
  • Hleðslustöð með sjálfhreinsun og straumbreyti
  • Hreinsibursti
  • Ryksugu- og skúringarvél með rúllu, síu og báðum vatnstönkum
  • Handfang
  • Hleðslustöð með sjálfhreinsun og straumbreyti
  • Hreinsibursti

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur