21.990 kr.
Xiaomi Dust Mite Vacuum Cleaner 2 Pro rykmaurasuga er ryksuga fyrir dýnur, rúmföt og sófa með 16.000 Pa sogkraft og bursta sem bankar 72.000 sinnum á mínútu. Hún er með útfjólublátt ljós, heitan blástur upp í 65 °C og skynjara sem stillir sogið sjálfur.
Upplýsingar
Á sterkustu stillingu er sogkrafturinn 16.000 Pa og það nær rykmaurum og húðflögum sem sitja djúpt í dýnunni. Stúturinn er 21,5 cm breiður svo fljótlegt er að fara yfir heilt rúm.
Burstinn er með eigin mótor og bankar í dýnuna og áklæðið svo rykmaurar, húðflögur og ryk losna og sogast strax upp. Hann er 4,9 cm í þvermál og lagaður eins og skrúfa til að hár vefjist síður um hann. Í gegnum glugga á hausnum sést hvort burstinn snýst.
Útfjólublátt LED ljós undir ryksugunni vinnur á bakteríum og úthljóð truflar rykmaurana. Ljósið slokknar sjálfkrafa þegar ryksugunni er lyft 5 cm eða meira frá fletinum. Í prófunum fjarlægir hún allt að 99% rykmaura og 99,9% baktería.
Á sterkustu stillingu blæs ryksugan allt að 65 °C heitu lofti sem dregur raka úr rúmfötum og dýnu. Þurrt umhverfi hentar rykmaurum illa. Hún kemur þó ekki í stað þurrkara.
Skynjari við loftinntakið mælir jafnóðum hve mikið er af rykmaurum, húðflögum, hárum og ryki. Ljósið er grænt þegar lítið er, gult þegar það er í meðallagi og appelsínugult þegar mikið er. LED skjár sýnir stöðuna og hvaða stilling er á.
Mild stilling er fyrir teppi og tuskudýr, snjallstilling lætur skynjarann ráða sogkraftinum og sterk stilling er fyrir dýnur og sófa. Skipt er á milli með einum hnappi.
Loftið fer í gegnum sex þrep, meðal annars stálsíu, hvirfil og fellda síu sem tekur fínt ryk niður í 0,3 μm. Öll ryksugan heldur eftir 99% af rykinu svo það blási ekki aftur út í herbergið.
Hólfið er tvískipt: öðru megin er sían og hinu megin safnast rykið. Þannig stíflast sían síður og sogið helst lengur. Hólfið er gegnsætt, tekur 0,8 l og losnar af með einum hnappi.
Rykhólfið, stálsíuna og síuna má taka úr og þvo. Allt þarf að þorna vel áður en það er sett í aftur. Gott er að þrífa síuna eftir 5–6 skipti og skipta um hana á 2–3 mánaða fresti.
Ryksugan er 28,7 × 26,8 × 22,5 cm og vegur 2,4 kg. Hún er með snúru og tengd í venjulega innstungu, svo aldrei þarf að hlaða hana. Aflið er 500 W og hljóðið er mest 80 dB.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar