8.990 kr. Original price was: 8.990 kr..8.091 kr.Current price is: 8.091 kr..
Xiaomi Water Flosser 2 tannhreinsir hreinsar milli tanna með vatni sem er sprautað í örum slögum og heldur jöfnum þrýstingi. Hann er með þremur stillingum, tveimur stútum, 200 ml vatnstanki og rafhlöðu sem endist í allt að 90 daga.
Upplýsingar
Mótorinn sprautar vatni í örum slögum sem nær inn í bilin milli tanna og skolar burt matarleifar sem tannburstinn nær ekki.
Tækið heldur þrýstingnum á vatninu stöðugum, líka þegar lítið er eftir á rafhlöðunni. Bunan er því nógu kröftug til að hreinsa en ekki svo hvöss að hún erti tannholdið.
Mild stilling fyrir byrjendur og viðkvæmt tannhold, venjuleg stilling til að skola eftir máltíðir og kraftmikil stilling fyrir fastar leifar milli tanna.
Venjulegi stúturinn gefur fína bunu sem hittir nákvæmlega. Hinn stúturinn er fyrir spangir og burstar um leið og hann skolar.
Tankurinn tekur 200 ml, nóg fyrir allan munninn í einni umferð. Hann er dreginn af til að þrífa hann og smellt aftur á. Tækið nær vatninu upp þótt því sé hallað og lítið sé eftir í tankinum.
Rafhlaðan endist í allt að 90 daga á mildu stillingunni miðað við 1 mín. á dag. Full hleðsla tekur um 4 klst.
Tækið er með IPX7 vatnsvörn og er skolað undir krananum eftir notkun. Það slekkur sjálft á sér eftir 2 mínútur. Sjá nánar um IP-vottun
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar