29.990 kr.
Xiaomi Watch S4 snjall- og heilsuúr er klassískt úr með 1,43″ AMOLED-skjá, krónu sem snúið er og hring utan um skjáinn sem hægt er að skipta um. Rafhlaðan endist í allt að 15 daga og úrið er með staðsetningu á tveimur tíðnum, símtölum yfir Bluetooth og NFC.
Upplýsingar
Skjárinn er kringlóttur, 466 × 466 dílar og myndin uppfærist 60 sinnum á sekúndu. Birtan er 1.500 nit yfir allan skjáinn og fer hæst í 2.200 nit. Skjárinn bregst síður við vatnsdropum, svo hann lætur vel að stjórn í rigningu.
Rafhlaðan er 486 mAh og endist í allt að 15 daga í dæmigerðri notkun. Hleðsla í 5 mín. á hleðslustöðinni gefur um tveggja daga notkun.
Úrið mælir púls, súrefnismettun, streitu og svefn allan sólarhringinn. Með einum smelli tekur það saman púls, streitu, súrefnismettun og svefn í stutta skýrslu á um 60 sekúndum.
Úrið skráir meira en 150 íþróttagreinar, er með hlaupaæfingar og greinir hvernig þú hleypur. Í stillingu fyrir skíði skráir það hverja ferð og getur hringt í tengilið ef þú dettur og svarar ekki innan 60 sekúndna. Úrið er með 5 ATM vatnsvörn. Sjá nánar um IP-vottun
Úrið er með eigin staðsetningarbúnað sem notar GPS, Galileo, Glonass, BeiDou og QZSS á tveimur tíðnum. Það skráir leiðina hratt og nákvæmlega án símans.
Í úrinu eru hátalari og tveir hljóðnemar, svo hægt er að hringja og svara á úlnliðnum þegar síminn er tengdur með Bluetooth.
Úrið er með NFC. Með því að smella fingrum má hafna símtali, loka tilkynningu eða smella af myndavél símans.
Krónan á hliðinni er notuð til að fletta í smáforritum og skilaboðum. Ramminn er úr áli með gljáandi áferð sem minnir á ryðfrítt stál.
Hringinn utan um skjáinn má taka af og setja annan í staðinn og sama gildir um ólina. Yfir 200 skífur eru í boði.
Úrið tengist símanum með Bluetooth 5.3 í gegnum Mi Fitness appið og virkar með Android 8.0 eða nýrra og iOS 14.0 eða nýrra. Stýrikerfið er Xiaomi HyperOS 2 og gögn má senda í Strava og Suunto.
Úrið er 4,73 × 4,73 × 1,2 cm og vegur um 44,5 g án ólar. Ólin er úr gúmmíi (fluororubber) og passar á úlnlið sem er 14–21 cm að ummáli.
Í kassanum fylgir:
Í kassanum fylgir:
Nánari upplýsingar
Algengar spurningar