Xiaomi Robot Vacuum S40 Pro ryksuguvélmenni

Xiaomi Robot Vacuum S40 Pro ryksuguvélmenni

Upprunalegt verð var: 59.990 kr.
Núverandi verð er: 53.991 kr.
Þú sparar 5.999 kr.

Original price was: 59.990 kr..Current price is: 53.991 kr..

Xiaomi Robot Vacuum S40 Pro ryksugar með 15.000 Pa sogkrafti og blautmoppar með tveimur snúningsmoppum sem lyftast á teppum. Vélin kortleggur heimilið með skanna og dugar fyrir allt að 180 m² á einni hleðslu. Hún kemur með hleðslustöð en ekki sjálftæmingarstöð, svo rykhólfið er tæmt í höndunum.

– 15.000 Pa sogkraftur
– Allt að 180 m² á einni hleðslu
– Ryksugar og blautmoppar með tveimur snúningsmoppum
– Kemst yfir allt að 2 cm þröskulda
– 9,9 cm á hæð
– Kortleggur heimilið og sneiðir hjá hlutum
– V-laga bursti sem hár flækist síður í
– Lyftir moppunum á teppum
– Raddstýring með Alexa og Google Assistant
– Fjórar sogstillingar, 65 dB
– Hleðslustöð fylgir, rykhólfið tæmt í höndunum
– Vél 35,5 × 35 × 9,9 cm, hleðslustöð 14,6 × 12,2 × 9,85 cm
Tækjatrygging er í boði fyrir þessa vöru
Nánar um tækjatrygginguna

Uppselt

Fá tölvupóst þegar vara kemur á lager

Vörunúmer: 67955
Strikamerki: 6932554447052

Upplýsingar

15.000 Pa sogkraftur

Sogkrafturinn er 15.000 Pa og nær ryki, sandi og hárum upp af gólfum og úr teppum.

Allt að 180 m² á einni hleðslu

5.200 mAh rafhlaða dugar til að þrífa allt að 180 m² á einni hleðslu. Ef hleðslan klárast í miðjum þrifum fer vélin sjálf í hleðslustöðina, hleður sig og heldur svo áfram þar sem frá var horfið.

Xiaomi Robot Vacuum S40 Pro – sölupunktur 2
Ryksugar og blautmoppar með tveimur snúningsmoppum

Tvær snúningsmoppur blautmoppa gólfið og önnur þeirra er á armi sem teygir sig út að veggjum og listum. Í appinu er hægt að velja á milli þriggja stillinga á vatnsmagni. Hægt er að láta vélina ryksuga, blautmoppa eða gera hvort tveggja í einu.

Xiaomi Robot Vacuum S40 Pro – sölupunktur 3
Kemst yfir allt að 2 cm þröskulda

Vélin kemst yfir þröskulda og lista sem eru allt að 2 cm á hæð. Ef þröskuldarnir heima eru hærri hentar vél sem lyftir sér betur.

Xiaomi Robot Vacuum S40 Pro – sölupunktur 4
9,9 cm á hæð

Vélin er 9,9 cm á hæð með skannanum og kemst því undir húsgögn sem eru með um 10 cm bil frá gólfi eða meira.

Xiaomi Robot Vacuum S40 Pro – sölupunktur 5
Kortleggur heimilið og sneiðir hjá hlutum

Skanni kortleggur heimilið allan hringinn og ljósskynjari með 129° sjónsvið framan á vélinni nemur hluti á gólfinu, svo hún keyrir fram hjá þeim.

Xiaomi Robot Vacuum S40 Pro – sölupunktur 6
V-laga bursti sem hár flækist síður í

Aðalburstinn er V-laga og með kambi sem greiðir hár úr honum og hliðarburstinn er hannaður þannig að hár vefjist síður utan um hann.

Lyftir moppunum á teppum

Þegar vélin skynjar teppi lyftir hún moppunum sjálfkrafa svo teppið blotni ekki.

Xiaomi Robot Vacuum S40 Pro – sölupunktur 8
Raddstýring með Alexa og Google Assistant

Í Xiaomi Home-appinu velur þú herbergi, stillir bannsvæði og tímaáætlun. Einnig er hægt að nota raddstýringu með Alexa og Google Assistant.

Xiaomi Robot Vacuum S40 Pro – sölupunktur 9
Fjórar sogstillingar, 65 dB

Hægt er að velja á milli fjögurra sogstillinga í appinu, frá hljóðlátri upp í hámarksafl og láta vélina ryksuga fyrst og blautmoppa svo. Hljóðstyrkurinn er 65 dB.

Xiaomi Robot Vacuum S40 Pro – sölupunktur 10
Hleðslustöð fylgir, rykhólfið tæmt í höndunum

Engin sjálftæmingarstöð fylgir, svo þú tæmir rykhólfið, fyllir á vatnið og skolar moppurnar sjálf. Á móti kemur að hleðslustöðin tekur nánast ekkert pláss.

Xiaomi Robot Vacuum S40 Pro – sölupunktur 11
Vél 35,5 × 35 × 9,9 cm, hleðslustöð 14,6 × 12,2 × 9,85 cm

Vélin vegur 4,2 kg.

Xiaomi Robot Vacuum S40 Pro – sölupunktur 12

Nánari upplýsingar

Algengar spurningar

Tengdar vörur